Læknablaðið - 01.12.1955, Blaðsíða 16
156
LÆKNABLAÐIÐ
um ýmis hagsmuna- og áhugamál
lækna.
Minnzt var látins félaga, Lúðvíks
Norðdal, sem látizt hafði á árinu.
Félagarnir kvöddu Knút Kristins-
son, sem nú lætur af störfum á fé-
lagssvæðinu. Jónas Kristjánsson yf-
irlæknir heilsuhælis Náttúrulækn-
ingafélagsins í Hveragerði flutti
erindi um manneldismál, og var
crindið bæði fróðlegt og skemmti-
legt, enda Jónas fróður vel eftir
langan læknisferil i sveit og í bæ
og skemmtilegur fyrirlesari með
eldlegan áhuga.
Aliklar umræður urðu um erindi
Jónasar og voru menn á einu máli
um hið mikla hlutverk mataræðis-
ins í heilsufarslegu uppeldi þjóð-
arinnar. Sérstaklega var rætt um,
liversu þýðingarmikið væri, að vel
væri vandað til matvælaiiinflutn-
ings, en upplýst var, að suint af því
korni, sem flutt væri inn ómalað,
væri gamalt og skennnt af langri
geymslu, t. d. spiraði ekki. Um mal-
aða kornið væri ekki gott að segja,
en víst væri um hveitið, að það
væri algerlega bætiefnasnautt, og
máske langgeymt, án þess að um
það væri vitað með vissu fyrirfram.
í sambandi við mál þetta sam-
þykkti fundurinn eftirfarandi á-
lyktum til heilbrigðisstjórnarinnar i
landinu:
„Aðalfundur Læknafélags Suður-
lands ályktar, að gefnu tilefni, að
skora á lieilbrigðisyfirvöldin i land-
inu, að gera ráðstafanir lil þess að
tryggja að gæðamat fari fram á
innfluttum matvælum, sérstaklega
kornmat, möluðum eða ómöluðum,
þar sem eigi aðeins væri tekið til-
iit til þroska kornsins, þar sem þvi
verður við komið, lieldur og ald-
urs, geymsluaðferða og íblöndun-
ar annarlegra efna til að auka
geymsluþol eða fegra útlit.“
Bjarni Guðmundsson ræddi um
taxta og launamál lækna mcð lilið-
sjón af nýafstöðnum kauphækkun-
um i landinu. Var þessi ályktun
gerð:
„Aðalfundur Læknafélags Suður-
lands, haldinn að Selfossi 3. sept.
1955, telur sjálfsagt að læknar fái
10—12% liækkun á alla samninga,
föst gjöld og „praxis“, samsvarandi
þeim hækkunum, sem aðrir hafa
fengið á þessu ári.“
Sjórn Læknafélags Suðurlands
skipa nú þessir menn:
Formaður: Bragi Ólafsson, hér-
aðslæknir, Eyrarbakka. Gjaldkeri:
Jón Gunnlaugsson, læknir, Selfossi.
Bitari: Baldur Jolinsen, héraðs-
læknir, Vestmannaeyjum.
Bjarni Guðnmndsson var kosinn
til að mæta á aðalfundi L. í. á næsta
ári.
Leiðrétting.
Lesendur greinariunar Thorvald-
sen og Oehlenschláger í síðasta tölu-
blaði Læknablaðsins eru beðnir að
virða á betra veg og lesa í málið
eftirtaldar prentvillur í greininni,
svo og ef fleiri kunna að vera:
Bls. 125, fyrri dálkur, 6. 1. a. n.: er
að ljúka, les: er ljúka.
— 127, siðari dálkur, 18. 1. a. n.:
treynt, les: treint.
— 133, síðari dálkur, 3.—4. 1. a. o.:
T. d. (þ. e. til dæmis) er . .., les:
Þ. e., til dæmis, er ...
— 134, síðari dálkur, 10. 1. a. o.:
palliaativ, les: palliativ.
— 130, fyrri dálkur, 23.—24. 1. a.
o.: extraktinonir, les: extrak-
tionir.
— 137, fyrri dálkur, 5. 1. a. n.:
hugvekja, les hugvekju.
Vegna efnis greinarinnar liefði
óneitanlega farið vel á, að liún liefði
náð þvi að verða prentvillulaus, en
slíkt handbragð er hugsjón, sem
sjaldan nær því að verða að veru-
leika, og þó að í öðrum ritum sé en
Læknablaðinu. V. J.
I''ctagsi>ventsin.