Bændablaðið - 19.09.2013, Blaðsíða 43

Bændablaðið - 19.09.2013, Blaðsíða 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 19. september 2013 8 2 6 9 4 5 5 2 3 6 5 8 9 4 6 1 5 9 1 2 8 2 8 7 9 1 6 3 1 7 2 9 6 5 7 1 7 9 6 5 8 3 2 5 8 3 Sudoku Galdurinn við Sudoku- þrautirnar er að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. Þrautirnar eru miserfiðar, sú sem er lengst til vinstri er léttust og sú til hægri þyngst en sú í miðjunni þar á milli. 4 Nafn: Erling Kári Freysson. Aldur: 4 ára. Stjörnumerki: Meyja. Búseta: Reykjavík. Leikskóli: Drafnarsteinn. leikskólanum? Að vera úti og leika Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Fílar og ljón. Uppáhaldsmatur: Hamborgari. Uppáhaldshljómsveit: Skálmöld og Pollapönk. Uppáhaldskvikmynd: Emil í Katt- holti. Fyrsta minningin þín? Að fara í dráttarvél með Rögnvaldi afa í sveit- inni. hljóðfæri? Ég fer kannski á leikja- námskeið eða í fótbolta. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Að snúa mér í marga Hvað er það leiðinlegasta sem þú hefur gert? Ætlar þú að gera eitthvað sérstakt í sumar? PRJÓNAHORNIÐ Stærð: S (M) L Yfirvídd 85 (90) 95 cm Ermasídd 47 (47) 48 cm Sídd á bol 48 (50) 52 cm Efni: Tvöfaldur plötulopi Hvítur nr. 1 - 1 plata allar stærðir. Mórauður nr. 9 - 1 plata allar stærðir. Dökk mórauður nr. 1032 - 1 plata allar stærðir. Ljósmórauður nr. 3 - 5 plötur allar stærðir. Tölur Prjónar: Hringprjónn nr. 6, 40 cm og 80 cm Sokkaprjónar nr. 6 Heklunál nr. 5 Prjónafesta: 10 X 10 cm = 14 L og 20 umf. slétt prjón. Notið hálfu nr. stærri eða minni prjón eftir því sem við á, ef prjónafestan passar ekki hjá ykkur. Aðferð: Peysan er prjónuð í hring á hringprjón. Við hand- veg eru bolur og ermar sameinað á einn prjón. Bolur: Fitjið upp 117 (126) 135 L á prjóna nr. 6 með aðallit. Tengið saman í hring og bætið 1 L við. Sú L er alltaf prj. br. og telst ekki með í lykkjufjölda en er notuð til að sauma í þegar peysan er klippt í sundur. Byrjið á að prj. Mynstur nr 1. Prj. svo slétt þar til bolurinn mælist 18 (20) 22 cm. Setjið prjónamerki í hliðarnar. Úrtökuumf: Prj sl þar til þrjár L eru að merkinu í fyrri hliðinni, prj þá 2L saman, prj 2L, takið 1L óprj af og prj næstu L, steypið óprj L yfir hina. Prj sl þar til þrjár L eru að seinna merkinu, prj þá 2L saman, prj 2L, takið 1L óprj af og prj næstu L, steypið óprj L yfir hina. Klárið umf. Prj 11 (12) 13 umf. Prj. aftur úrtökuumf. eins og lýst var hér að ofan. Prj. 11 (12) 13 umf. Útaukningarumf: Prj. þar til 1 L er að miðju, aukið út, prj. 2 L, aukið út. Prjónið eins í hinni hliðinni. Prj. 11 (12) 13 umf. Aukið út eins og lýst er að framan. Prj. 11 ( 12) 13 umf. Nú eiga að vera 117 (126) 135 L á prjóninum. Geymið bolinn og prjónið ermar. Ermar: Fitjið upp 45 (45) 45L með aðallit og tengið í hring. Prj. eftir Mynstri 1. Fækkið um 4 (4) 4 L í fyrstu umf eftir mynstur- bekk, jafnt yfir hringinn. Prj. 10 umf. Fækkið um 4 (2) 0 L, jafnt yfir hringinn. Prjóna 10 umf. Aukið út um 1L eftir fyrstu L í næstu umf og einnig fyrir síðustu L í umf. Prj. 10 umf. Aukið aftur út eins og áðan. Prj. 10 umf. Aukið aftur út eins og áðan. Ermin prjónast þar til hún mælist 47 (47) 48 cm, eða eins löng og óskað er. Í síðustu umferðinni eru 8 L undir miðerminni settar á nælu eða hjálparband. Slítið bandið frá en geymið góðan þráð sem síðar er notaður til að lykkja saman undir höndum. Prjónið hina ermina eins. Axlarstykki: Sameinið bol og ermar á hringprjón. Byrjið á að prjóna þar til 4 L eru að merki undir handvegi og setjið 8 L á nælu eða hjálparband. Prj. ermina upp á hringprjóninn og prj aftur þar til 4 L eru að hinu merkinu, setjið næstu 8 L á nælu eða hjálparband. Prj. seinni ermina upp á hringprjóninn og klárið svo umferðina. Prj. 6 (7) 8 umf. en athugið að í 5. (6.) 7. umf. þarf að telja L og aðlaga þær eftirfarandi lykkjufjölda; 169 (183) 197. Prj. Mynstur 2. Í síðustu umf áður en kemur að kraganum er L fækkað í 40 (44) 48. Fellið brugðnu aukalykkjuna af og prjónið klukkuprjón (fram og til baka) ca 8 cm, eða eins langt og óskað er. Fellið laust af. Frágangur: Lykkið saman undir höndum og gangið frá endum. Saumið í vél með beinu þéttu spori, tvisvar hvoru megin við br L fyrir lista. Klippið á milli saumanna. Ákveðið hve margar tölur þið viljið hafa og setjið merki með jöfnu millibili þar sem hnappagötin eiga að vera (á hægri listanum). Heklið listann, mér hefur þótt passa að hekla fp í tvær L og sleppa svo einni. Heklið 1LL til að snúa við milli umf. Þvoið peysuna og látið þorna liggjandi á handklæði. Helena Eiríksdóttir FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ Leiðinlegast að fá bara litla skóflu 6 4 Létt 4 7 6 5 9 9 4 1 3 6 8 9 2 4 5 3 8 8 5 7 4 2 1 5 1 ÞungMiðlungs Sikk sakk 1

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.