Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.1982, Blaðsíða 30

Læknablaðið - 15.03.1982, Blaðsíða 30
86 LÆKNABLAÐID FRAMHALDSNÁM í BRETLANDI INNGANGUR Á undanförnum árum hefur orðið vart aukinna erfiðleika á því að komast í sérnám erlendis m.a. í Bandaríkjunum og Bretlandi. Auk hertra inntökuskilyrða í formi skráningaprófa og pessháttar hefur kostnaður við slíkt nám aukist mjög verulega í Bretlandi. Nú er svo komið, að íslenskum iæknum er varla fært lengur að fara í ólaunað framhaldsnám, a.m.k. ekki til lengri tíma. í pví sambandi er pví vert að ráðleggja mönnum eindregið að reyna að komast í launaðar stöður. Varðandi fjárhags- afkomu og aðbúnað er að sjálfsögðu erfitt að alhæfa. Framfærslukostnaður er misjafn, og er t.d. húsnæðiskostnaður mismunandi eftir landshlutum. Það er að líkindum langdýrast að búa í London, en par á móti kemur nokkur uppbót á laun til peirra sem par búa. Á síðustu 1-2 árum hafa orðið verulegar umbætur á launa og kjaramálum breskra lækna, en pó má fullyrða, að þeir séu enn hlutfallslega illa launaðir í samanburði við kollega í norður og vestur Evrópu. Árslaun í »registrar« stöðu eru nokkuð mismunandi, en eru nú sem stendur á bilinu £7-10 þúsund. Þótt fastalaunin séu nokk- uð sæmileg, er yfirvinna hinsvegar mjög illa greidd. Fjölskylda getur yfirleitt lifað sæmi- lega af pessum launum, en pó er líklegt, að margir íslendingar eigi erfitt með að sætta sig við lifnaðarhætti og nægjusemi Breta. Ráðlegt er að sækja aðeins um stöðu á kennslusjúkrahúsi eða stofnun í sama flokki, par sem vinnuálag og námstilhögun m.t.t. undirgreina er best par. Stöðuuppbygging er talsvert ólík pví sem gerist á íslandi. Menn geta byrjað sem »House Officer« (kandidats- ár) en þar á eftir fylgja »Senior House Officer«, »Registrar«, »Senior Registrar« og »Consultant«. Fyrir lækni, sem ekki þekkir breskt sjúkrahúsakerfi, er oft best að byrja í »Senior House Officer« stöðu og reyna eftir hálft ár að komast í »Registrar« stöðu. Lækni með reynslu í greininni kann pó að hæfa »Registrar« staða betur frá upphafi. Yfirleitt er ekki hægt að sækja um »Senior Registrar« stöðu án pess að hafa »Membership« próf í greininni (»FelIowship« í skurðlækningum), sem flestir reyna að taka eftir 2-3 ár í »Registrar« stöðu. Misjafnt er eftir sérgrein- um, hversu erfitt er að komast í bitastæðar stöður. Til dæmis er auðveldara að komast að í öldrunarlækningum geðlækningum og viss- um greinum meinafræði heldur en í klíniskum sérgreinum, sem eru vinsælar meðal breskra unglækna eins og t.d. lyflæknisfræði, enda er samkeppni um stöður í þeirri grein mikil. íslendingur með áhuga á lyflæknisfræði parf að hafa PLAB-próf og fyrri hluta MRCP-prófs til þess að komast í góða »Senior House Officer« stöðu. Líklega er aðeins auðveldara að komast að í skurðlækningum, kvenlækning- um og barnalækningum heldur en í lyflækn- ingum. í skurðlækningum eru t.d. ekki veruleg- ir erfiðleikar á að fá »Senior House Officer« og »Registrar« stöður, en mjög erfitt að fá »Senior Registrar« stöður. Ávallt er mikilvægt að hafa persónuleg sambönd að heiman við útvegun stöðu, og einnig að starfsreynsla að heiman sé metin að verðleikum (deildir á íslandi þurfa þá viðurkenningu viðkomandi »RoyaI College«). Um PLAB-próf og lækningaleyfi Reikna má með, að flestum íslenskum læknum, sem fara til framhaldsnáms í Bretlandi, sé nauðsyn að fá par lækningaleyfi. Til að slíkt fáist verða erlendir læknar að jafnaði að standast sérstakt próf, sem breska læknaráðið (General Medical Council, GMC) heldur. Kall- ast prófið nú »PLAB-test« (professional and linguistic assessment board test), hét áður TRAB. Hér verður fjallað um umsókn um prófið, eðli pess og réttindi pau sem það veitir. Umsókn um PLAB-prófið: Til að fá að sitja PLAB-prófið verður umsækjandi að hafa unn- ið (lágmark) eftir kandidatspróf sem hér segir: a) Eitt ár á bundnum vöktum (resident) á klíniskum deildum kennsluspítala, par af í hæsta lagi einn mánuð á svæfingadeild,

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.