Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.1982, Síða 18

Læknablaðið - 15.03.1982, Síða 18
76 LÆKNABLADIÐ Aðalfundur Læknafélags íslands 21.-22. september 1981 FUNDARGERÐ Aðalfundur Læknafélags íslands var haldinn í Domus Medica í Reykjavík dagana 21. og 22. september og hófst kl. 09.00. Formaður L.Í., Þorvaldur Veigar Guð- mundsson, setti fundinn og bauð gesti og fulltrúa velkomna. Gestir fundarins við setn- ingu voru peir Svavar Gestsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, Ólafur Ólafsson, landlæknir, Guðjón Magnússon aðstoðariand- læknir og Björn Önundarson, tryggingayfir- læknir. Heilbrigðisráðherra, Svavar Gestsson, flutti stutt ávarp. Því næst var gengið til dagskrár. Fundar- stjóri var skipaður Örn Smári Arnaldsson og fundarritari Sigurður Örn Hektorsson, báðir fram að hádegisverðarhléi. Skýrslu stjórnar flutti formaður, Þorvaldur Veigar Guðmundsson. í upphafi máls síns minntist hann félaga, er látizt höfðu frá síðasta aðalfundi L.í. Fundarmenn risu úr sætum til að votta hinum látnu félögum virðingu sína. Þá gat formaður þess, að skýrsla stjórnar starfsárið 1980-1981 yrði birt í Læknablaðinu innan skamms. Formaður stiklaði á stóru um efni skýrslunn- ar, sem fylgir fundargerð pessari*). Gat hann þess jafnframt, að henni fylgdi greinargerð frá formanni stjórnar Læknaþjónustunnar, sem þó væri ekki hluti af ársskýrslu stjórnar L.í. Síðan fóru fram umræður um skýrslu stjórnar. Sigurður f>. Guðmundsson taldi tvö atriði, er hann vildi benda á, er Sþyrja ætti um: a. Hvort ritnefnd Læknablaðsins væri að ein- hverju leyti sjálfkrafa skipuð »kerfismönn- um« og átti þá við aðstoðarlandlækni og skólayfirlækni. b. Hvort stjórn L.í. hefði tekið afstpðu til eða kannað framgang og umfjöllun nýrra heil- brigðislaga í Svíþjóð, er varðaði stöðu lækna, sem talin er veikjast mjög með setn- ingu þeirra. *) Birtist i Læknablaðinu 7. tbl. 1981. Þorvaldur Veigar svaraði varðandi Læknablað- ið og upplýsti, að skv. lögum L.í. og L.R. eru félögin bæði útgefendur blaðsins og ráða ritstjóra þess. Ólafur Ólafsson landlæknir, var sammála um, að skipan ritnefndar lyktaði svolítið af mafíu. Guðmundur Oddsson svaraði varðandi stöðu lækna í Svíþjóð, og kvað hann forystu- menn læknasamtakanna þar harðlega hafa mótmælt fyrrnefndum sænskum lögum. Lögin munu ekki hafa verið samþykkt ennþá. Guðjón Magnússon kvað falazt hafa verið eftir sér tii ritstjórnarstarfa af Bjarna Þjóðleifs- syni og Erni Bjarnasyni. Skúli G. Johnsen kvaðst ánægður með umræðuefni aðalfundar L.í. Hann kvað upp- byggingu heiisugæzlustöðva í Reykjavík í samræmi við fyrri yfirlýsingar L.R. Ólafur Ólafsson minnti á tvö mál: a. Álit Jónatans Þórmundssonar (bls. 16 í ársskýrsiu). b. Framhaldsmenntun íslenzkra lækna erlend- is, en á því sviði væru ýmsar þrengingar yfirvofandi, og taldi hann horfur á versn- andi menntun íslenzkra lækna. Halldór Halldórsson kvað marga óánægða með árangur í kjaramálum og benti á, að halda þyrfti almenna fundi, áður en samningar rynnu út hverju sinni. Vigfús Magnússon ræddi nokkuð um Sel- fossmálið svonefnda. Geir Gunnlaugsson taldi upplýsingastreymi læknafélaganna til einstakra lækna of lítið. Viðar Hjartarson skýrði frá gangi mála varðandi orlofsheimili. Reikningar L.í. lagðir fram, áður afhentir fundarmönnum. Reikningar voru samþykktir samhljóða. Tillögur til ályktunar lagðar fram og skipað í starfsnefndir varðandi þær. Mál frá svæðafélögum voru engin. Skýrsla stjórnar Domus Medica flutt af

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.