Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.1982, Síða 22

Læknablaðið - 15.03.1982, Síða 22
80 LÆKNABLADID 2. Tillögur til lagabreytinga frá stjórn L.Í., svohljóðandi: »8. gr., 3. mgr. orðist svo: Stjórnin boðar til aðalfundar með minnst tveggja mánaða fyrir- vara. Eftirtalin gögn skulu send aðildar- félögum minnst einum mánuði fyrir aðaifund: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Tillögur til lagabreytinga. 3. Mál frá svæðafélögum, sem þau óska að leggja fyrir aðalfund. 4. Tillögur stjórnar um stjórnarkjör. Allar tillögur til ályktunar á aðalfundi og tillögur um stjórnarkjör, skulu hafa borizt stjórn L.í. eigi síðar en 7 dögum fyrir fundinn.« »13. gr. í greinina bætist nýr málsliður. Verður 2. ml. þeir einir greiði atkvæði um kjarasamning, sem taka laun skv. honum.« »18. gr„ 3. mgr. orðist svo: Enginn félags- maður má sækja um eða taka við stöðu eða embætti, nema auglýst hafi verið með minnst fjögurra vikna fyrirvara.« Sigurður B. Þorsteinsson tilkynnti, að starfs- nefnd legði til, að tillögurnar yrðu samþykkt- ar óbreyttar. Jafnframt beindi nefndin því til stjórnar L.Í., að efni 18. gr. yrði rækilega kynnt félagsmönnum. Tillögurnar voru samþykktar. 3. Tillaga frá stjórn L.R.: »Aðalfundur L.Í., haldinn í Domus Medica 21. og 22. sept. 1981, skorar á heilbrigðisyfirvöld að gangast fyrir breytingum á lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 57/1978 á þann veg, að læknaráðum sjúkrahúsa og heilsugæzlustöðva sé tryggður fulltrúi í stjórn viðkomandi stofn- unar.« Haukur Þórðarson sagði starfsnefnd styðja tillöguna óbreytta, og var hún síðan samþykkt samhljóða. 4. Tillaga frá stjórn L.Í.: »Aðalfundur L.Í., haldinn 21. og 22. sept. 1981, beinir því enn til læknadeildar, að hún hraði endurskoðun á gildandi reglugerð um veitingu lækningaleyfa og sérfræðileyfa, þannig að henni verði lokið á þessu ári.« Haukur Þórðarson sagði starfsnefnd styðja tillöguna, en benti jafnframt á, að e.t.v. þurfi að bíða endurskoðunar læknalaga, þar eð þær breytingar geti haft veruleg áhrif á þessa reglugerð. Stjórnarmenn L.í. töldu ekki ástæðu til að bíða. Lagabreytingar gætu síðar haft sín áhrif, en það mætti ekki tefja endur- skoðun reglugerðarinnar. Tillagan var síðan borin upp og samþykkt samhljóða. 5. Tillaga frá stjórn L.R. með breytingum starfsnefndar: Starfsnefnd lagði tillöguna fram nokkuð breyt- ta. Guðjón Magnússon skýrði frá störfum stöðunefndar og sagði frá nýju eyðublaði fyrir stöðumsóknir sérfræðinga og yfirlækna. Taldi hann téða tillögu geta valdið hættu á mismun- andi umsögnum læknisfræðilegra aðila, sem veitingavaldið gæti síðan fært sér í nyt. Örn Smári lýsti sig fylgjandi tillögu vinnu- hóps og greindi frá störfum stöðunefndar læknaráðs Borgarspítalans. Tillagan var síðan borin upp og samþykkt samhljóða. »Aðalfundur L.Í., haldinn í Domus Medica 21. og 22. sept. 1981, skorar á heilbrigðisyf- irvöld að gangast fyrir breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 57/1978 á þann veg, að leitað sé umsagnar stjórnar læknaráðs viðkom- andi heilbrigðisstofnunar, þar sem þau starfa skv. lögum, við ráðningu yfirlækna og sérfræð- inga.« 6. Tillaga stjórnar L.R., með breytingum starfsnefndar: Sigurður B. Þorsteinsson las tillögu starfs- nefndar, sem er nokkuð breytt. Örn Smári taldi rétt að halda sér við upphaflegu tillöguna, en breytingartillaga starfsnefndar var síðan borin upp og samþykkt med 6 samhljóða atkvæðum: »Aðalfundur L.Í., haldinn í Domus Medica 21. og 22. sept. 1981, felur stjórn L.í. að beina því til stjórnar Félags íslenzkra heimilislækna, Sérfræðingafélags íslenzkra lækna, Félags ungra lækna og Félags yfirlækna að skipuleggja kerfi tengiliðar við stjórnirnar á hinum ýmsu vinnustöðum. Tengiliðir þessir skulu vera stjórnum til ráðuneytis um öll atriði, er lúta að kjaramálum.« 7. Tillaga frá stjórn L.í. með breytingum starfsnefndar: »Aðalfundur L.í. haldinn í Reykjavík í sept- ember 1982 ályktar að beina því til heilbrigð- isráðherra, að sérfræðiviðurkenning í heimil- islækningum verði gerð að skilyrði fyrir skip- un í stöður heilsugæzlulækna. Við framkvæmd þessa verði gerðar ráðstafanir til að heimil- islæknar, sem komnir eru til starfa við gild- istöku hins nýja ákvæðis, geti aflað sér sérfræðiviðurkenningar í greininni.«

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.