Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.03.1981, Qupperneq 21

Læknablaðið - 15.03.1981, Qupperneq 21
LÆKNABLAÐIÐ 77 Davíð Gíslason ATVINNUSJÚKDÓMAR VEGNA OFNÆMIS OG ERTINGS í ÖNDUNARFÆRUM Þótt atvinnusjúkdómar hafi vafalítið fylgt mönnunum frá því skipulegir atvinnuvegir tóku að próast, er hugtakið atvinnusjúkdómur nýlegt af nálinni og skipulegar aðgerðir til pess að forðast atvinnusjúkdóma ennpá í mótun. Hér á landi hafa umræður um atvinnu- sjúkdóma aðallega átt sér stað í sambandi við uppbyggingu stóriðju. Hefur áhuginn einkum beinst að mengun andrúmsloftsins utan verk- smiðjuveggjanna, en minni gaumur verið gef- inn að umhverfi starfsfólksins á vinnustað. Áhugi á þeim þætti atvinnusjúkdóma hefur þó mjög farið vaxandi að undanförnu. Mikið skortir á, að fullnægjandi aðstæður séu fyrir hendi hér á landi til þess að rannsaka atvinnu- sjúkdóma, þegar grunur um þá vaknar, og oftast verða einstakir læknar að bjarga málun- um á eigin spýtur án fullnægjandi þekkingar á viðfangsefninu. Ég hef rekist á allstóran hóp sjúklinga, sem á einn eða annan hátt röktu sjúkdómseinkennin til atvinnu sinnar. í sumum lilfellum var um augljóst bráðaofnæmi að ræða og í öðrum tilvikum afleiðingar lungna- sóttar, en lang oftast vakti þó sjúkrasagan grun um ertandi áhrif ryks eða kemískra efna. Ég mun því í greininni rifja upp helstu orsakir og eðli þessara sjúkdómseinkenna eftir því sem best er vitað. Ekki verður hjá því komist að einfalda ýmis atriði, einkum eðli seinna ofnæmissvarana, og engin tilraun verður gerð til þess að gera tæmandi lista yfir orsakir sjúkdómseinkennanna. Orsakir ofnæmis og ertings í öndunarfærum Ofnæmi (allergy) er hugtak, sem oft er misnot- að í daglegu tali. Læknar og almenningur nota hugtakið gjarnan yfir öll veikindi eða óþæg- indi líkamleg eða andleg, sem stafa af einhverju áreyti frá umhverfinu. Með réttu er þess vegna aðeins hægt að tala um ofnæmissjúkdóma, að líkaminn hafi myndað mótefni eða frumumið- lað ónæmi (T frumu ónæmi) fyrir því, sem sjúkdómnum veldur, of mótefnið eða T frumur Frá Vifilsstaðaspítala. Lungnadeild. Greinin barst 07/09/80. Sampykkt til birtingar 01/10/1980. eigi þátt í sjúkdómnum. Venjulega er ofnæm- issjúkdómum skipt í fjóra flokka eftir eðli ofnæmisviðbragðanna. Þeir ofnæmissjúkdóm- ar, sem hér verða til umræðu teljast til flokks I eða III og mun ég því eingöngu gera grein fyrir þessum flokkum. Ofnæmisflokkur I. Bráðaofnæmi (atopic aller- gy) liggur að baki algengustu ofnæmissjúkdóm- um í öndunarfærum, svo sem frjókornaofnæmi og dýraofnæmi. Mótefnavakinn (antigenið) er kallað allergen til aðgreiningar frá mótefna- vökum, sem framkalla aðrar ofnæmissvaran- ir. Mótefnin, sem þátt taka í þessum ofnæmis- viðbrögðum, eru kölluð reagin og tilheyra immunoglobulinum E (IgE). IgE mótefni má Table 1. Occupational respiratory diseases: Type I allergy Occupation Allergen Farmers Hay dust (mites?) Bakers Flour dust Grain handlers Grain dust (Sitophilus granarius?) Veterinarians, animals- and poultry breeders, laboratory workers Animal dander, birds feather, grain dust Carpenters Wood dust (exotic wood) Pharmaceutical industry workers Penicillin, spiramycin, piperazine Food industry workers Papain, pancreatic extracts, castor bean, spice herbs, green coffee bean Detergent industry workers Baccillus subtilis enzymes Printers Vegetable gums (acacia, karaya) Plastics, rubber and resin industry workers Hog trypsin, ethylene, diamine, phthalic anhydride, trimellitic anhydride Metal refining workers Salts of platinum

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.