Læknablaðið - 15.10.1947, Síða 22
96
LÆKNABLAÐIÐ
tilmæli læknadeildar Há-
skóla íslands. við nýafstaðna
veitingu í prófessorsembætti
í lyflæknisfræði, þar sem
auðsætt er að enginn aðili
hefir betri aðstöðu til að
dæma um hæfni umsækjenda
en læknadeildin sjálf og' þeir
sérfróðu læknar, sem voru
henni til aðstoðar í þvi
starfi.“
Ein aðalröksemdafærsla
andstæðinga tillögunnar var,
að ekki mætti særa tilfinning-
ar umsækjendanna og að al-
menningur gæti misskilið slíka
tillögu. Hvorugt er þó hægt að
sjá, að tillagan beri með sér,
þar sem hér er um hreint prin-
cipmál að ræða.
Ég lít svo á, að með því að
skora á mig 1938 að afturkalla
umsókn mína og þar með
sleppa einu af beztu héraðs-
læknisembættum landsins, sem
liklegt var til frama auk
fjárhagslegs öryggis, hafi
læknasamtökin i rauninni
skuldbundið sig siðferðislega
til þess að gera slikt bið sama
við hvern sem var, við sam-
bærilegar aðstæður, þ. e. a. s. ef
deila risi milli læknisfróðra
manna annars vegar og veit-
ingarvaldsins liins vegar, út af
skipun embælta innan lækna-
stéttarinnar.
Það er ekki ntitt að segja
læknasamtökunum fyrir verk-
um, en ekki er liægt að verjast
þeirri hugsun, að ólíkt betur
hefði umsækjandi um embætt-
ið við læknadeildina staðið að
vígi til að þola slika áskorun,
sem þá, er ég fékk, þar sem
hann liefir verið yfirlæknir i
10 ár, auk þess sem hann virt-
ist vera búinn að hasla sér völl,
á ákveðnu sviði læknisstarf-
anna, með góðum árangri.
Mér skilst, að með þessum
síðustu atburðum i þessu máli
hafi veitingarvaldið með að-
stoð Háskólans sjálfs gengið
milli bols og Iiöfuðs á allrí við-
leitni til sjálfsákvörðunarrétt-
ar Iláskólans og læknasamtak-
anna og þá um leið hitt, að
enginn læknir geti framar tek-
ið alvarlega neitt tal um að láta
stéttarhagsmuni ganga fyrir
eigin liagsmunum.
Fyrir mig hefir þetta allt
verið mjög lærdómsríkt og dá-
lítið óvænt, og þessa reynslu
mína af samtökum islenzkra
lækna vildi ég, að aðrir kolleg-
ar gætu nýtt, einnig til þess,
að þeir geti sjálfir dæmt um,
hvort sú ályktun min af þess-
um forsendum sé rétt: Að inn-
an islenzkra læknasamtaka
virðist þrífasl tvenns konar
réttur. Úlfar Þórðarson.
AfgreitSsla og innheimta Laeknablaðsins er i Félagsprentsmiðjunni h.f..
Reykjavík. Sími 1640. Pósthólf 570,
Félagsprentsmiðjan h.f,