Bændablaðið - 19.09.2013, Blaðsíða 29
29Bændablaðið | Fimmtudagur 19. september 2013
Í lok ágúst hélt Búfjárræktar-
samband Evrópu (EAAP) 64.
ársþing sitt í Nantes í Frakklandi,
nánar tiltekið 26.-30. ágúst.
Þátttaka var með mesta móti,
um 1.300 manns, aðallega frá
Evrópulöndum en einnig allmargir
frá öðrum heimsálfum, samtals frá
64 löndum. Sá sem þetta ritar var
eini Íslendingurinn þar að þessu
sinni og þá jafnframt fulltrúi á
aðalfundinum sem haldinn er um
leið.
Mikil landbúnaðarþjóð
Frakkar eru ein af helstu landbúnaðar-
þjóðum Evrópu. Mikil áhersla er
lögð á fæðuöryggi en þar að auki
er mikill útflutningur margvíslegra
landbúnaðarafurða. Af 66 milljónum
íbúa Frakklands vinnur ein milljón
við landbúnaðinn og eru sveitabýli
490.000 að tölu.
Athygli vekur hve mikla
áherslu franskir bændur leggja á
gæðamerkingar búvara þar sem
uppruninn kemur skýrt fram og 18%
þeirra selja afurðir sínar beint frá býli.
Búfjárframleiðsla er á um helmingi
sveitabýla og var við hæfi að halda
ársþingið í Nantes, 600.000 manna
borg við ána Leiru (Loire) þar sem hún
rennur í Atlantshafið, skammt sunnan
við Bretaníuskaga. Þar um slóðir er
mikil og margvísleg búfjárrækt og
einnig umfangsmikil afurðavinnsla.
Tengsl við sjóinn eru einnig mikil og
fiskmeti oft á borðum líkt og á Íslandi.
Á menningarsviðinu má nefna
að Jules Verne sem skrifaði m.a.
ævintýrasöguna Umhverfis jörðina
á 80 dögum er þekktasti rithöfundur
Nantes-borgar. Hún stendur að hluta
á eyju, Ile de Nantes, þar sem ég bjó,
en þingið og aðalfundurinn voru í
glæsilegu ráðstefnusetri í miðri
borginni.
Sterk staða
landbúnaðarrannsókna
Nú um stundir er Frakkland sú
þjóð Evrópu sem hefur forystu í
landbúnaðarrannsóknum og fylgir
þar með eftir þeirri markvissu stefnu
að halda uppi sterkum landbúnaði
byggðum á vísindalegum grunni.
Þekktasta búvísindastofnun þeirra
er INRA en margar fleiri koma við
sögu, bæði á vegum opinberra aðila
og fyrirtækja. Þá er og rekin mikil
fræðslu- og leiðbeiningastarfsemi.
Búfjárkyn eru mörg og ræktunarfélög
þeim tengd sömuleiðis. Auk þess eru
Frakkar stórtækir víða erlendis, m.a. í
fyrri nýlendum. Þá er útgáfustarfsemi
í þágu landbúnaðar fjölþætt og innan
Evrópusambandsins eru Frakkar
meðal lykilþjóða. Alkunna er hve
franskir bændur eru skeleggir
baráttumenn, bæði heima fyrir og
í Brussel.
Fjölbreytt og góð fagleg umræða
Ársþing Búfjárræktarsambands
Evrópu er þekkt fyrir gott skipulag
og fjölbreytilegt efni um svo til allt
sem varðar búvísindi. Nýjar niður-
stöður rannsókna eru lagðar fram,
eldra efni er tekið til endurskoðunar
og miklar umræður fara fram, bæði
inni á formlegum fundum og utan
þeirra. Svo var vissulega að þessu
sinni og aðstaða öll var til fyrir-
myndar hjá Frökkum.
Nú sem fyrr voru erfðir og
kynbætur búfjár veigamikill
þáttur en fóðurfræði og eldi
voru einnig ofarlega á baugi. Á
meðal athyglisverðs efnis um
sjúkdómavarnir í sauðfé voru
tilraunir til kynbótaúrvals gegn
ormaveiki, júgurbólgu og garnaveiki.
Á seinni árum er farið að huga
meira að sjálfbærri þróun í víðu
samhengi þar sem þættir á borð við
útblástur gróðurhúsalofttegunda og
mengun frá búfjárframleiðslu, eink-
um verksmiðjubúskap, fær ítarlega
umfjöllun.
Nú voru m.a. flutt afbragðs
erindi um búvistfræði, dýravelferð
og siðferðileg sjónarmið sem varða
framleiðslu búfjárafurða. Þá kom
eyðing erfðaefnis töluvert við sögu
því að hún hefur verið fylgifiskur
þéttbærra búskaparhátta, einkum í
alifugla- og svínarækt. Nauðsynlegt
er að spyrna við fótum en bændur
og aðrir búvöruframleiðendur benda
gjarnan á að þeir séu undir stöð-
ugum þrýstingi frá neytendum og
stjórnmálamönnum að lækka mat-
vælaverð.
