Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.1947, Side 11

Læknablaðið - 15.10.1947, Side 11
LÆKNABLAÐIÐ 85 þessi 1 sjúkl. í marz heyri til þessum faraldri. Samtals 98. Þá voru íbúar Reykjavíkur 9500, en í hverfinu þar sem veikin var, hefir naumast búið meir en þriðjungur bæjarbúa. Svo ekki var furða, þótt fólk væri óttaslegið. Miðað við fólks- fjölda núna, svarar það til þess að 500 manns tæki taugaveiki á rúmum tveim mánuðum inn- an þess sama svæðis, að við- bættri Norðurmýri. En se'm bet- ur fer mun ekki bætta á slíku, því eftir að vatnið var leitt til bæjarins og lag komst á skolp- rennslið, sem hvorttveggja varð fyrir ötula forgöngu Guðmund- ar heitins Björnssonar,þá bvarf taugaveikin með öllu. 80 þessara sjúklinga komust á spítala, 2 á Frakkn. sp. og 53 á Landakotssp. Af þeim dóu 8—10%. Hve margir dóu af þeim, sem lágu í heimahúsum, þori ég ekki að fullyrða, en margir voru það ekki, því þótt þeir væru ekki fluttir strax á spítala, þá var það gert, er þeim tók að þyngja. Ég er hræddur um, að erfitt yrði nú um spítalapláss, ef svona mikil sótt kæmi liér upp. Hérna voru þá 1 rúm á spí- tala fyrir livert hundrað njanns þann tímann, sem franskir sjó- menn voru ekki hér við land, og nú vildi svo til, að sóttin kom upp á þeim tíma, sem Franski spitalinn stóð auður. Kortið birtist hérna, og hefi ég merkt með hring heimilin, sem sóttu vatn í Móakotslind, með þrihyrningi þau, sem sóttu í Barónspóst, en með ferhyrn- ingi þau, sem sóttu í önnur vatnsból. (Inn á kortið bætti ég jafnharðan þeim, sem veikt- ust eftir 16. desember). Eftir 1. janúar 1907 og allt fram til 12. febrúar veiktust tuttugu manns. En þeir voru allir á heimilum, þar sem veik- in var fyrir, því nokkrir þess- ara taugaveikissjúklinga lágu í heimahúsum. Blóðhósti. í Nordisk Medicin, 25. april 1947, bls. 951, gerir Anthon Aanonsen grein fyrir orsökum blóðhósta, i 275 sjúklingum, sem rannsakaðir voru í 9. deild Ullevál sjúkrahússins (yfir- iæknir dr. med. H. J. Ustvedt). Það kom í ljós, við ýtarlega rannsókn, að berklaveiki var orsök blóðhóst- ans í 122 sjúklinganna, en í hinum 153, var um aðra sjúkdóma að ræða. Að berklunum undanteknum, var stærsti hópurinn bronchiectasiur, þ. e. 40 ótvíræðar og 27 sennilegar. Þá komu 22, þar sem ekki fannst nein orsök til blæðingar. í 12 sjúkl. hafði blæðingin komið úr hálsi, og jafnmargir liöfðu æðastýflu (in- farct). Loks voru smáhópar, þar á meðal 9 sjúkl. með „bronchitis cir- cumscripta non specifica“ (Truls Leegaard), æxli, igerðir o. fl. Ó. G.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.