Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.1981, Page 5

Læknablaðið - 15.03.1981, Page 5
LÆKNABLADIÐ 67 Lárus Helgason ATHUGUN Á TÍÐUM ENDURINNLAGNINGUM SJÚKLINGA Á KLEPPSSPÍTALA INNGANGUR Á prem síðustu áratugum hafa orðið verulegar breytingar á rekstri Kleppsspítalans. Innlagn- ingartíðni hefur margfaldast og dvalartími styst til muna. Tíðni endurinnlagðra sjúklinga hefur aukist prisvar sinnum meir en tíðni nýrra sjúklinga. Gísli Á. Þorsteinsson (3) hefur gert grein fyrir innlagningartíðni spítalans á tímabilinu 1951-1970. Par kemur fram, að árið 1951 voru alls lagðir inn 97 sjúklingar, en 54 þeirra eða tæp 56 % höfðu legið par áður. Árið 1970 voru innlagðir 787 sjúklingar og höfðu 72 % legið par áður. Hlutfall endurinnlagðra sjúkl- inga hefur síðan haldið áfram að hækka. Árið 1976 voru innlagðir 1158 og höfðu 74.2% legið par áður. Árið 1978 voru innlagðir 1402, par af 78.5 % fyrrverandi sjúklingar. Gerðar hafa verið margvíslegar ráðstafanir til þess að draga úr endurinnlagningum. Má þar m.a. nefna nokkra aukningu á dvalar- rúmurn, utan spítalans fyrir langdvalarsjúklin- ga, fjölgun göngudeilda, vaxandi hlutdeild almennrar læknisþjónustu í meðhöndlun og aukna starfsemi félagsmálastofnana. Fjölmiðl- ar hafa einnig stuðlað að aukinni pekkingu og skilningi á vandamálum geðsjúklinga og margpætt starfsemi áhugafólks hefur farið vaxandi. Svipaðar breytingar hafa átt sér stað víða erlendis (12, 10). Rannsóknir á högum og líðan útskrifaðra sjúklinga (1, 5, 14, 2) hafa stuðlað að auknum skilningi á vandamálum þeirra. Nokkurs ósamræmis gætir í nið- urstöðum slíkra rannsókna. Reyndar er oft um ólíkar rannsóknaraðferðir og félagslegar að- stæður að ræða. Hér verður gerð grein fyrir samanburði á ýmsum félagslegum og heilsufarslegum pátt- um sjúklinga, er leggjast inn annars vegar oft eða sjaldan á Kleppsspítalann. Frá Kleppsspítala. Barst ritstjórn 29/10/1980. Sampykkt til birtingar 06/11 1980. AÐFERÐ OG SJÚKLINGAVAL Rannsóknin nær til sjúklinga, er voru lagðir inn á Kleppsspítalann árið 1976. Valdir voru tveir hópar, hópur A og hópur B. Til hóps A töldust þeir, sem aðeins lögðust inn, einu sinni eða oftar, árið 1976. Til hóps B töldust hinsvegar peir er lögðust inn a.m.k. einu sinni á ári 1974-1978. í úrvinnslu voru ekki taldir með peir, er lágu lengur á sjúkrahúsinu en sex mánuði, eitthvert fimm rannsóknaráranna. Einnig var sleppt peim er voru útskrifaðir til eða komu frá langdvalarstofnunum. Ekki voru heldur taldir með peir, er liðu af alchoholismus eða narco- mani og þeir, sem létust fyrir árslok 1978. Rétt er að geta pess, að af sjúklingum er lögðust inn 1976 uppfylltu 163 öll önnur skilyrði til rannsóknarinnar en þau, að peir lögðust inn sum rannsóknarárin, (fleiri en eitt en færri en fimm). í þeirra hópi komu ekki fram nein atriði er gátu haft áhrif á nið- urstöður rannsóknarinnar. Til dæmis fundust ekki meðal peirra fleiri sjúklingar úr dreifbýli en péttbýli eða fleiri karlar en konur, svo að nokkuð sé nefnt. Til athugunar komu pví 225 sjúklingar, eða 19.4 % innlagðra sjúklinga árið 1976, eða 36.9 % að frátöldum sjúklingum er liðu af alchoholismus eða narcomani. Upplýsingar voru fengnar úr sjúkraskýrsl- um spítalans. Einnig var leitað til starfsfólks stofnunarinnar, til heimilislækna sjúklinga og til aðstandenda þeirra. í sumum tilvikum fengust fleiri en ein niðurstaða hjásama sjúkl- ingi, t.d. afstöðu til heimilis, eða ástæðu innlagningar. Pessa gætti nær einvörðungu hjá sjúklingum í hópi B er lögðust oft inn. Pað atriði var skráð, er oftast kom fyrir og reyndist mest áberandi hverju sinni. Upplýsingar um aldur, búsetu og hjúskaparstöðu voru fengnar úr pjóðskrá fyrir árið 1976. Niðurstöður rann- sóknarinnar voru prófaðar tölfræðilega sam- kvamt chi-square aðferð.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.