Bændablaðið - 19.09.2013, Blaðsíða 41

Bændablaðið - 19.09.2013, Blaðsíða 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 19. september 2013 Harðkornadekk voru um árabil framleidd hér á landi en hafa verið framleidd í Evrópu, Bandaríkjunum og í Kanada síðastliðin 15 ár. Hafa þau reynst vel í hvívetna að sögn Helga Geirharðssonar, verkfræðings og talsmanns Harðkornadekkja ehf., sem skoðar nú ásamt félaga sínum Kristni Rúnari Sigurðssyni möguleika á að hefja á ný framleiðslu dekkjanna á Íslandi. Dekkin eru framleidd erlendis samkvæmt einkaleyfi íslenskra frumkvöðla sem gengur út á að hörðum kornum (iðnaðardemöntum) er blandað í allt munstur dekkjanna þegar þau eru sóluð. Virknin varir því allan líftíma dekkjanna. Áætlanir Harðkornadekkja ehf eru að gera tilraun á íslenska markaðnum með dekkjum sem framleidd eru í Svíþjóð og á Ítalíu næstu 2 árin og byggja undir verkefni sem þróast í framleiðslu harðkornadekkja hér á landi. Voru framleidd á Íslandi um árabil Harðkornadekk voru framleidd á Íslandi hjá Sólningu og Gúmmívinnustofunni en hafa verið flutt til landsins frá Evrópu og Bandaríkjunum undanfarin ár þar sem þau eru framleidd samkvæmt íslensku einkaleyfi. Að sögn Helga hafa tekjur dekkjaverkstæða komið að stórum hluta frá umskiptingum vor og haust og frá neglingu dekkja. Því hefur markaðssetning harðkornadekkja hérlendis einkennst til þessa af mikilli liðið fyrir andstöðu dekkjaverkstæða við dekk sem nota má allt árið. Segir hann að miklar viðhorfsbreytingar hafa hinsvegar átt sér stað undanfarin misseri, enda fari Reykjavíkurborg opinberlega fram á það við ökumenn að þeir hlífi götum við notkun nagladekkja. Segir hann að reynsla af framleiðslu og sölu harðkornadekkja staðfesti að stór markaður sé fyrir innlenda framleiðslu slíkra dekkja, ef rétt sé á málum haldið. Jafnframt að gæði þessarar framleiðslu séu sambærileg við nýframleiðslu í dag vegna þess búnaðar sem þróaður hefur verið til eftirlits með framleiðslu. Þar nefnir Helgi sérstaklega tölvusjón og gegnumlýsingar enda sé gallatíðni harðkornadekkja sambærileg við ný dekk í dag. Endurnýta notaða hjólbarða Harðkornadekk eru umhverfisvæn þar sem við framleiðslu þeirra eru belgir notaðra hjólbarða endurnýttir. Belgirnir eru langstærsti hluti dekkjanna og eru hjá betri framleiðendum gjarnan framleiddir til að endast fyrir fleiri en eitt slitlag. Við endurnýtingu belgjanna dregur úr myndun úrgangs og flutningar sparast milli landa. Áætlað er að orkusparnaður vegna þessarar endurnýtingar sé allt að 3-9 gallon af jarðefnaeldsneyti á hvert dekk. Það hefur síðan jákvæð áhrif á skuldbindingar okkar Íslendinga gagnvart Kyoto samningnum. Helgi segir að samkvæmt samanburðar rannsóknum í Svíþjóð og Þýskalandi á harðkorna- og nagladekkjum sé virkni dekkjanna sambærileg við flest erfið vetrar- skilyrði. Rannsóknir dr. Haraldar Sigþórssonar umferðarverkfræðings leiða til þeirrar niðurstöðu að nagladekk veiti falskt öryggi. Gatnamálastjóri Reykjavíkurborgar áætlar að beinn kostnaður embættis hans vegna notkunar nagladekkja sé nálægt 300 milljónir kr. á ári. Notkun nagladekkja vegur þyngst (um. 55%) í svifryksmenguninni á höfuðborgar- svæðinu. Svifryksmengunin fór 28 sinnum yfir skilgreind hættumörk í fyrra. Þann 10. febrúar sl. var börnum í ákveðnum leikskólum borgarinnar meinað að fara út undir bert loft vegna svifryksmengunnar,. Samkvæmt rannsóknum í Svíþjóð og Finnlandi deyja fleiri úr öndunar- og hjartasjúkdómum sem rekja má til svifryks en í umferðarslysum. Norðmenn hafa frá árinu 2001 beitt skattaálögum á þá ökumenn sem notast við nagladekk, með þeim árangri að nagladekkjanotkun hefur minnkað til muna. Þessu til viðbótar bendir Helgi á að viðskiptaráðherra hafi sagði í kvöldfréttum RÚV þann 17. febrúar 2010 að takmarka yrði innflutning. Segir Helgi