Bændablaðið - 19.09.2013, Qupperneq 31

Bændablaðið - 19.09.2013, Qupperneq 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 19. september 2013 Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 Á Íslandi er starfandi Íslenski fjallahjólaklúbburinn. Geir Harðarson er ritari klúbbsins. Hann segir starfsemina mjög fjölbreytta og við allra hæfi. „Við bjóðum upp á skipulagðar ferðir sem taka 1 til 2 daga ásamt ferðum á þriðjudagskvöldum. Þriðjudagsferðirnar eru fjölskylduvænar ferðir um höfuðborgarsvæðið þar sem hjólað er á hraða sem er um 2 km/ klukkustund – og hentar öllum. Oft enda ferðirnar á kaffihúsum þar sem fólk spjallar saman. Eins til tveggja daga ferðirnar eru oft trússferðir þar sem keyrt er út á land, hjólað yfir daginn, gist í sumarbústöðum eða skálum og hjólað einnig seinni daginn. Fjallahjólaklúbburinn er með klúbbhús að Brekkustíg 2, 101 Reykjavík, þar sem við erum með viðgerðaraðstöðu með öllum verkfærum. Þar er opið hús á fimmtudagskvöldum og boðið er upp á fjölbreytta dagskrá, kaffihúsakvöld, viðgerðarnámskeið, myndakvöld og fleira. Stjórn klúbbsins tekur þátt í hagsmunagæslu fyrir hjólreiðafólk í tengslum við ýmis skipulagsmál sem snerta hjólreiðar. Við gefum út Hjólhestinn einu sinni til tvisvar sinnum á ári sem er vandaður bæklingur með ferðasögum, ferðaáætlun og kynningum á vörum og starfsemi klúbbsins. Einnig höldum við úti vandaðri heimasíðu, fjallahjolaklubburinn. is. Um 800 meðlimir eru á félagaskrá klúbbsins. Hægt að hjóla um allt land Í stuttu máli má segja að það sé hægt að hjóla um allt Ísland ef viljinn er fyrir hendi. Hjólreiðakappar hafa birt myndbönd úr ferðum yfir Fimmvörðuháls. Fjallahjólaklúbburinn hefur skipulagt ferðir frá Reykjavík að Úlfljótsvatni, frá Landmannalaugum að Hellu, um Skorradal, ýmsar leiðir á Snæfellsnesi og á Vestfjörðum. Bændur eins og aðrir sem bjóða ferðaþjónustu mega í auknum mæli höfða til hjólreiðafólks og bjóða þjónustu sem það kann að meta; eins og heita potta, aðstöðu til að þvo og þurrka föt, viðgerðaraðstöðu, hjólageymslu inni eða undir þaki og ódýra gistingu. Hjólreiðafólk er góðir viðskiptavinir, ferðast með lítinn farangur og vill kaupa mat og annað á staðnum. Við höfum ekki orðið vör við vandamál við að ferðast um fjöll og firnindi enda fara hjólreiðamenn oftast eftir götum og slóðum utan girðinga. Þeir sem tjalda utan hefðbundinna tjaldsvæða hafa ekki verið í vandræðum að fá leyfi hjá landeigenda enda oftast einungis tjaldað til einnar nætur á hverjum stað. Fengið töluvert af fyrirspurnum frá útlöndum Í gegnum heimasíðuna hefur Fjallahjólaklúbburinn fengið töluvert af fyrirspurnum um hjólaferðalög um Ísland. Einna helst er verið að óska eftir tillögum að leiðum, færð og hæfilegum dagsleiðum. Við höfum reynt að greiða götu fólks eftir bestu getu en við höfum einnig bent fólki á fagaðila í hjólaferðamennsku sem eru að selja hjólreiðaferðir.“ Jón Örn Bergsson í Landmannalaugum. Mynd / Hrönn Harðardóttir Íslenski fjallahjólaklúbburinn: Bændur mega höfða meira til hjólreiðafólks hjólaleigur og dagsferðir á hjólum. Undirrituð telur að hvert hérað landsins hafi góða möguleika á að byggja upp hjólaferðamennsku, bæði fyrir Íslendinga og erlenda ferðamenn. Þó að hægt hafi gengið hefur miklu verið áorkað undanfarin ár og byggir sú sókn hjólaferðamennsku á Íslandi á einstaklingsframtaki áhugamanna um þessi mál. Hjólaferðamennska á Íslandi hefur lítið verið auglýst né hafa ferðaskrifstofur sinnt þessum þætti nægjanlega vel […] Það sem helst vantar eru merktar hjólaleiðir, kort af hjólaleiðum og það að hjólandi gestir finni að þeir séu velkomnir á gisti- og matsölustaði rétt eins og hestaferðamenn og bílaleiguferðamenn,“ segir þar enn fremur. Ferðaþjónustubændur