Læknablaðið - 01.10.1954, Page 12
138
LÆKNABLAÐIÐ
Blódflokkar
3í)02 íslenzkra kvenna
Yfirlit.
Á athugunum og yfirlitum,
sem gerð hafa verið um dreif-
ingu hlóðflokka meðal þjóða
og kynstofna sést, að þar er um
að ræða ríka kynþáttaeigin-
leika, en viða verða þar stórar
sveiflur á, jafnvel innan tak-
markaðra svæða og einnig
jafnvel eftir stéttum, eins og t.
d. í Indlandi, þar sem hinar
mismunandi stéttir þjóðfélags-
ins hafa einangrazt af trúarleg-
um ástæðum (11). Ýmislegt
varðandi dreifingu ABO-blóð-
flokka og Rhesus-eiginleikans
gefur í skjm, að upphaflega
hafi verið um að ræða 2 eða
fleiri „genotypiskt“ ólíka ætt-
hálka með mannkyninu, hvað
viðvíkur erfðum þessara eigin-
leika. Þannig virðist B-flokk-
urinn vaxa að hundraðstölu
eftir því sem austar dregur á
meginlandi Eurasíu, í Vestur-
Heimildir.
Mannfjöldaskýrslur Hagstofunnar
1916—1950.
Epidemiological and Vital Statis-
tics Reports (WHO) V. No. 1—
2, 1952.
Dánarvottorð lækna og dánarskýrst-
ur presta árin 1919/22. 1929/32,
1939/42 og 1949/52.
Evrópu eru í flokki þessum
7—10%, en þegar komið er til
Moskvu, eru 23%, og austur í
Peking allt að því 35% í B-
flokki (6, 9, 10, 11, 13).
í hinni blönduðu, hvítu
j)jóðasamsteypu New York-
borgar fann Wiener þá skipt-
ingu, sem síðan hefir verið al-
mennt staðfest, að um 85%
hvítra eru Rhesus-jákvæðir, þ.
e. hafa í hlóði sínu Rh-antigen,
og þá langsamlega flestir af
tegundinni Rh0, eins og síðar
mun nánar vikið að, en 15%
eru Rhesus-neikvæðir, þ. e.
vantar þessi antigen (12).
Á þessu er einnig talsverður
kynþáttamunur. Baskar á
Norður-Spáni hafa langhæsta
hundraðstölu Rhesus-nei-
kvæðra, eða rúm 30% (11). —
Meðal svertingja í New York
er tala Rhesus-jákvæðra 92—
95%. Meðal Kínverja (einnig
í New York) er tala þessi um
99%, og hjá Japönum svipuð.
Er þar athyglisvert, að ekkcrt
ber þar á Rh0 (öðru nafni I)),
sem er það „gen“ í Rhesus
kerfinu, er liefir mesta
þýðingu við mótefnamyndun
í blóði, ])á er veldur erythro-
hlastosis fœtalis. Enda virðist
sá sjúkdómur ákaflega sjald-