Bændablaðið - 19.09.2013, Blaðsíða 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 19. september 2013
Varðveisla erfðaauðlinda er mikið hagsmunamál
ef tryggja á fæðuöryggi
Dagana 24.-25. ágúst sl. fundaði
ERFP, sem er samstarfs vettvangur
Evrópuþjóða um varðveislu
erfðaefnis búfjár, í borginni
Nantes í Frakklandi. Þessi
starfsemi hófst fyrir nær tveim
áratugum í kjölfar málþings í Prag
í Tékklandi í tengslum við ársþing
Búfjárræktarsambands Evrópu
(EAAP) í ágúst 1995. Að því
málþingi stóðu EAAP, sem hafði
lagt grunn að Evrópusamstarfi um
þessi efni, og FAO, Matvæla- og
landbúnaðarstofnun Sameinuðu
þjóðanna, en hún var þá að
hleypa af stað alþjóðlegu átaki í
kjölfar Ríósáttmálans 1992 til að
koma í veg fyrir frekari eyðingu
erfðaefnis.
Fæðuöryggi – fjölbreytileiki
erfðaefnis
Þegar verið er að fjalla um ofangreint
Evrópusamstarf, sem ekki tengist
starfsemi Evrópusambandsins fremur
en Búfjárræktarsamband Evrópu, er
vert að hafa í huga að þegar það var
að mótast var komið á ágætt samstarf
meðal Norðurlandaþjóða í gegnum
Norræna genbankann með dr. Stefán
Aðalsteinsson o.fl. í broddi fylkingar
af hálfu íslenskrar búfjárræktar. Sá
sem þetta ritar var með Stefáni á
fundinum í Prag, hefur frá upphafi
verið tengiliður Íslands við ERFP
og hefur setið flesta ársfundina. Um
50 þjóðir eru í samstarfinu, þar af
28 aðildarlönd ESB og að jafnaði
mæta um 40 fulltrúar á ársfundina.
Þannig var mætingin í Nantes. Auk
þess koma alltaf fulltrúar frá FAO
en segja má að ERFP hafi tekið við
þeirri starfsemi sem EAAP lagði
grunninn að allt frá því upp úr 1980.
Það sem mér finnst mesti styrkleiki
ERFP er samhugur og einlægur
ásetningur samstillts hóps fólks að
koma með öllum tiltækum ráðum
og aðferðum í veg fyrir eyðingu
erfðaefnis búfjár í samræmi við
Ríósáttmálann frá 1992, í prýðilegu
samstarfi við FAO sem er að reyna
að stuðla að samskonar samstarfi í
öðrum heimsálfum. Allt er þetta starf
byggt á vísindalegum grundvelli.
Þótt flestir fulltrúar hinna 50 þjóða
séu erfða- eða kynbótafræðingar
eru þar t.d. starfsmenn ráðuneyta og
samtaka bænda eða ræktunarfélaga
sem annast skráningu búfjárkynja
og varðveislu sæðisbanka, svo að
dæmi séu tekin. En tilgangurinn er
öllum ljós, varðveisla erfðaefnis
búfjár sem veigamikillar undirstöðu
fæðuöryggis í heiminum.
Starfsemi ERFP er að eflast
Á fyrstu árunum var starfið ekki
mjög markvisst en það hefur breyst.