að öllum megi ljóst vera að við verðum að fara eins vel og kostur er með þann gjaldeyri sem við höfum. „Áætlað er að gjaldeyrir að verðmæti hátt í 2 milljarða fari í kaup á innfluttum hjólbörðum árlega. Framleiðsla harðkornadekkja innanlands er því ekki aðeins atvinnuskapandi heldur gæti hún sparað hálfan til einn milljarð í gjaldeyri. Þá kemur framleiðslan með beinum hætti til góða fyrir alla landsmenn þar sem dekkin eru umtalsvert ódýrari en innflutt samkeppnishæf dekk. Þjóðhagsleg hagkvæmni þess að framleiða harðkornadekk hér á landi eru því augljóslega margþætt.“ Harðkornadekk með iðnaðardemöntum – umhverfisvæn íslensk hönnun: Hugmyndir uppi um að hefja á ný framleiðslu harðkornadekkja hérlendis Kristinn Rúnar Sigurðsson og Helgi Geirharðsson verkfræðingur með sýnishorn af harðkornadekkjum. Bækur Sting þú, páll, moka þú, reka! – tuttugasta bók Þórðar Tómassonar er full af fróðleik um landbúnaðarsögu Bókaútgáfan Sæmundur á Selfossi hefur sent frá sér bókina Sýnisbók safnamanns eftir Þórð Tómasson safnvörð í Skógum. Þetta er 20. bók Þórðar og eins og nafnið bendir til helguð safn- munum í Skógum, sögu þeirra og samhengi í listasögu og þjóð- háttum. Stór hluti verksins er helgaður landbúnaðarsögu Íslands en þar býr Skógasafn að því að eiga safngripi af öllu landinu. Miklu skiptir að sá sem hér held- ur á penna hefur sjálfur þekkingu og reynslu af verkháttum með hinum fornu verkfærum og ber saman verklag landshluta og mismunandi gerð verkfæra. Gott dæmi um þetta er kafli Þórðar um pálana: Páll „Páll og reka hafa átt samleið í íslenskum bús hlutum allt frá land- námi. Hlutverkum þeirra er lýst mjög hnitmiðað í gömlu ævintýri: „Sting þú, páll, moka þú, reka.“ Um mann sem kominn var að fótum fram var hægt að segja: „Það er mál til komið að taka pálinn og rekuna.“ Gröfin var nálæg. Séra Matthías Jochumsson orðar þetta skýrt í þýðingu sinni á Hamlet eftir Shakespeare: Reku, pál og hjúp um hold heimtar lífsins gáta. Páll, fullu nafni stungupáll, var alltaf bændasmíði og hélst víða í notkun langt fram á 20. öld. Faðir minn, Tómas Þórðarson (1886– 1976), smíðaði sér og nágrönnum sínum stungupála fram um 1930, gilti einu þótt stálskóflur væru þá fyrir allnokkru komnar til nytja á hverju bóndabýli. Margan kökkinn og margan skánarhnausinn í fjárhúsi tók ég frá páli í æsku. Fornt orðafar bendir til þess að mismunandi gerðir af pálum hafi til verið. Pálstaf áttu sér fjármenn á Norðurlandi. Þeir stafir voru með mjóu pálblaði, vel fallnir til þess að höggva með spor í ísa, jafnvel til að vaka ís svo fénaður næði til vatns. Í ævagamalli bæn sem ég lærði í æsku segir: Með þeim stinna stoðpál sting ég frá mér svell hál. Líklega er þetta sama og pálstafur. Orðið grjótpáll var notað um kraft- mikinn mann: „Hann er grjótpáll fyrir búi.“ Í Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar frá 1772 er mikilsverð teikning af páli gerólíkum pálum 19. og 20. aldar. Pállinn sá er að skafti og blaði gerður úr einu tré og hakið til hliðar við skaftið hefur verið fótstigið. Blaðið er til mestra muna klætt járnþynnu, vafalítið á bæði borð. Þverhalda er efst á skafti. Þetta er stílhreint og fagurt áhald. Í einni af snuddferðum mínum í hið gamla bæjarstæði Stóru-Borgar undir Eyjafjöllum fann ég í brotsári vatna og vinda framan í hólnum pálblað sömu gerðar og hjá Eggerti og Bjarna. Fúi og ryð hafði leikið það illa en lagið leyndi sér ekki. Ég afhenti það Þjóðminjasafninu til varðveislu og meðferðar. Í bók Finns Jónssonar á Kjörseyri, Þjóðhættir og ævisögur frá 19. öld, er teikning af páli talsvert frábrugðnum þeim pálum sem næstir eru í tíma á söfnum eða í einkaeigu. Blaðið er þríhyrnt og stig mjög frábrugðið. Varðveittum pálum svipar mjög saman. Blöðum svipar til þess að vera rétthyrningar, stig ýmist sér- smíðað og rekið