Læknablaðið - 01.10.1954, Page 4
130
LÆKNABLAÐIÐ
ur þó vikið nokkuð að því síð-
ar.
Hitt atriðið, þ. e. áhrif
breyttrar aldursskiptingar, er
aftur á móti tiltölulega auðmet-
ið.
Algengast er að gera fyrir
breytingum á aldursskiptingu
með því að reikna „standard“-
dánartöluna hverju sinni. Til
þess þurfa dánartölur hvers
aldursflokks að vera kunnar
og er standard-dánartalan síð-
an alltaf miðuð við sömu ald-
ursskiptingu.
Fyllri upplýsingar fást þó af
beinum samanburði á dánar-
tölum bvers aldursflokks fyrir
sig, sem nú skal sýnt á fyrstu
myndinni (smbr. og töflu I).
/oo ooo fícr /00-000
1. mynd.
Manndauði af völdum illkynja æxla. Samanburður á dánartölum hvers
aldursflokks á þessumtimabilum: 1910—’25,1926—’35, 1936—’45 og 1946—’52.
Tekin eru 10 ára meðaltöl
krabbameinsdauðsfalla sam-
kvæmt 5 ára dánarskýrslum
Hagstofunnar, og dánartala
hvers aldursflokks Imiðuð við
mannfjölda samkv. manntali á
miðju tímabilinu eða því sem
næst, enda eru 10 ára bilin val-
in með tilliti til þess að svo
megi verða, Iiið fyrsta 1916—
1925 og s. frv. Síðasta tíma-
bilið nær þó aðeins til 7 ára,
1946—’52 og er þar miðað við
aldursskiptingu á miðju ári
1949, en hún er áætluð eftir
manntölunum 1940 ojg 1950.
Dauðsföll áranna 1951 og 1952
eru talin beint eftir dánarvott-