Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.1982, Blaðsíða 34

Læknablaðið - 15.03.1982, Blaðsíða 34
88 LÆKNABLADID Ph.D. gráðu (eða M.D. gráðu, sem einungis breskmenntaðir læknar geta tekið og svipar til dr. med. gráðu á Norðurlöndum). Ph.D. nem- endur hafa einn eða fleiri leiðbeinendur (su- pervisor) og fá sjaldnast tækniaðstoð, p.e. menn vinna oftast alla tæknivinnu sjálfir, en til eru pó undantekningar frá pessari meginreglu. Kosturinn við petta fyrirkomulag er sá, að menn verða tæknilega sjálfbjarga og eiga oftast auðvelt með að setja upp rannsóknir sínar á öðrum stað, kannski í öðru landi. Gallinn er sá, að tími til lestrar, skrifta og úrvinnslu gagna er mun minni heldur en á Norðurlöndum, par sem tækniaðstoð er oftast veitt. Erfitt er að fjármagna dvöl í Bretlandi við rannsóknarstörf af pessu tagi pví Bretar líta á Ph. D. nemanda sem hvern annan stúdent, og eru peir jafnan launalausir (nema peir sinni öðru starfi, en pá tekur vinnan við verkefnið lengri tíma en 3-4 ár). Erlendir Ph. D. nemend- ur geta yfirleitt ekki sótt um breska styrki, en nokkrar undantekningar eru frá pví (British Council t.d.), og pá er jafnan geysihörð sam- keppni. Auk pess að vera launalausir, purfa Ph.D. nemendur að greiða skólagjöld, sem nema nú a.m.k. £3.600 á ári. Við ráðleggjum ungum læknum, sem ætla beint í vísindarann- sóknir, að leita fyrir sér í mörgum löndum áður en lagt er af stað, pví möguleikar á styrkjum eða launum kunna að vera betri t.d. í Bandaríkjunum, á Norðurlöndum eða í Þýzka- landi, svo eitthvað sé nefnt. Möguleikar eru sæmilegir að fá laun eða styrki í Bretlandi, ef menn hafa lokið einhverju bresku sérfræði- prófi (t.d. M.R.C.P.). Fyrir pá, sem hyggjast leggja fyrir sig klíniska sérgrein, er pví best að ljúka klínisku pjálfuninni áður en vísindapjálf- un hefst. Barnalækningar Framhaldsnám í barnalækningum greinist í tvo meginpætti, sérfræðipróf og lágmarks- reynslutíma. Sérfrædipróf: Stofnun, rekin af samtökum lyflækna og barnalækna (Royal College of Physicians), sér um sérfræðipróf í greininni og jafnframt stöðlun og mat á námsstöðum. Sérfræðiprófið er í tveim hlutum. Fyrri hlutinn er skriflegt próf sameiginlegt fyrir lyflækning- ar og skyldar greinar, p.á.m. barnalækningar, í grunngreinum lyflæknisfræði að mestu leyti. Fyrri hluta próf má taka hvenær sem er í námi, en hagstæðast er að gera pað sem fyrst eftir að nám er hafið. Síðari hlutann (sem er sérhæfður, hvað barnalækningar varðar) má taka að afloknu einu og hálfu ári á almennri barnadeild. Þessi hluti er víðtækt skriflegt próf, og peir sem ná pví, halda áfram í verklegt og munnlegt próf sex vikum síðar. Prófið veitir Membership réttindi (M.R.C.P.) í barna- lækningum, en í pví felst I reynd, að viðkorn- andi er álitinn hæfur til frekara framhaldsnáms í greininni á hærra aðstoðarlæknisstigi. Prófið tryggir alhliða undirstöðumenntun í greininni, og er álitið nauðsynlegur páttur sérfræðináms í barnalækningum í Bretlandi. Algengt er, að peir, sem hyggja á framhalds- nám í heimilislækningum, en einnig barna- lækningum, taki auk pess svonefnt »Diploma of Child Health« (DCH). Tímalengd: Alls parf sjö ára tíma í barna- lækningum til að öðlast »Accreditation« eða viðurkenningu á hæfni til að takast á hendur ábyrgð pá, sem fylgir sérfræðingsstöðu (Con- sultant post). Þessi tími skiptist vanalega í eitt ár sem »Senior House Officer«, 2-4 ár sem »Registrar« og 2-3 ár sem »Senior Registrar«. Eftir 3ja ára »general professional training« og MRCP próf á peim tíma, er gert ráð fyrir 4ra ára »higher professional training« sem áherslu á undirgreinar barnalæknisfræði. Af peim tíma verður viðkomandi að hafa verið tvö ár í »Senior Registrar« stöðu. Erfðafræði Erfðafræði er ört vaxandi sérgrein innan læknisfræðinnar. Ekki eru nema 20-25 ár síðan læknar í klíniskum sérgreinum, hófu að gefa erfðafræði gaum að verulegu marki. Vegna pess að greinin er ennpá í örri próun, er ekki komið sérlega fast form á pjálfun lækna til pess að stunda hana. í Bretlandi er pjálfunin með tvennu móti. Vísindaleg pjálfun fyrst og fremst eða klínisk pjálfun. Vísindaleg pjáifun: Algengast er, að menn taki að sér rannsóknarverkefni, sem miðar að doktorsprófi (Ph. D.). Það er pó ekki nauðsyn- legt. Verkefnið tilheyrir pá oftast einni undir- grein mannerfðafræðinnar, lífefnafræðilegri erfðafræði, litningarannsóknum eða ónærnis- erfðafræði (sjá töflu) en sum rannsóknarverk- efni purfa á að halda aðferðafræði allra pessara undirgreina, meira að segja peirra flóknu stærðfræðilegu aðferða, sem stofnerfða- fræðingar nota. Klínisk erfdafrædi: Fyrstu pjálfunarbrautirn- ar í klíniskri erfðafræði hafa nýlega hafist í

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.