upp í skaft með festitanga eða þá hnoðað á blaðið. Á þessu er mikil og kolafrek járn- smíði. Mörg pálblöð voru smíðuð úr járni sem fékkst frá skipsströndum. Blaðið var ýmist rekið upp í skaft eða þá hnoðað utan á það og járnhólkur til styrktar skafti. Tvíhendishald var alltaf ofan á skafti. Lengd pála er nokkuð breytileg en yfirleitt var miðað við það að pállinn væri í um mittishæð á stungumanni er hann hóf verk. Í Byggðasafninu í Skógum hefur einn páll sérstöðu. Hann er kominn frá Suður-Vík í Mýrdal. Skaft er með venjulegum hætti en í stað blaðs er þríhyrnd járngrind með bjúglaga skera neðst, 29 cm fyrir egg. Verklegur stiggaddur er hnoðaður tryggilega utan á skaft. Orðið pálstunga var til við- miðunar í mæltu máli. Það er sú þykkt jarðvegs sem pálblað tekur þegar því er stungið beint niður. Við upptöku mós (svarðar) í mógröfum var um það rætt hve margar pálstungur væru niður á móinn og eins hve margar pálstungur af mó fengjust úr gröf. Pálstunga samsvarar um 24 cm. Skemmtilegur orðaleikur um áhaldið pál og mannsnafnið Pál er í gömlum húsgangi: Páll einn beiddi Pál um pál, Páll því neita réði. Páll kvaðst engan eiga pál, utan pál sem léði. Barkrókar og barnaleikföng Önnur verkfæri sem Þórður segir hér frá eru ókunnari nútímafólki eins og barkrókarnir en einum þeim síðustu þeirra náði Þórður að bjarga frá eyðileggingu árið 1938. Barkrókar voru til flutnings á kekkj- um og hnausum til vegghleðslu en hurfu með tilkomu hestvagna um aldamótin 1900. Barkrókarnir voru silaðir upp á reiðhest „með ólasila ristum úr smokki framan af hálsi stórgrips“. Tveir til þrír kekkir voru lagðir á hvorn barkrók og aðrir tveir lagðir á klakkana. Þá eru heimildir Þórðar um leikföng fyrri tíðar ekki síður merkilegur kafli í sögu landbúnaðar- þjóðar. Fornleifar úr landi Stóru Borgar sýna að frá fornu fari hafa börn haft til leikja litla klyfbera og einn slíkan er að finna í Skógasafni. Kennslubók í hvítagaldri Í fjölmörgum heimildum fyrri tíðar er getið um hnúta þá sem höfðu yfirnáttúrulega þýðingu þá riðnir voru og gátu gagnast til að leysa kvenkind frá burði, lækna undirflog og bægðu öllu illu frá. Eggert Ólafsson getur þessa í Ferðabók sinni frá 18. öld og sömuleiðis Jónas frá Hrafnagili í riti sínu Íslenskir þjóðhættir. Hvorugur hefur þó á færi að skýra frá því hvernig hnútar þessir eru gerðir. „Allar prentaðar heimildir um sigurlykkju og sigurhnút eiga það sameiginlegt að skilja við lesandann með öllu ófróðan um verklag við hnýtingu og eru að öðru nokkuð þokukenndar. Fram undir þetta hafa verið ofar moldu konur sem kunnu á þessu glögg skil. Þrjár konur úr Vestur- Skaftafellssýslu hafa orðið mér notadrýgstar með fróðleik á þessu sviði, þær Ragnhildur Guðbrandsdóttir frá Hraunbóli á Brunasandi (f. 1878–1980), frænka hennar, Pálína Stefánsdóttir á Dalshöfða í Fljótshverfi (1887– 1984) og Elín Runólfsdóttir frá Ketilsstöðum í Mýrdal (1873– 1969), en hana hitti ég háaldraða í Unnarholti í Hrunamannahreppi. Ragnhildur kenndi mér að hnýta sigurlykkju og sigurhnút, og hét verkið, er notað var til lækninga, á hennar máli að ríða á. Heimildarkonum mínum bar saman um að við verkið hefðu jafnan verið notuð sokkabönd kvenna. Hef ég ástæðu til að ætla út frá öðru hlutverki sokkabanda í samskiptum kvenna og dýra, að þau hafi átt að flytja nokkra orku eða magn frá þeim, sem bar, til þess sem var hjálparþurfi. Kynni það þá að vera að nokkru tengt skreytingu eða áletrunum hinna fornu fótofnu eða spjaldofnu banda.“ Þórður skýrir síðan frá hnútum þessum í lausu máli en með fylgja vandaðar ljósmyndir Guðmundar Ingólfssonar ljósmyndara þannig að kennslan í þessari gömlu galdrakúnst er svo ítarleg sem frekast verður kosið. Klyfberi, barnaleikfang í Skógasafni. Mynd / Óli Haukur Valtýsson

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.