myndi net Í erindi Stefáns leitaðist hann eftir því að svara þeirri spurningu hvort hjólreiðamenn væru áhugaverður markhópur fyrir ferðaþjónustubændur – eins og hann sjálfan. Niðurstaða hans er að við eigum ýmissa kosta völ varðandi auknar tekjur af hjólreiðamönnum. Það muni þó fyrst og fremst ráðast af áhuga ferðaþjónustubænda hvort það lánist. Hann telur vænlegast að bændur starfi saman að því að mynda net sem geri hjólreiðaferðamennsku að spennandi valkosti til lengri tíma litið. „Ég sé fyrir mér að viðkomandi gististaður byggi upp þjónustu, merki og skipuleggi ferðir sem geta verið viðfangsefni fyrir gesti í 3-5 daga á sama næturstað. Þetta geta eftir atvikum verið ferðir með leiðsögn en aðalatriðið er að selja sem flestar nætur samfellt. Með 4-6 svona stöðum umhverfis landið getum við boðið til spennandi Íslandsferðar fyrir velborgandi áhugafólk um hjólreiðar sem vill eyða hluta dagsins í holla hreyfingu og njóta síðan góðra veitinga og dekurs á kvöldin. Ef umfang rekstrar er orðið umtalsvert getur það staðið undir frekari þjónustu eins og kerrum og bílum sem geta flutt hjól og trúss milli staða sé þess þörf. Þá er mótahald af einhverjum toga svo sem hjólareiðakeppnir, hjóladagar/vikur, söfnun hjólaleiða o.s.frv. æskilegt tæki í markaðsstarfi,“ segir Stefán í greinargerð sinni. ÚTBOÐ Veiðifélag Brynjudalsár í Kjós óskar hér með eftir tilboðum í lax- og silungsveiði í Brynjudalsá fyrir árin 2014 til 2017, að báðum árum meðtöldum, samkvæmt meðfylgjandi útboðs- skilmálum og fyrirliggjandi upplýsingum. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Bændasamtaka Íslands, Bændahöllinni við Hagatorg, sími 563-0300. Þeir sem óska eftir að fá útboðsgögnin send á rafræni formi snúi sér til Guðbrands Brynjúlfssonar, netfang buvangur@emax.is s. 844-0429/437-1817. Tilboðum skal skila til formanns Veiðifélags Brynjudalsár, Lúthers Ástvaldssonar, Þrándarstöðum, 276 Mosfellsbæ, merkt Útboð v/ Brynjudalsár. Frestur til að skila tilboði rennur út mánudaginn 7. október 2013 kl. 14.00. Tilboðin verða opnuð fimmtudaginn 10. október, kl. 14.00 í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska, á heimili formanns veiðifélagsins að Þrándarstöðum í Brynjudal. F.h. Veiðifélags Brynjudalsár, Lúther Ástvaldsson, formaður Mest seldu jarðvarmadælurnar á Íslandi Thermia varmadælur loft í vatn og vatn í vatn (jarðvarmadælur). Hafðu samband og kynntu þér mögulegan orkusparnað með varmadælu. Bjóðum fría ráðgjöf og útreikninga um mögulegan orkusparnað. Vertu velkominn í hóp ánægðra viðskipta- vina, við bjóðum þér að hafa samband við okkar viðskiptavini til þess að kynna þér gæði og þjónustu okkar. Thermia fagnar 90 ára afmæli í ár og er í eigu Danfoss. Á R A Smiðjuvegur 70 - 200 Kópavogur www.verklagnir.is - info@verklagnir.is Styrkir til jarðræktar og hreinsunar affallsskurða Bændasamtök Íslands auglýsa eftir umsóknum um styrki til jarðræktar og hreinsunar affallsskurða samkvæmt reglum nr. 707/2013. Reglurnar eru aðgengilegar á www.bondi.is. Styrkhæf er ræktun grass, korntegunda til dýrafóðurs og manneldis, ræktunar olíujurta, þar með talin til lífdíselolíu- framleiðslu enda sé hratið nýtt til fóðurs, ræktun grænfóðurs til beitar og uppskeru á því ári sem uppskorið er. Upp- skera er kvöð, sjá nánar í reglum. Samkvæmt ákvæði til bráðabrigða er uppskera ekki kvöð þegar um er að ræða endurræktun vegna kals vorið 2013. Einnig eru veittir styrkir til hreinsunar stórra affallsskurða sem taka við vatni af stóru vatnasvæði. Umsóknarfrestur er til 20. september nk. Sótt er um á sem nálgast má á sömu heimasíðu. Bændasamtök Íslands, Bændahöllinni við Hagatorg, 107 Reykjavík

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.