Læknablaðið - 15.10.1982, Blaðsíða 15
LÆKNABLADID
233
krana á bæjarskrifstofunni. Skolvatn úr sand-
síupró var tekið með aðstoð starfsmanna
bæjarins, þegar sandsían var skoluð út. Botn-
leðjusýnin voru tekin með dauðhreinsaðri
ausu úr botni sandsíupróarinnar fyrir skolun.
Grisjuvöndlasýni voru tekin úr sandsíuþró eða
inntaksþró og voru vöndlarnir látnir liggja par
í um pað bil eina viku.
Vatnssýni voru síuð í gegnum himnusíur
(membrane filters) með gatastærð 0.45 pm,
nema 14.10.1980, þá voru notaðar síur með
gatastærð 0.65 gm.
Þegar um hreint vatn var að ræða voru um
3 lítrar síaðir í gegnum hverja síu, en rúmur 1
lítri pegar skolvatn var síað. Ræktun á Campy-
lobacter var framkvæmd þannig, að sían var
sett á Skirrow agar æti og það síðan geymt í
hitaskáp við 42.5° C í 18-24 klst. Þá var sían
fjarlægð, en skálin látin vera annan sólarhring
í skápnum. Ræktunin fór fram í loftþéttu íláti,
sem í var settur vetnis- og C02-gjafi. Greining
var gerð eins og áður hefur verið lýst (10).
Við ræktun Salmonella var sýnum skipt í
tvennt og annar helmingurinn ræktaður í 50
ml af selenít æti og hinn helmingurinn settur í
50 ml MKT eða TT æti. Af hverju botn-
leðjusýni voru 25 g sett í 250 ml af selenít æti
og önnur 25 g sett í MKT eða TT æti.
Grisjuvöndlar voru yfirleitt ræktaðir bæði í
selenít æti og MKT eða TT æti. Allar Salmo-
nellaræktanir fóru fram við 42.5°C.
Veðurfar sýnatökutímabilanna 1980 og 1981
var kannað með því að athuga skýrslur um
veðurathuganir á Akranesi. í nokkrum til-
vikum vantaði mælingar og voru þá notaðar
niðurstöður mælinga í Reykjavík.
NIÐURSTÖÐUR
Niðurstöður af Salmonella og Campylobacter
ræktunum má sjá í töflum I og II. Árið 1980
var tekið 31 sýni til Salmonella ræktunar og 10
sýni til Campylobacter ræktunar. Hvorki Sal-
monella né Campylobacter ræktuðust úr þess-
um sýnum (tafla I).
Árið 1981 voru 19 sýni sett í Salmonella-
ræktun og reyndust 4 þeirra vera jákvæð.
Jákvæðu sýnin voru öll botnleðjusýni tekin
02.09.1981 og 08.09.1981. Alls voru tekin 8
botnleðjusýni úr sandsíuþró og ræktaðist Sal-
monella úr 4 þeirra eða 50 % sýna. Tvær
tegundir fundust, þ.e. Salmonella saintpaul og
Salmonella typhimurium. Sextán vatnssýni
voru síuð og sett í Campylobacter ræktun og
reyndust 7 þeirra eða 44 % vera jákvæð.
Yfirlit yfir veðurfar má sjá í töflu III, þ.e.
hita og úrkomu sýnatökudaginn og dagana á
undan.
Taflan sýnir greinilega að hitastig var mun
hærra og úrkoma meiri, fyrir og á sýnatöku-
tímabilinu 1981 en 1980.
UMRÆÐA
Eftir því, sem best verður vitað, er þetta í
fyrsta sinn, sem Campylobacter jejuni ræktast
úr vatnsbóli. Lýst hefur verið miklum faraldri í
Vermont í Bandaríkjunum, þar sem sýking var
rakin til bilunar í klórdælu í vatnsveitu, en
bakterían ræktaðist aldrei úr vatninu (7).
Ekki er vitað með vissu hvernig algengast
er að C. jejuni berist milli manna, eða til
manna. Bein smitun virðist ekki algeng (7)
nema e.t.v. smit frá bleyjubörnum til heimilis-
Tafla III. Niðurstödur veðurathugana á Akranesi
1980 og 1981.
Þurrhiti Úrkoma
Dags. kl. 9 kl. 15 kl. 21 mm tegund
1980
12.10 -1.0 5.0 1.5 0 —
13.10 2.8 1.0 -0.4 0 snjór
14.10 -0.4 5.0 2.0 0 —
19.10 -5.0 1.2 4.8 0 —
20.10 — 5.0 2.5 0.6 0 —
21.10. 3.0 4.0 1.7 0 —
26.10. 2.0 5.5 2.2 0 —
27.10. — 1.2 4.0 2.1 0 —
28.10. 2.4 3.5 1.0 0 —
31.10. 10.0 9.2 5.0 18 rigning
03.11. 7.5 9.4 9.0 12 rigning
15.11. ? -3.0 — 7.5 0 —
16.11. ? 0.2 — 0.2 0 —
17.11. — 0.6 -0.1 -0.4 0 —
22.11. —5.2 —3.8 -3.6 0 —
23.11. — 4.4 -3.5 -6.4 0 —
24.11. — 7.6 -5.4 -2.8 0 —
30.11. 5.9 7.4 1.8 26.5 rigning
01.12. -2.0 -2.9 -2.2 0 rigning
02.12. —3.1 — 2.0 —4.0 0 —
1981
24.08. 9.8 10.0 9.0 8.2 rigning
25.08. 9.0 10.4 9.2 2.4 rigning
26.08. 9.0 13.0 12.0 0.2 rigning
31.08. 11.0 11.0 11.0 rigning allan daginn
01.09. 9.8 11.0 10.0 2.0 rigning
02.09. 10.8 12.0 10.0 0.4 rigning og súld
06.09. 4.5 9.5 4.6 0 —
07.09. 7.0 7.8 7.2 rigning
08.09. 5.0 8.0 3.5 3.0 rigning