Frakkar og síðar Grikkir héldu
utanum skrifstofuhald ERFP en nú
er skrifstofan í Bonn í Þýskalandi
og Catherine Marguerat-König frá
Sviss er formaður stjórnar. Innan
ERFP samstarfsins hefur m.a. verið
unnið markvisst að uppsetningu
skráningarkerfa fyrir öll búfjárkyn
í hverju landi (EFABISNet) og fyrir
allt sæði og annað erfðaefni sem
geymt er fryst í hinum ýmsu löndum
(CryoWEB). Bændasamtök Íslands
hafa verið virk í báðum kerfunum
og annast Tölvudeild BÍ vistun
þeirra. Um þessi efni höfum við
átt ágætt samstarf við Erfðanefnd
landbúnaðarins, Landbúnaðarháskóla
Íslands, Tilraunastöð Háskóla Íslands
í meinafræði á Keldum o.fl. Tveir
sérfræðingar ERFP, þau dr. Zhivko
Duchev og dr. Beate Berger, hafa
veitt okkur ómetanlega aðstoð við
þessi verkefni og þess má geta að
vorið 2009 skipulögðum við málþing
fyrir ERFP hér á landi um varðveislu
og nýtingu erfðaefnis búfjár. Enn sem
komið er hafa aðeins sum aðildarlönd
ERFP komið upp báðum þessum
kerfum en það stendur til bóta og
er Ísland reyndar eina landið sem
er komið með öll sín búfjárkyn inn
í bæði kerfin. Farið er að ræða um
genbanka búfjár fyrir alla Evrópu
(EUGENA). Landnámskynin
okkar eru dýrmætur fjársjóður,
erfðaauðlindir með mikla fjölbreytni
sem okkur er skylt að varðveita fyrir
komandi kynslóðir. Þar hefur Ísland
verulega sérstöðu og höfum við
m.a. komið þeim skilaboðum vel á
framfæri í samskiptum við EFTA og
ESB, einkum frá og með 2009.
Fundurinn í Nantes
ERFP hefur frá upphafi beitt sér fyrir
margvíslegum rannsóknarverkefn-
um, annað hvort í einstökum löndum,
eða þó öllu frekar í tveim eða fleiri
löndum þegar um búfjárkyn er að
ræða sem hafa haslað sér völl utan
upprunalandsins. Slíkt er algengt
í Mið-Evrópu og á Balkanskaga,
svo að dæmi séu tekin. Mörg þess-
ara kynja eru orðin fágæt, jafnvel
í útrýmingarhættu, og þá er reynt
að snúa vörn í sókn. Undirstaðan
er skráning og rannsóknir á eigin-
leikum þeirra, bæði í hreinrækt og
blendingsrækt. Þessi verkefni eru
fjármögnuð með styrkjum frá við-
komandi löndum og ESB og eru
niðurstöður gjarnan kynntar á árs-
fundunum, jafnvel á prenti. Nú var
t.d. lögð fram vönduð skýrsla um
Busha nautgripi sem finnast nú í
átta löndum á Balkanskaga. Á meðal
verkefna sem áætlað er að ljúki í árs-
lok 2013 er viðamikil skýrsla um
stofnverndarstyrki til bænda sem
halda sjaldgæf búfjárkyn og stofna.
Verkefni þetta nefnist SUBSIBREED
og er það gott dæmi um upplýsinga-
og gagnasöfnun sem við, tengiliðir
hinna ýmsu þjóða í ERFP sam-
starfinu, tökum þátt í. Á meðal
fróðlegra erinda á Nantesfundinum
var umfjöllun um áhættuþætti sem
geta leitt til fækkunar búfjárkynja og
eyðingar erfðaefnis. Þar getur m.a.
komið við sögu samkeppni við inn-
flutt, erlend búfjárkyn.