Þessi þróun á sér ýmsar skugga-
hliðar og eru búvísindamenn að
átta sig betur og betur á slæmum
afleiðingum ýmissa búskaparhátta
þótt þeir séu taldir hagkvæmir.
Ekki eru gæði afurða alltaf tekin
til greina, aðeins einblínt á verðið
og í raun gætir töluverðs tvískinn-
ungs og mótsagna. Lífræni geirinn
tekur best á þessum málum enda í
nánustum tengslum við neytendur.
Það er vissulega kominn verðmiði
á umhverfisþætti, dýravelferð o.fl.
sem t.d. kemur fram í hærra verði
lífrænt vottaðra afurða en annarra.
Ábyrgari búfjárframleiðsla
Í Nantes var m.a. verið að tala um
ábyrgari búfjárframleiðslu og nú
þegar eru merki um árangur, t.d.
með samdrætti í notkun sýklalyfja,
en þar er staða íslensks landbún-
aðar mjög sterk eins og fram kom
í viðtali við yfirdýralækni hér í
blaðinu í sumar. Þarna gefur lífræni
geirinn mjög gott fordæmi og kom
m.a. fram í umræðum að lífrænir
búskaparhættir væru farnir að hafa
jákvæð áhrif á þá hefðbundnu. Þess
sæi jafnvel stað í vali á rannsóknar-
verkefnum og fjármögnum þeirra,
m.a. úr sjóðum Evrópusambandsins.
Yfirlit allra erinda og
veggspjalda, samtals 1070 að tölu,
voru gefin út fyrir þingið, bæði
í vefútgáfu og prentútgáfu. Þá
verða erindin í heild birt bráðlega
á vefsíðunni www.eaap2013.org,
þar á meðal erindi okkar Jóns
Viðars Jónmundssonar og Emmu
Eyþórsdóttur um forystufé sem er
einstakt á heimsvísu og vekur alltaf
athygli hvar sem frá því er sagt.
Sterk staða
Búfjárræktarsambands Evrópu
Í ársskýrslu forseta sambandsins, dr.
Philippe Chemineau frá Frakklandi
sem nú var að ljúka fyrsta stjórnarári
sínu, kom m.a. fram að betra
jafnvægi er komið á rekstur EAAP
en var um árabil og lögð var fram ný
stefnuyfirlýsing. Raunar mátti greina
hluta þeirrar nýbreytni í Nantes.
Lögð verður aukin áhersla á vandað
val efnis og gæði framsetningar,
reynt að höfða til sem flestra, hvort
sem þeir stunda rannsóknir, kennslu
eða leiðbeiningar, eða, hvort sem
þeir starfa hjá opinberum stofnunum
eða hjá fyrirtækjum af ýmsu tagi.
Mér finnst því sérstök ástæða
til þess að vekja athygli íslenskra
búvísindamanna og dýralækna á
starfseminni sem er raunar mun
víðfeðmari en kemur fram á hinum
árlegu þingum. Forsetinn greindi
m.a. frá blómlegri útgáfustarfsemi
sem sambandið er aðili að, svo sem
hinu virta búvísindariti Animal
auk ritanna Advances in Animal
Biosciences, Animal Frontiers,
allt prentútgáfur, að ógleymdum
fréttabréfinu EAAP Flash-e-News
og vefsíðunni www.eaap.org
Þess ber að geta að næstu
ársþing sambandsins verða haldin í
Kaupmannahöfn 25.-29. ágúst 2014,
í Varsjá 31. ágúst-4. september 2015
og í Belfast 2016, sennilega í lok
ágúst. Nánari upplýsingar um EAAP
veitir undirritaður fúslega og með
glöðu geði.
Ólafur R. Dýrmundsson PhD
Bændasamtökum Íslands
ord@bondi.is, 563-0300/0317
Sunbeam-Oster fjárklippur
Varahlutaþjónusta og sala á fjárklippum.
Startarar, alternatorar,
varahlutaþjónusta
sími. 696-1050 netfang. okspare@simnet.is
Í Frakklandi er lögð mikil áhersla á nýtingu beitilanda við búfjárframleiðslu
og eru um 2/3 nautakjötsins framleid með þeim hætti. Holdakýr í góðum
sumarhaga með grasi, rauðsmára og öðrum gæðagróðri.
Mynd / Institut de l' elevage
Búfjárræktin vistvænni
og sjálfbærari
– Búfjárræktarsamband Evrópu fundaði í Frakklandi Í frönskum sumarhögum. Nautgripir af tveim þeirra fjölmörgu kynja sem til
eru í Frakklandi. Mynd / Institut de l' elevage
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Hafa áhrif um land allt!