Læknablaðið - 01.10.1968, Blaðsíða 31
LÆKNABLAÐIÐ
197
Einkenni
Ekki sé ég ástæðu til að skrifa langt mál um einkenni við
leghálskrabbamein, þar eð þau eru læknum svo vel kunn. Eins
og áður getur, virðist leghálskrabbameinið hafa langt forsligs-
(preinvasiv) skeið, þegar breytingin er eingöngu bundin við
slímhúðina. Á þessu tímahili og jafnvel lengi i byrjun hins ífar-
andi vaxtartíma æxlisins er sjúkdómurinn einkennalaus (og er
það ótrúlegt, hve sjúkdóniurinn getur verið kominn á hátt stig,
án þess að einkenna verði vart).
Fyrsta einkennið er venjulegast blóðlát (metrorrhagia), þ. e.
a. s. milliblæðing, blóðlituð útferð eða snertiblæðing, og þá oftast
sem blæðing við samfarir og blæðing við hægðir eða áreynslu.
Blæðing í einhverri mynd er fyrsta einkenni í 70% af tilfellun-
um. Útferð er sem fyrsta einkenni í 20% tilfellanna. Hún er i
fyrstu gul eða gulgræn, en verður oftast brúnleit vegna hlæð-
ingar, og þegar frá líður illa lyktandi, þar sem dauðar vefja-
leifar eru hið ákjósanlegasta æti fyrir margs konar gerlagróður.
Verkir og bjúgmyndun á fótum koma ekki fram, fyrr en sjúk-
dómurinn er kominn langt á veg.
Sjúkdómsgreining er reist á sjúkrasögu með einhverjum áður-
nefndra einkenna og almennri og innri skoðun. Auðvelt er að
þekkja leghálskrabbamein, sem komið er á liátt stig. En við-
leitni okkar á vitanlega að miðast við það, að greina megi sjúk-
dóminn, áður en kominn er sýnilegur æxlisvöxtur. Þau hjálpar-
tæki, sem við höfum til þeirra hluta, eru fyrst og fremst frumu-
rannsóknir og svo í öðru lagi Schillers-])róf og kolposkopia. Hin
endanlcga greining er hyggð á bitasýni, útskafi og vefjarannsókn.
Meðferð
Söc/ulegt yfirlit. Á siðari liluta nítjándu aldar var fyrst
reynt að lækna leghálskrabbamein með skurðaðgerðum. Freund
framkvæmdi um 1870 fyrsta legnám með kviðarholsskurði
(abdominal hysterectomia) vegna þessa sjúkdóms. 1 lok nitjándu
aldar var með bættum skurðlækningum farið að gera stærri að-
gerðir með betri árangri og minni hættu. Aðallega voru það
þýzkir og austurrískir skurðlæknar, sem urðu brautryðjendur á
))essu sviði. Má í því sambandi einkum nefna Wertheim og
Schauta. En Wertheim lagði grundvöllinn að hinu róttæka leg-
námi (abdominal hysterectomia), þar sem Schauta er talinn upp-
hafsmaður legnáms um leggöng (vaginal hysterectomia). Síðar
hafa hér ýmsir orðið til að leggja hönd á plóginn, og má þar