Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.12.1951, Page 17

Læknablaðið - 01.12.1951, Page 17
I-ÆKNABLAÐIÐ 75 streita er mikil meðal stétta um kaup og kjör, vegna sívax- andi dýrtíðar, og þá jafnan hætt við að þeir, sem ekki ota fram sínum tota, beri skarðan hlut frá horði. A ég þar eink- um við héraðslækna, því að læknar í Reykjavík hafa með sér allöflugan félagsskap, og praktísérandi læknar út um land hafa i mörgum tilfellum getað stuðst við samninga L. R. við sjúkratrvggingar. Síðan á aðalfundi 1948 hafa margir góðir collegar fallið i valinn, sumir eftir langan og strangan vinnudag en aðrir á léttasta skeiði. Þessir hafa lát- izt: Matthías Einarsson yfirlækn- h', Reykjavík. Helgi Guðmundsson læknir, Keflavík. Pétur Magnússon aðstoðarl., Landsp., Reykjavík. Valtýr Valtýsson héraðsl., Kleppj árnsreykj um. Eiríkur Ivjerulf læknir, Rvik. Jón Geirsson læknir, Akur- eyri. Hallgrimur Guðmundsson eand. med., Reykjavík. Skarphéðinn Þorkelsson hér- aðsl., Höfn, Hornafirði. Harald Wigmoe læknir, Rvík. Ingólfur Gislason fyrrv. hér- aðsl. i Rorgarnesi, búsettur i Reykjavík. Ég vil biðja fundarmenn að uiinnast þessara látnu félaga með því að rísa úr sætum sín- um.“ Var það síðan gert. „Um nýja félaga er mér ó- kunnugt, þar sem plögg félags- ins eru enn að mestu í höndum fráfarandi formanns. Þó að það hafi orðið mitt hlutskipti að setja þennan fund vegna forfalla formanns, verð- ur ritari að skýra frá störfum félagsins undanfarin ár, þar sem ég hefi hvergi nærri stjórnarstörfum komið. Þess skal getið, að draga má í efa að fundurinn sé löglega boðaður, og mun vanta 4 daga til að svo sé, en tilmæli frá Magnúsi Péturssyni um að koma á fundi bárust svo seint, að lítill tími var til undirbún- ings, en nauðsynlegt þótti, vegna héraðslækna, að fundur kæmist á í þessum mánuði, og brýna nauðsjm bar til að halda fund á þessu ári, vegna aðkall- andi stéttarmála. Læknar, sem ég ræddi þetta mál við, töldu slíkt formsatriði litils virði, borið saman við þá félagsnauð- syn að koma á fundi bið bráð- asta. Ef einhverjir eru hér á annarri skoðun, eru þeir beðnir að segja til í tima, en hreyfi cnginn andmælum, telst það samþykki þess, að fundurinn megi starfa sem löglegur aðal- fundur.“ Engin mótmæli komu fram. Stakk varaformaður síðan upp á Páli Kolka liéraðslækni sem

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.