Bændablaðið - 19.09.2013, Síða 35

Bændablaðið - 19.09.2013, Síða 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 19. september 2013 Varðveisla erfðaauðlinda er mikið hagsmunamál ef tryggja á fæðuöryggi Dagana 24.-25. ágúst sl. fundaði ERFP, sem er samstarfs vettvangur Evrópuþjóða um varðveislu erfðaefnis búfjár, í borginni Nantes í Frakklandi. Þessi starfsemi hófst fyrir nær tveim áratugum í kjölfar málþings í Prag í Tékklandi í tengslum við ársþing Búfjárræktarsambands Evrópu (EAAP) í ágúst 1995. Að því málþingi stóðu EAAP, sem hafði lagt grunn að Evrópusamstarfi um þessi efni, og FAO, Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna, en hún var þá að hleypa af stað alþjóðlegu átaki í kjölfar Ríósáttmálans 1992 til að koma í veg fyrir frekari eyðingu erfðaefnis. Fæðuöryggi – fjölbreytileiki erfðaefnis Þegar verið er að fjalla um ofangreint Evrópusamstarf, sem ekki tengist starfsemi Evrópusambandsins fremur en Búfjárræktarsamband Evrópu, er vert að hafa í huga að þegar það var að mótast var komið á ágætt samstarf meðal Norðurlandaþjóða í gegnum Norræna genbankann með dr. Stefán Aðalsteinsson o.fl. í broddi fylkingar af hálfu íslenskrar búfjárræktar. Sá sem þetta ritar var með Stefáni á fundinum í Prag, hefur frá upphafi verið tengiliður Íslands við ERFP og hefur setið flesta ársfundina. Um 50 þjóðir eru í samstarfinu, þar af 28 aðildarlönd ESB og að jafnaði mæta um 40 fulltrúar á ársfundina. Þannig var mætingin í Nantes. Auk þess koma alltaf fulltrúar frá FAO en segja má að ERFP hafi tekið við þeirri starfsemi sem EAAP lagði grunninn að allt frá því upp úr 1980. Það sem mér finnst mesti styrkleiki ERFP er samhugur og einlægur ásetningur samstillts hóps fólks að koma með öllum tiltækum ráðum og aðferðum í veg fyrir eyðingu erfðaefnis búfjár í samræmi við Ríósáttmálann frá 1992, í prýðilegu samstarfi við FAO sem er að reyna að stuðla að samskonar samstarfi í öðrum heimsálfum. Allt er þetta starf byggt á vísindalegum grundvelli. Þótt flestir fulltrúar hinna 50 þjóða séu erfða- eða kynbótafræðingar eru þar t.d. starfsmenn ráðuneyta og samtaka bænda eða ræktunarfélaga sem annast skráningu búfjárkynja og varðveislu sæðisbanka, svo að dæmi séu tekin. En tilgangurinn er öllum ljós, varðveisla erfðaefnis búfjár sem veigamikillar undirstöðu fæðuöryggis í heiminum. Starfsemi ERFP er að eflast Á fyrstu árunum var starfið ekki mjög markvisst en það hefur breyst. Frakkar og síðar Grikkir héldu utanum skrifstofuhald ERFP en nú er skrifstofan í Bonn í Þýskalandi og Catherine Marguerat-König frá Sviss er formaður stjórnar. Innan ERFP samstarfsins hefur m.a. verið unnið markvisst að uppsetningu skráningarkerfa fyrir öll búfjárkyn í hverju landi (EFABISNet) og fyrir allt sæði og annað erfðaefni sem geymt er fryst í hinum ýmsu löndum (CryoWEB). Bændasamtök Íslands hafa verið virk í báðum kerfunum og annast Tölvudeild BÍ vistun þeirra. Um þessi efni höfum við átt ágætt samstarf við Erfðanefnd landbúnaðarins, Landbúnaðarháskóla Íslands, Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði á Keldum o.fl. Tveir sérfræðingar ERFP, þau dr. Zhivko Duchev og dr. Beate Berger, hafa veitt okkur ómetanlega aðstoð við þessi verkefni og þess má geta að vorið 2009 skipulögðum við málþing fyrir ERFP hér á landi um varðveislu og nýtingu erfðaefnis búfjár. Enn sem komið er hafa aðeins sum aðildarlönd ERFP komið upp báðum þessum kerfum en það stendur til bóta og er Ísland reyndar eina landið sem er komið með öll sín búfjárkyn inn í bæði kerfin. Farið er að ræða um genbanka búfjár fyrir alla Evrópu (EUGENA). Landnámskynin okkar eru dýrmætur fjársjóður, erfðaauðlindir með mikla fjölbreytni sem okkur er skylt að varðveita fyrir komandi kynslóðir. Þar hefur Ísland verulega sérstöðu og höfum við m.a. komið þeim skilaboðum vel á framfæri í samskiptum við EFTA og ESB, einkum frá og með 2009. Fundurinn í Nantes ERFP hefur frá upphafi beitt sér fyrir margvíslegum rannsóknarverkefn- um, annað hvort í einstökum löndum, eða þó öllu frekar í tveim eða fleiri löndum þegar um búfjárkyn er að ræða sem hafa haslað sér völl utan upprunalandsins. Slíkt er algengt í Mið-Evrópu og á Balkanskaga, svo að dæmi séu tekin. Mörg þess- ara kynja eru orðin fágæt, jafnvel í útrýmingarhættu, og þá er reynt að snúa vörn í sókn. Undirstaðan er skráning og rannsóknir á eigin- leikum þeirra, bæði í hreinrækt og blendingsrækt. Þessi verkefni eru fjármögnuð með styrkjum frá við- komandi