Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.1982, Síða 5

Læknablaðið - 15.03.1982, Síða 5
LÆKNABLADID 65 Girish Hirlekar, Björn Tryggvason LÁGSKAMMTAMORFÍN TIL AÐ LINA BRÁÐA OG LANGVINNA VERKI FORSPJALL Við pað að borin voru kennsl á ópíumviðtæki í miðtaugakerfi 1977 (1), varð betur ljóst, hvern- ig sársauka er miðlað og einnig verkun ópíum- efna. Segja má, að þetta hafi leitt til bylting- ar í meðferð sjúklinga með bráða og lang- vinna verki. Árið eftir birti síðan Wang (2) niðurstöður sínar um notkun morfíngjafar í skúmshol (intra thecalt) til að lina verki krabbameinssjúklinga. Intra thecal lyfjagjafir eru ekki með öllu hættulausar (9, 10), en gjöf í utanbastsholið (cavum epidurale) sneiðir hjá ýmsum þessum hættum. Leið því ekki á löngu, þar til menn könnuðu möguleika þess (Behar et al) (3) að gefa lága skammta af morfíni í epiduralholið til að lina bráða og langvinna verki. Niðurstöður þeirra vöktu verulegan áhuga, og síðan hefur gjöf deyfilyfja í epidural- holið verið notuð á ýmsum sviðum, t.d. við langvinnum verkjum (3), óviðráðanlegum verkjum (7), fæðingarverkjum (8) og bráðum verkjum í kjölfar aðgerða (17). Frekari rann- sóknir standa nú yfir til að meta notkunargildi hinna mismunandi deyfilyfja, svo sem Pethi- díns, Dilamdyol og Fentanýls. Okkur langar til að skýra frá reynslu okkar á F.S.A. af að gefa lága skammta af morfíni í epiduralholið til að lina bráða og langvinna verki. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐ Alls voru í könnuninni 50 sjúklingar, valdir af hendingu (random), og var helmingurinn karlar. Aldursdreifing var veruleg, frá 18-82 ára, en meðalaldur karla var 43.6 ár og meðal- aldur kvenna 50.8 ár. Könnuninni lauk fyrri hluta árs 1980. Af þessum 50 sjúklingum gengust 20 sjúk- lingar undir almennar handlæknisaðgerðir, en 17 sjúklingar undirgengust réttilækningar (or- Fjórðungssjúkrahúsið Akureyri, Sundsvalls Sjukhus. Barst ritstjórn 12/09/1981. Sampykkt í endanlegu formi 05/01/- 1982 og sent pá 1 prentsmiðju thoþediskar). feir 13 sjúklingar, sem eftir voru þjáðust af mismunandi óþægindum. Hjá þeim sjúklingum, sem búist var við langri efri kviðarholsaðgerð, var settur upp epidural- leggur (kateter) í neðri hluta brjósthryggjar fyrir aðgerð. Þessir sjúklingar fengu síðan venjulega svæfingu með Pancuronium, Fenta- nyl og glaðlofti. Það var síðan ekki fyrr en eftir að þeir voru búnir að jafna sig vel á svæfing- unni og farnir að fá eftiraðgerðarverki (post- op. pain), sem morfín var gefið í epidural- legginn. Hjá öðrum postoperativum sjúkl- ingum var epidural-leggurinn lagður i lumbal- svæði og aðgerðin síðan gerð í venjulegri epiduraldeyfingu. 2 sjúklingar, sem ekki fóru í skurðaðgerð, fengu sitt epidural-morfín gefið á sacralsvæði í einni stungu með fínni nál, stærð 23. Þetta var vegna þess, að þessir 3 sjúklingar voru algerlega utansþítala (ambu- Iant), 2 með langvinna verki (annar vegna slæms þursabits (sciatica) sem afleiðingu brjóskloss í hrygg, hinn hafði verulega slitgigt í báðum mjöðmum), en sá þriðji hafði nýrna- kveisu (renal colic). Skammtarnir, sem notaðir voru af morfíni, voru venjulega 4 mg þynnt í 8 ml af saltvatni. Sjúklingarnir voru síðan undir eftirliti í hálfa klst. eftir gjöf og, ef þeir kvörtuðu ennþá um verk, var bætt við 2 mg af morfíni í epidural-Iegginn, þynnt í 4 ml af saltvatni. Var síðan bætt reglulega við 2 mg, fengju sjúklingar aftur verki, og var það gert þar til könnun lauk að 24-28 klst. liðnum. Verkurinn var síðan metinn á mjög einfald- an hátt. Segðist sjúklingur vera verkjalaus, var það talin algjör deyfing, hefði sjúklingur lítils- háttar verk að lokinni lyfjagjöf, var það talin léleg deyfing. Engin önnur verkjalyf voru gefin meðan á könnuninni stóð, einnig var sneitt hjá allri notkun slævandi lyfja. í 24-26 klst. eftir innspýtingu á morfíni var fylgst nákvæmlega með púls, blóðþrýstingi og öndun, auk þess var fylgst með almennu hátterni. Hverskyns kvart- anir sjúklings og aukaverkanir voru einnig skráðar.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.