Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.03.1982, Side 35

Læknablaðið - 15.03.1982, Side 35
LÆKNABLADIÐ 89 Flokkun undirgreina mannerfðafræði Skyldar greinar Flokkar Klínisk erfðafræði (Clinical Genetics) Lífefnafræðileg erfðafræði (Biochemical Genetics) Litningarannsóknir Réttarlæknisfræði (Cytogenetics) Ónæmiserfðafræði Blóðbankafræði (Immunogenetics) Stofnerfðafræði (Population genetics) Bretlandi og eru raunar ekki margar. Til pess að geta hafið nám í klíniskri erfðafræði í Bretlandi purfa menn að hafa lokið sérfræði- prófi í einhverri klíniskri sérgrein s.s. M.R.C.P., M.R.C.O.G., o.s.frv. Þjálfunin tekur 3-4 ár og er að grunni til klínisk pjálfun, en talsverð rannsóknarvinna (research) er samfara henni. Jafnframt pví að skoða og greina arfgenga sjúkdóma hjá fólki á öllum aldri veitir námið pjálfun í að túlka niðurstöður litninga- rannsókna og annarra erfðafræðirannsókna. Erfðaráðgjöf (genetic councelling) er jafn- framt mikilvægur páttur starfsins. í Banda- ríkjunum er formleg pjálfun að hefjast í læknisfræðilegri erfðafræði (medical genetics) og er nýlega búið að setja á laggirnar sérstakt »Board«-próf í »Medical Genetics«. Læknis- fræðileg erfðafræði er víðtækara hugtak en klínisk erfðafræði (notað í Bretlandi) og virð- ist pjálfunin í U.S.A. vera sveigjanlegri að sumu leyti en í Bretlandi. Geðsjúkdómafræði Sérnám í geðsjúkdómafræðum í Bretlandi hefur tekið verulegum breytingum undanfarin ár. Gerðar hafa verið auknar kröfur um gæði og strangara aðhald á peim sjúkrahúsum, sem bjóða sérnám í greininni. The Royal College of Psychiatrists birtir reglulega skrá um öll geðsjúkrahús í Bretlandi og flokkar pau eftir kostum og göllum. Félagið er ábyrgt fyrir skipulagi allrar »postgraduate« pjálfunar í greininni, en a.m.k. stærri kennslustofnanir hafa sín eigin kennsluprógröm, sem eru mis- munandi frá einum stað til annars. Námið er að jafnaði talið spanna prjú til fjögur ár, en er misjafnt eftir pví hvað menn vilja helst leggja fyrir sig. Félagið býður »membership« próf og er hægt að Ijúka pví í fyrsta lagi eftir priggja ára formlega pjálfun. Upphafspróf má preyta eftir eins árs nám. Að pví er varðar önnur próf og gráður svo sem doktorspróf pá er lang æskilegast að ljúka fyrst klíniska náminu, helst í launaðri stöðu, og að reyna síðan að verða sér út um Iaunaða rannsóknarstöðu meðan unnið er að slíkum verkefnum. Eins og gefur að skilja eru kostir og gæði hinna ýmsu staða mjög mismunandi, og er mönnum eindregið ráðlagt að sækjast einung- is eftir pekktum stofnunum, í peirri von, að pað gefi vísbendingu um gæði staðarins. Kennslusjúkrahúsin í London, sem hafa deild og prófessor í geðsjúkdómafræði eru 9 talsins. Af peim ber helst að nefna The Maudsley Hospital og The Bethlem Royal Hospital, sem eru tengd The Institute of Psychiatry (Univer- sity of London). Ásókn í launuð störf á pessum tveim stöðum er jafnan mikil, en pegar á heildina er litið, eiga íslenskir læknar sennilega nokkuð góðan möguleika á pví að komast að á einhverri deildanna í London. Auk pessara launuðu starfa er svo jafnan nokkur fjöldi »Clinical Assistants« staða, sem eru ólaunaðar og klínisk vinnuskylda mjög takmörkuð. Þessir aðilar purfa auk kennslu- gjalda, sem nú eru orðin óheyrilega há, að bera sjálfir allan kostnað af framfærslu sinni. Stöður eru að jafnaði auglýstar í fagtímaritum, eins og »The British Medical Journal« eða »Lancet«, en áður en sótt er um starf, er rétt að leita fyrst til Royal College of Psychiatrists, sem veitir upplýsingar um flokkun kennslu- stofnananna, eðli námsins og fleira. Kvenlækningar Framhaldsnám í kvenlækningum í Bretlandi skiptist í tvo nátengda meginpætti, lágmarks- reynslutíma í greininni og sérfræðipróf. Sérfrædipróf: Stofnun, rekin af samtökum kvenlækna í Bretlandi og Samveldislöndunum, The Royal College of Obstetricians and Gyna- ecologists (27, Sussex Place, Regents Park, London NW1 4SP) sér um sérfræðipróf í grein- inni, svo og stöðlun og mat á námsstöðum og námstilhögun. Sérfræðiprófið er í tveim hlut- um. Fyrri hlutinn er skriflegt próf í grunngrein- um, sem snerta sérgreinina, en síðari hlutinn er víðtækt skriflegt, verklegt og munnlegt próf, sem veitir Membership-réttindi (M.R.C.O.G.). Um 20 % peirra, sem preyta hvorn hluta, ná prófinu. Fyrri hlutann má taka hvenær sem er í námi, en síðari hlutann ekki fyrr en viðkom- andi hefur náð fyrri hluta, skilað og fengið viðurkennda prófbók og unnið prjú ár í

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.