Nýting er besta verndin – þróun
sérafurða
Í lok ERFP í Nantes var þátttakend-
um boðið til ræktunarfélags Maine-
Anjou nautgripakynsins í Domaine
des Rues í gróðursælum sveitum
nokkuð austan við borgina. Þar er
mikil maísrækt og á graslendi ber
mest á Charolais nautgripum til kjöt-
framleiðslu. Þarna er fremur þurrt,
rignir aðeins um 700 mm á ári, og var
um 18-20oC hiti þegar við komum
þangað. Félagið, sem stofnað var
árið 1908, hefur aðsetur í gömlum og
myndarlegum byggingum hlöðnum
úr steini og er þar mjög góð aðstaða
til að taka á móti fólki og kynna
afurðir. Nautgripakynið, hið rauð-
skjöldótta, hyrnda Maine-Anjou er
í raun tvínytjakyn en er nú eingöngu
nýtt til kjötframleiðslu. Mjög mikið
hefur fækkað í stofninum og sá
ræktunarfélagið fram á hrun og tap
verðmæts erfðaefnis ef ekkert yrði
að gert. Vörn var snúið í sókn um
aldamótin og eru nú 210 bændur í
átakinu, allir í héraðinu, og geta þeir
valið á milli fjögurra sláturhúsa. Frá
2002-2010 jókst sérframleiðslan úr
650 í 2000 skrokka. Kjötið er látið
hanga í minnst 10 daga eftir slátrun,
20% eru seld beint frá býli og verðið
er að jafnaði 15% hærra en almennt
gerist. Það var fróðlegt að heyra
framkvæmdastjórann, Albéric Valais,
segja okkur af mikilli innlifun hvern-
ig félagið hefur unnið markvisst að
gæða- og sölumálum. Mikill tími og
orka hefur farið í að koma á gæða-
stýringarkerfinu og öflun viðurkenn-
inga á sérafurð sem er upprunamerkt
bæði héraði og býli. Nú hefur vöru-
merkið þeirra hlotið viðurkenningu
ESB og var Albéric ekki í nokkrum
vafa að með þessu fengjust betri
tengsl við neytendur. Líkt og gerist
í lífrænum búskap tryggja þeir að
ekki sé notað erfðabreytt efni við
fóðrun og ekkert er því til fyrirstöðu
að einstakir framleiðendur afli sér
lífrænnar vottunar. Þeir eru í sam-
vinnu við Slow Food hreyfinguna
og vissulega bragðaðist kjötið vel.
Við fengum að sjá 60 ungnaut í sex
mánaða staðlaðri eldistilraun sem er
liður í kynbótaúrvali en þau bestu
fara annað hvort á sæðingastöðvar
eða til einstakra bænda í félaginu
þar sem þau ganga með kúnum og
kálfunum á beitilandinu. Þarna er
greinilega verið að bjarga búfjár-
kyni með skynsamlegri og arðbærri
nýtingu.
ERFP hefur vefsíðuna www.rfp-
europe.org en einnig er velkomið
að hafa samband við undirritaðan
ef frekari upplýsinga er óskað.
Ólafur R. Dýrmundsson PhD
Bændasamtökum Íslands
ord@bondi.is, 567-0300/317
Kálfar af Busha-nautgripastofninum á Balkanskaga sem nýtur nú verndar í
samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar. Mynd / ERFP
Ungnaut af franska nautgripakyninu Maine-Anjou í eldistilraun til að kanna
vöxt og þroska. Mynd / ÓRD
„Holdanautafjölskylda", naut, kýr og kálfar af franska nautgripakyninu Maine-
Anjou, en unnið er markvisst að verndun þess með sölu upprunamerktra
og gæðastýrðra sérafurða. Mynd / S. Faguier
– í héraði hjá þér –
FB Selfossi 570 9840
FB Hvolsvelli 570 9850
FB Egilsstöðum 570 9860
Fóðurblandan Korngörðum 12 104 Reykjavík 570 9800 Fax 570 9801 fodur@fodur.is
Gæða júgursmyrsl
4l fötur á kynningartilboði
Sendum um allt land - www.fodur.is
Sérstaklega gott júgursmyrsl með og án joðs.
Mýkir og verndar bæði júgur og spena.
GISTIHEIMILIÐ
BRENNA Á HELLU
Til sölu er gistiheimilið Brenna á Hellu. Það er rekið í tveimur
húsum við Þrúðvang nr. 35 og 37, heildarstærð þeirra er 785
fm. Húsin eru staðsett á bökkum Ytri-Rangár í elsta hluta
Helluþorps og úr þeim er fallegt útsýni út á ána. Óskað er
eftir tilboðum í eignirnar. Nánari upplýsingar og myndir á www.
fannberg.is og á skrifstofu.
FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. Sími: 487-5028
Guðmundur Einarsson lögg. fasteignasali
Jón Bergþór Hrafnsson viðskiptafræðingur