Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.03.1982, Side 40

Læknablaðið - 15.03.1982, Side 40
94 LÆKNABLAÐIÐ ósérhlífinn við að sinna erfiðum ferðalögum. Hann framkvæmdi einnig nokkar skurðað- gerðir, sem var mikið þrekvirki á þeim tíma. Bjarni landlæknir var óþennalatur — auk ferðabókar þeirra Eggerts og Bjarna, sem Bjarni átti sinn stóra þátt í að safna efni í, þótt Eggert ritaði hana — ritaði Bjarni mikið bæði um náttúrufræði og læknisfræði. Nokkuð af ritgerðum hans komu út erlendis en ýmis rit lét hann eftir sig í handritum hér heima, þó fyrst og fremst embættisbréfabók sína og dagbók, sem varðveizt hafa slitur af. Hann hafði áhuga á því að stofnaður yrði einn holdsveikrasþítali fyrir allt landið en fékk því ekki framgegnt. Ofan á allt það erfiði, sem landlæknisembættið var Bjarna, bættust við veikindi hans, sem fljótt fór að bera á, eftir að hann fluttist að Nesi. Sjúkdómur hans ágerðist með árunum, og var hann oft sárþjáður og lá oft þungt haldinn, við það bættist breyskleiki hans, of mikil vínnautn, sem einnig tók á starfsþrek hans. En hver var hann þá þessi norðlenzki þrestasonur, þessi Abraham íslenzkra lækna, eins og prófessor Guðmundur Hannesson komst að orði. Séra Jón Þorláksson, skáld og síðar prestur á Bægisá, var einn vetur ritari Bjarna land- læknis, en þá hafði séra Jón misst hempuna í fyrra skiptið vegna barneignar, með stúlku sem hann unni. Séra Jón lýsir Bjarna í eftirfarandi erindi: Mun til meðaumkvan í manns brjósti, ef hún eigi var altöm Bjarna. og séra Jón Steingrímsson, síðar prestur, lýsir honum svo: »í allri raun og veru einn sá hjartabesti maður við aumingja og nauð- þrengda«. Petta var vitnisburður tveggja vina hans. Bjarni var mikill trúmaður. í æfisögu hans segir: »Það var vani hans, er hann kom heim frá sjúkum að heimta kirkjulykil, áður en hann gengi til herbergis, læsti sig þar inni, varpaði sér flötum og þakkaði Guði sínum þegar vel gekk, en barmaði sér ella, og jafnvel minnti Guð á, að hann hefði lofað að styrkja góðan vilja og honum væri dýrðlegt og verðugt að hjálpa þræli sínum«. Til er lýsing á heimsókn til Bjarna landlækn- is nokkrum vikum áður en hann dó. Þar er á ferð vinur hans séra Jón Steingrímsson og lýsir hann í æfisögu sinni þessum atburði á eftirfarandi hátt: »Minn trúfasti vin herra Bjarni landphysicus lá í rekkju lengi áður en hann burtkallaðist. Eg finn hann þar hann lá sængurliggjandi og vildi þar kveðja hann, en hann svarar: »Nú er svo ástatt, að ég vil kveðja þig annarsstaðar og ætla að reyna til þess að komast á fætur« fór svo í annað kamers, setur þar til borð og tvö vínstaup, lætur síðan á mig kalla og segir: »Nú drekk ég þér til okkar síðustu skilnaðar skál og mína dauðans skál... Þú munt nokkuð lengur lifa en þó ei háaldraður verða. Ég óska þér lukku- legrar reisu og lífdaga.« Með því lét hann konu sína, madame Rannveigu, þénara sinn mr. Jón Einarsson og þjónustustúlku Hólmfríði Hjálmarsdóttur byrja þetta vers: Allra skepna þá aðstoð dvín aðstoð góð vertu mér, frá vinum skilja verð ég mín minn vin tak mig að þér etc. sem sungið var með lystilegustu raddarhljóð- um, því öll þau voru dágóðir söngmenn, og hann mjög gefinn fyrir söng, en ég söng aftur á móti þetta vers: Þótt sundrumst nú sú er vort trú etc. Við supum af glösunum, þakkaði hvor öðrum, ei án trega, allt umliðið og kvöddumst svo. Ég fór minn veg en hann fór í rúm sitt, lá nokkrar vikur þar á eftir, þar til guð gerði farsælan enda á hans mæðu«. Þetta var leiftursýn inn á heimili Bjarna landlæknis skömmu áður en hann dó. Hann hafði lokið starfi sínu, honum hafði tekizt, þrátt fyrir heilsuleysi og margvíslega raun, að festa í sessi þá stofnun, sem honum hafði verið falið að gróðursetja fyrsta vísi að. Auk veikinda sinna hafði hann orðið að þola þá raun að sjá að baki tveggja barna sinna ungra, sem dóu í Nesi og vinar síns og samstarfsmanns Eggerts Ólafssonar sem drukknaði á Breiðafirði ásamt konu sinni og fylgdarliði vorið 1768, og sem hann tregaði mjög. Er Bjarni andaðist 8. september 1779 voru starfandi læknar í landinu 4 nemendur hans: Magnús Guðmundsson, læknir í Norðlend- ingafjórðungi þá orðinn veikur að holdsveiki, Hallgrímur Bachmann, svili Bjarna læknis í Vestfirðingafjórðungi, Brynjólfur Pétursson

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.