Læknablaðið - 01.12.1951, Blaðsíða 20
78
LÆKNABLAÐIÐ
í Læknaíelagi Vestur-Þýzka-
lands voru taldir 60.000 lækn-
ar, en starfandi læknar i land-
inu 62.906.
Nokkrir læknar í báðum
þessum löndum höfðu, eins og
kunnugt er, gerl sig seka um
stríðsglæpi. Málsmetandi lækn-
ar, frá báðum þessum lækna-
samtökum, liöfðu borið fram
ákveðnar og, að því er virtist,
eftir atvikum fullnægjandi af-
sakanir, og lofuðu að sjá um
eftir megni, að slíkt kæmi ekki
fyrir aftur. Ég bar mál þetta
undir fund í Læknafélagi
Reykjavíkur, og kvaðst mundi
mæla með því að báðum þess-
um læknasamtökum yrði veitt
upptaka í Alþjóðalæknafélag-
ið, ef enginn fundarmanna
hreyfði mótmælum. Engin
mótmæli komu fram og sendi
ég því skrifstofu Alþjóða-
læknafélagsins í New York
meðmæli Læknafélags íslands
með því, að báðum þessum
læknasamtökum yrði veitt
upptaka í Alþjóðalæknafélag-
ið (W. M. A.).
Um þessar mundir fékk
Læknafélag' íslands bréf frá
Læknafélagi Gyðinga í Pale-
stínu (Medical Association of
Israel). Bréfið er dagsett í
Jerúsalem 20/2 1951.
Með því að vér erum heldur
óvanir því, að fá bréf frá Jerú-
salem og það skýrir nokkuð
sjónarmið Gjrðinga í þessu
máli, ætla ég að leyfa mér að
lesa það hér upp.“ Las ritari
síðan upp bréfið.*)
„Alkvæðagreiðslan fór þann-
ig, að þrjátíu og eitt þjóðar-
læknafélag svaraði. Af þeim
voru þrjátíu þvi meðmælt, að
Læknafélag Japana yrði tekið
í Alþjóðalæknafélagið, en tutt-
ugu og átta mæltu með því, að
Læknafélag Vestur-Þýzka-
lands yrði tekið í það.“
Björn Jósefsson taldi það
hafa verið rétl að veita Lækna-
félagi Vestur-Þýzkalands inn-
göngu í W. M. A. þrátt fyrir
andmæli Læknafélags ísra-
els. Hann átaldi það, hve fáir
læknar sæktu aðalfundi L. í.
3. Reikningar félagsins.
Karl Sig. Jónasson, gjaldkeri
félagsins las upp reikninga fé-
lagsins fyrir sl. 3 ár.
Var allmikið óinnheimt af
ársgjöldum félagsmanna, og
taldi gjaldkeri erfiðara um
hönd með innheimtuna, vegna
þess að ekki hefði verið á-
lcveðið ársgjaldið undanfarin
tvö ár, þar sem fundir höfðu
ekki verið haldnir.
Eggert B. Einarsson bar fram
tillögu um það að ársgjaldið
yrði innheimt með kr. 200.00
fyrir árið 1950.
*) í bréfinu var eindregið mælt
gegn þvi ag Læknafél. V.-Þýzkalands
yrði að svo stöddu veitt innganga í
W. M. A.