Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.08.1946, Side 13

Læknablaðið - 01.08.1946, Side 13
LÆKNABLAÐIÐ 103 þangað lil blóðvökvinn storkn- ar er kallaður próthrombintím- inn, og er bann 11—13 sek. bjá lieilbrigðu fólki, þegar vefs- efnisupplausnin er nægilega virk. Kosturinn við þessa aðferð er sá, að bún er handhæg, en gallarnir þeir, að auk próthrom- binsins er fibrinógenið einnig ó- þekktur liður, og sá annar að aðferðin er svo ónákvæm, að ekki er með neinni vissu bægt að segja um það, livort prót- lirombinið hefir minnkað, fyrr en það er orðið minna en 60% af þvi sem það er hjá heilbrigðu fólki. Þriðji ókosturinn við að- ferðina er sá, að ekki er unnt að finna hvort prótlirombinið er aukið. Þessum göllum má sneiða bjá með því, að ákveða storknunartímann í þynntu plasma og nota upplausnir af vefsefni, calcium og fibrino- geni, sem vitað er, live sterkar eru. Þá er próthrombinið eini liðurinn sem er óþekktur. Þegar þessi aðferð er notuð, verður rannsóknin töluvert umsvifa- meiri, en stórum nákvæmari. Sökum þess, að styrkleiki vefsefnisupplausnarinnar getur breytzt frá degi til dags, verður að bera próthrombinmagnið i blóði sjúklingsins saman við magn þess í blóðvökva úr heil- brigðum. Bæði er hægt að nota storknunartimann til að finna próthrombinmagnið, eða reikna próthrombinmagnið í blóði sjúklingsins út í % og nota blóðvökva heilbrigðs manns sem samanburðargrundvöll. Loks skal eg geta þess, að til eru svo kallaðar micro-aðferðir. Þegar þessar aðferðir eru not- aðar, þarf ekki nema htið eitt af blóði, og eru aðferðirnar þvi mjög liandhægar, þegar um rannsóknir á börnum er að ræða. Þessar aðferðir eru ná- kvæmar þegar lilóðið er þvnnt og tekið er tillit til lilutfallsins milli blóðfruma og blóðvökva (hæmatókrít). Þá kem ég að notkun K-vita- mins til lækninga. Hún er að- allega tvennskonar: 1) Fyrir- girðing og lækning á blæðingar- lineigð vegna próthrombins- skorts lijá nýfæddum börnum, og 2) fyrirgirðing og lækning á cholemiskum blæðingum sjúklinga með langvarandi gulu. Blæðingarhneigð hjá nýfædd- um börnum lýsir sér með blæð- ingum ýmist í búð, shmhúðum, eða innri líffærum. Þessar blæðingar byrja venjulega á öðrum til fjórða degi eftir fæð- ingu, en geta stundum verið meðfæddar. Blæðingarnar byrja annað hvort skyndilega, eða liægt og liægt, oft að því er virðist án ytri orsaka. Þær standa yfir í nokkra daga og hætta þá annað hvort af sjálfu sér, eða leiða til dauða.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.