Læknablaðið - 15.10.1982, Qupperneq 5
LÆKNABLADIÐ
227
Haraldur Dungal. Fjalar Kristjánsson, Matthías Kjeld, Bjarni Pjóðleifsson
FRÁSOG NAPROXEN
Samanburður á frásogi tveggja tegunda naproxen taflna
INNGANGUR
Naproxen, pekkt hér á landi undir sérlyfjaheit-
inu Naproxyn®, er bólgueyðandi lyf, sem
einnig hefur verkjastillandi og hitalækkandi
verkun. Naprosyn (Astra Syntex) hefur verið á
markaði hérlendis í nokkur ár og notkun pess
farið vaxandi. Ábendingar eru m.a. iktsýki
(rheumatoid arthritis), slitgigt og verkir og
bólga í hreyfi- og stoðkerfi.
Kostir Naproxen eru m.a. peir að pað hefur
tiltölulega langan helmingunartíma (1, 2, 3) og
nægir að taka pað tvisvar á sólarhring.
Annar kostur Naproxen er minni tíðni
aukaverkana sérstaklega á slímhúðir efri melt-
ingarvegar, en hjá flestum öðrum gigtarlyfjum
(1, 4). í ráði er að íslenskt lyfjafyrirtæki hefji
framleiðslu á Naproxen í töfluformi og af peim
sökum var eftirfarandi tilraun gerð.
AÐFERÐ OG EFNIVIÐUR
Tvö lyfjaform naproxen (6-methoxy-a-me-
thyl- 2 napthalene acetic acid) voru borin
saman.
Annars vegar T. Naprosyn 250 mg (Astra
Syntex) og hins vegar T. Naproxen 250 mg
(TORO).
Til tilraunarinnar voru valdir 10 heilbrigðir
einstaklingar á aldrinum 23-42 ára. Enginn
einstaklinganna tók önnur lyf á umræddu
tímabili. Við skipulag tilraunar var stuðst við
svipaða tilraun með frásog Cimetidins (5).
Tilrauninni var pannig hagað, að tvær töflur
Naproxen 250 mg voru teknar á fastandi maga
með 100 ml af vatni og matar ekki neytt næstu
tvær klukkustundirnar. Viðmiðunarblóðsýni
var tekið fyrir lyfjatöku. Blóðsýni voru síðan
tekin 30, 60, 90 mín og 2, 3, 4, 6, 9, 12, 24 og 48
klst. eftir inntöku lyfsins. Blóðsýni voru geymd
í kæli og skilin innan 8 klst. Serumið var síðan
fryst og mælt við fyrstu hentugleika.
í fyrri umferð tóku allir einstaklingarnir T.
Naprosyn (Astra Syntex) 500 mg og í seinni
umferð, 14 dögum síðar, tóku sömu einstak-
lingar T. Naproxen (TORO) 500 mg.
Barst 15/04/82. Sampykkt 21/04/82 og seftd 1 prentsmiöju.
Einstaklingarnir fengu númer frá 1-10 og
höfðu sömu númer í báðum umferðunum. Við
samanburð lyfjaformanna voru eftirfarandi
gildi reiknuð út og borin saman með pöruðu t-
prófi.
a) Blóðpéttni á mælingartímanum
b) Helmingunartími lyfjanna í blóði (t V2)
c) Heildarflatarmál undir blóðpéttniferlum
fyrstu 24 klst. Notuð var trapezoidal aðferð
d) Tímalengd að frásogstoppi
Reverse phase HPLC (High pressure liquid
chromatography) var notuð við mælingar á
Naproxen í serum. Aðferðin var próuð á
Rannsóknastofu Landspítalans en stuðst var
við greinar Broquaire et al (2) og Upton et al
(6).
HPLC tækið sem var notað er frá Waters
Ass. og samanstendur af vökvapumpu
(6000A), Universal injector (U6K), Variable
Wavelength Detector (450) og rita frá Kipp
og Zonen (B.D.40). Súla er BONDAPAK C18
frá Waters Ass. Forsúla var heimapökkuð
með C18 fasa.
Naproxen var fengið frá Dolder AG Sviss.
Ibuprofen var unnið úr Brufen® töflum. Aceto-
nitril var fengið frá Rathburn Ltd. og Diethyl-
ether (Anala®) frá B.D.H.
Súlulúdi (Eluent of column) Orthophosphor-
sýra, PH 3.0: Acetonitril, 40:60.
Þynnivökvi: í 1 1 af 1 mo/l NaCI lausn var
leyst upp 1,34 g KH2 PO4 og pH stillt á 2,0
með H3P04.
Naproxen stofnstadall: 1 mg/ml: 10.0 mg
Naproxen leyst upp í 10,0 ml methanol.
Naproxen vinnustadall: 50 pg/ml: 500 pl
Naproxen stofnstaðall er pynntur í 10,0 ml
með lyfjalausu serum.
Innstadall(internalstandard). 50 mg Ibupro-
fen leyst í 100 ml af methanoli.
100 pl af serum eða vinnustandard var sett í
skilvinduglas. 400 pl af pynnivökva 100 pl af
innstaðli og 5,0 ml Diethylether var bætt út í
og glösin hrist á hvirfilhristara í 60 sek.
Etherfasinn var síðan færður í önnur glös og
purrkaður við 50° C undir loftblæstri. Glösin