löndum og ESB og eru niðurstöður gjarnan kynntar á árs- fundunum, jafnvel á prenti. Nú var t.d. lögð fram vönduð skýrsla um Busha nautgripi sem finnast nú í átta löndum á Balkanskaga. Á meðal verkefna sem áætlað er að ljúki í árs- lok 2013 er viðamikil skýrsla um stofnverndarstyrki til bænda sem halda sjaldgæf búfjárkyn og stofna. Verkefni þetta nefnist SUBSIBREED og er það gott dæmi um upplýsinga- og gagnasöfnun sem við, tengiliðir hinna ýmsu þjóða í ERFP sam- starfinu, tökum þátt í. Á meðal fróðlegra erinda á Nantesfundinum var umfjöllun um áhættuþætti sem geta leitt til fækkunar búfjárkynja og eyðingar erfðaefnis. Þar getur m.a. komið við sögu samkeppni við inn- flutt, erlend búfjárkyn. Nýting er besta verndin – þróun sérafurða Í lok ERFP í Nantes var þátttakend- um boðið til ræktunarfélags Maine- Anjou nautgripakynsins í Domaine des Rues í gróðursælum sveitum nokkuð austan við borgina. Þar er mikil maísrækt og á graslendi ber mest á Charolais nautgripum til kjöt- framleiðslu. Þarna er fremur þurrt, rignir aðeins um 700 mm á ári, og var um 18-20oC hiti þegar við komum þangað. Félagið, sem stofnað var árið 1908, hefur aðsetur í gömlum og myndarlegum byggingum hlöðnum úr steini og er þar mjög góð aðstaða til að taka á móti fólki og kynna afurðir. Nautgripakynið, hið rauð- skjöldótta, hyrnda Maine-Anjou er í raun tvínytjakyn en er nú eingöngu nýtt til kjötframleiðslu. Mjög mikið hefur fækkað í stofninum og sá ræktunarfélagið fram á hrun og tap verðmæts erfðaefnis ef ekkert yrði að gert. Vörn var snúið í sókn um aldamótin og eru nú 210 bændur í átakinu, allir í héraðinu, og geta þeir valið á milli fjögurra sláturhúsa. Frá 2002-2010 jókst sérframleiðslan úr 650 í 2000 skrokka. Kjötið er látið hanga í minnst 10 daga eftir slátrun, 20% eru seld beint frá býli og verðið er að jafnaði 15% hærra en almennt gerist. Það var fróðlegt að heyra framkvæmdastjórann, Albéric Valais, segja okkur af mikilli innlifun hvern- ig félagið hefur unnið markvisst að gæða- og sölumálum. Mikill tími og orka hefur farið í að koma á gæða- stýringarkerfinu og öflun viðurkenn- inga á sérafurð sem er upprunamerkt bæði héraði og býli. Nú hefur vöru- merkið þeirra hlotið viðurkenningu ESB og var Albéric ekki í nokkrum vafa að með þessu fengjust betri tengsl við neytendur. Líkt og gerist í lífrænum búskap tryggja þeir að ekki sé notað erfðabreytt efni við fóðrun og ekkert er því til fyrirstöðu að einstakir framleiðendur afli sér lífrænnar vottunar. Þeir eru í sam- vinnu við Slow Food hreyfinguna og vissulega bragðaðist kjötið vel. Við fengum að sjá 60 ungnaut í sex mánaða staðlaðri eldistilraun sem er liður í kynbótaúrvali en þau bestu fara annað hvort á sæðingastöðvar eða til einstakra bænda í félaginu þar sem þau ganga með kúnum og kálfunum á beitilandinu. Þarna er greinilega verið að bjarga búfjár- kyni með skynsamlegri og arðbærri nýtingu. ERFP hefur vefsíðuna www.rfp- europe.org en einnig er velkomið að hafa samband við undirritaðan ef frekari upplýsinga er óskað. Ólafur R. Dýrmundsson PhD Bændasamtökum Íslands ord@bondi.is, 567-0300/317 Kálfar af Busha-nautgripastofninum á Balkanskaga sem nýtur nú verndar í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar. Mynd / ERFP Ungnaut af franska nautgripakyninu Maine-Anjou í eldistilraun til að kanna vöxt og þroska. Mynd / ÓRD „Holdanautafjölskylda", naut, kýr og kálfar af franska nautgripakyninu Maine- Anjou, en unnið er markvisst að verndun þess með sölu upprunamerktra og gæðastýrðra sérafurða. Mynd / S. Faguier – í héraði hjá þér – FB Selfossi 570 9840 FB Hvolsvelli 570 9850 FB Egilsstöðum 570 9860 Fóðurblandan Korngörðum 12 104 Reykjavík 570 9800 Fax 570 9801 fodur@fodur.is Gæða júgursmyrsl 4l fötur á kynningartilboði Sendum um allt land - www.fodur.is Sérstaklega gott júgursmyrsl með og án joðs. Mýkir og verndar bæði júgur og spena. GISTIHEIMILIÐ BRENNA Á HELLU Til sölu er gistiheimilið Brenna á Hellu. Það er rekið í tveimur húsum við Þrúðvang nr. 35 og 37, heildarstærð þeirra er 785 fm. Húsin eru staðsett á bökkum Ytri-Rangár í elsta hluta Helluþorps og úr þeim er fallegt útsýni út á ána. Óskað er eftir tilboðum í eignirnar. Nánari upplýsingar og myndir á www. fannberg.is og á skrifstofu. FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. Sími: 487-5028 Guðmundur Einarsson lögg. fasteignasali Jón Bergþór Hrafnsson viðskiptafræðingur

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.