Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.03.1982, Qupperneq 20

Læknablaðið - 15.03.1982, Qupperneq 20
78 LÆKNABLADID Brynjólfur Ingvarsson lýsti stuðningi við álit meirihluta um orðalag 5. gr. Viðar Hjartarson lýsti einnig stuðningi við meirihlutaálitið um 5. gr. Sigurbjörn Sveinsson gerði fyrirspurn um breytingar á ákvæðum um skyldur um að láta af hendi sjúkraskrár og aðrar heimildir um sjúklinga. »Fær framkvæmdavaldið hér það vald, sem dómstólar hafa nú?« Haukur Pórðarson grínaðist með, að pessi læknalög mættu eins kallast landlæknislög og íaði að pví, að á landlækni væru lagðar full miklar skyldur eða kvaðir. Ólafur Ólafsson, landlæknir, svaraði ýmsum fyrirspurnum og athugasemdum, t.d. í gam- ansömum tón Sigurði B. Porsteinssyni um læknanema í héraði og á ábyrgð landlæknis. Ingimar Sigurðsson svaraði enn og benti m.a. á, að í drögum um læknalög væri afnumin »héraðsskyldan«. Svaraði hann Sigurbirni Sveinssyni játandi. Umræðum slitið kl. 16.30. Fundi framhaldid kl. 16.45 Porvaldur Veigar Guðmundsson kynnti erindi frá landlækni um túlkun á gjaldskrá heilsu- gæzlulækna, hvernig haga beri greiðslu fyrir störf, sem sjúkraliði eða hjúkrunarfræðingur vinna á heilsugæzlustöð. Guðmundur Sigurðsson reifaði málið nánar og lýsti peim skilningi sínum, að gjaldskrá heilsugæzlulækna næði bara yfir vinnu, sem heilsugæzlulæknir framkvæmdi. Hins vegar mætti krefja sjúkling um greiðslu á umbúða- kostnaði, pegar hjúkrunarfræðingur og/eða sjúkraliði ganga frá umbúnaði sára, án pess að læknir komi par nærri. Hann taldi hins vegar vel koma til greina, að heilsugæzlustöðvar fengju heimild til að taka greiðslur fyrir t.d. rannsóknir unnar af meinatækni á rannsókna- stofu stöðvarinnar. Hann taldi, að misræmi væri í pví, að læknar mættu taka greiðslur fyrir störf við lækningar, en ekki við heilsu- gæzlu. Sigurbjörn Sveinsson talaði næstur. Hann taldi, að kjör heilsugæzlulækna hefðu verið rýrð mikið, er felldur var niður réttur peirra til að taka greiðslur fyrir heilsugæzlustörf. Guðjón Magnússon kvað kveikju pessarar umræðu vera kæru frá hjúkrunarfræðingi, sem áður vann á heilsugæzlustöð úti á landi, um að læknar hefðu tekið greiðslur fyrir störf, sem peir unnu ekki, heldur hjúkrunarfræðingur. Undirstrikaði hann pörf á að samræma af- greiðslu pessara mála á hinum ýmu heilsu- gæzlustöðvum. Vigfús Magnússon taldi lækni hafa rétt til að taka greiðslur fyrir störf, sem hjúkrunarfræð- ingur vinnur á heilsugæzlustöð, pví að pau störf væru unnin á ábyrgð læknis, en um störf, sem hjúkrunarfræðingur vinnur í heimahúsum, gegnir öðru máli. Brynjólfur Ingvarsson tróð næst í pontu og taldi heilsugæzlulækni bera jafnt ábyrgð á störfum hjúkrunarfræðings, hvort pau væru unnin á eða utan stöðvar. Geir Gunnlaugsson lýsti líka dæmum um erfiðleika á túlkun gjaldskrár heilsugæzlu- lækna varðandi störf, sem hjúkrunarfræðingur vinnur. Sigurður B. Þorsteinsson taldi, að lækni bæri greiðsla fyrir störf, sem hann bæri ábyrgð á. Halldór Halldórsson varaði við peirri öfund, sem skapaðist hjá samstarfsfólki í garð lækna vegna peirra aukagreiðslna, sem læknar fá og samstarfsfólk oft innheimtir. Vigfús Magnússon benti á, að réttur til að gera ákveðinn hlut væri ekki pað sama og að gera hann. Hann undirstrikaði pó, að greiða ber fyrir ábyrgðina. Guðmundur Sigurðsson taldi viðhorf Hall- dórs á misskilningi byggt. Sagði hann viðhorf Tryggingastofnunar ríkisins til túlkunar gjald- skrár vera pá, að greiða bæri fyrir kontakt, beint eða í síma. Hann taldi petta viðhorf varhugavert. Það bæri að efla heilsugæzlu, en skrifa færri lyfseðla. Björn Önundarson, tryggingayfirlæknir, tók næst til máls og nefndi dæmi um túlkun Tryggingastofnunar ríkisins á gjaldskrá heilsu- gæzlulækna. Honum fannst ekki réttlætanlegt, að læknir, sem sæti á Húsavík eða Akureyri, tæki greiðslu fyrir störf, sem hjúkrunarfræðing- ur ynni á Kópaskeri eða Raufarhöfn. Fundi slitið kl. 17.30. Þriðjudagur 22. sept. 1981 kl. 09.00 Formaður setti fund, skipaði Tryggva Ásmundsson fundarstjóra og Leif N. Dungal fundarritara. A. Kynnt álit starfsnefnda, afgreidsla tiliagna: 1. Tillaga frá L. í. svohljóðandi: »Aðalfundur Læknafélags íslands, haldinn 21. og 22. sept. 1981, felur stjórn félagsins að vinna að pví, að fjármálaráðherra viðurkenni

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.