Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.1982, Page 29

Læknablaðið - 15.03.1982, Page 29
LÆKNABLAÐID 85 sus-apar fengu leisimeðferð og súrefnis- prýstingur í sjónu var mældur með rafskaut- um, sem stungið var inn í augun. Sýnt var, að leisimeðferðin minnkar súrefnisnotkun sjónu og eykur súrefnisflutning frá æðahimnu (æðu) til innri hluta sjónu. Priðji kaflinn sýnir, að vitrectomia og lensectomia hafa einnig pau áhrif að auka súrefnisflæði til innri hluta sjónu. Þannig er ljóst, að öll pekkt gagnleg meðferð á »proliferative retinopathium« felur í sér aukið súrefnisflæði til innri hluta sjónu og pað leiðir aftur til minnkaðs æðapans og minni æðaleka og nývaxtar eins og fyrrnefnd tilgáta spáir. Vitrectomia og lensectomia bæta súrefnis- flæði til sjónu, en gera pað á kostnað fremra augnhólfs. Mælingar í köttum sýndu að súrefn- isstyrkur í framhluta augans er lágur eftir vitrectomiu og lensectomiu. Súrefnisskortur leiðir til æðapans í litu og pví spáir tilgátan æðanýmyndun. Æðanýmyndun í litu er*algeng afleiðing vitrectomiu og lensectomiu í sykur- sjúkum, sérstaklega ef sjúklingurinn hefur sjónulos. Fimmti kafli ritgerðarinnar sýnir að kettir, sem hafa sjónulos og glerlík og auga- steinn eru numin brott, fá undantekningal- aust æðanývöxt á litu, rétt eins og tilgátan spáði. Sjónulos eykur enn á súrefnisskort augans og leggst á eitt með vitrectomiu og lensecto- miu að valda súrefnisskorti og æðapani á litu. Mælingar með súrefnisskautum sýndu, að æða og sjóna verða að pola mjög háan súrefn- isprýsting í dýri, sem andar að sér hreinu súrefni. Hinn hái súrefnisprýstingur á vafalaust pátt í sjónu-sjúkdómi fyrirbura, sem fá súrefni aukalega. Einnig er lagt til í sjöunda kafla ritgerðarinnar, að hugsanlega megi meðhönd- la stíflur í arteria centralis retinae með pví að gefa sjúklingi hreint súrefni, sem flæðir inn í sjónu frá æðu. Mælingar á súrefnisnotkun sjónu í Rhesus- öpum sýndu meðal annars að hún notar meira súrefni í myrkri en í ljósi. Þetta kemur e.t.v. spánskt fyrir sjónir, en reyndin er sú að sjónan starfar í myrkri, p.e.a.s. framleiðir prótín, dælir jónum o.s.frv. og efnaskiptin eru minni í ljósi. Adrenalín er talsvert notað í augnlækning- um, en sýnt er í níunda kafla ritgerðarinnar, að pað lækkar súrefnisprýsting í framhluta aug- ans. Ekki er fullljóst, hvort súrefnisskortur á pátt í fylgikvillum adrenalíns í auga. Snertilinsur á glæru valda sömuleiðis súrefn- isskorti í framhluta augans. Mælingar sýndu, að snertilinsa veldur súrefnisskorti í glæru, sem er að nokkru mætt með súrefnisflæði frá glervökva inn í glæru. Ritgerðin liggur frammi á bókasafni Landa- kotsspítala. Örfilmuafrit má fá frá University Microfilms Inc., Ann Arbor, Mich. USA, gegn- um flest bókasöfn. Eintak af ritgerðinni er fáanlegt frá höfundi (box 3802/ÐUMC/Dur- ham N.C.27710/USA). RÁÐSTEFNUR, FUNDIR OG ÞING HÉRLENDIS Adalfundur Læknafélags íslands föstudag og laugardag 25. og 26. júní 1982 í Stykkis- hólmi. Ping norrænna röntgenlækna 9.-12. júní 1982. Setning pingsins verdur í Háskólabíó i, pinghald í Lögbergi og Árnagardi. Norrænt lyflæknaping 14.-16. júní 1982 ad Hótel Loftleidum. Frædslufundir sjúkrahúsanna í Reykjavík vetrarmánuðina: St. Jósefsspítala Landakoti alla laugardaga klukkan 9:15. Fundarstaður: Kennslusalur á 3. hæð. Landspítala alla föstudaga klukkan 13:20. Fundarstaður: Kennslusalur í Hjúkrunarskóla fslands. Borgarspítala alla miðvikudaga kl. 12:30. Fundarstaður: Fundarherbergi á A-3.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.