Læknablaðið - 15.10.1982, Blaðsíða 13
LÆKNABLAÐID
231
Guðni Alfreðsson, Hrafn V. Friðriksson, Ólafur Steingrímsson
CAMPYLOBACTER OG SALMONELLA
í VATNSBÓLIAKURNESINGA
INNGANGUR
Fyrsti sjúklingurinn, sem greindist á íslandi
með iðrasýkingu af völdum Campylobacter
jejuni var 2ja ára stúlkubarn, sem búsett var á
Akranesi (1). Hún hafði ekki umgengist sjúk-
ling með iðrasýkingu og engin líkleg smitleið
fannst. Því beindist athyglin að vatnsbóli
Akurnesinga, sem nýtir að mestu yfirborðs-
vatn og vitað er að mengast stundum veru-
lega. Við rannsóknir á vatninu hefur meiri hluti
sýnanna oftast reynst innihalde E. coli af saur-
uppruna og vatnið pví verið dæmt ónothæft
(2).
Á síðustu árum hefur orðið ljóst, að margar
tegundir Salmonella sýkla eru landlægar á
íslandi. Salmonella ræktast á hverju ári frá
tugum sjúklinga (3) og peir hafa fundist í
ýmsum matvælum (4). Salmonella hefur einnig
ræktast í miklum mæli úr skólpleiðslum í
Háskóli íslands, líffræðistofnun, Heilbrigðiseftirlit ríkisins,
Rannsóknastofa Háskólans, sýkladeild. Barst ritstjórn
28/04/82. Sampykkt til birtingar 19/05/82 og sent í prent-
smidju.
Reykjavík og úr sjó og árvatni (5). Þar sem
Salmonella hefur einnig ræktast úr mávum og
mávadriti (6), hefur kviknað grunur um að
opin vatnsból gætu mengast af peirra völdum,
en mikið mávavarp er einmitt á upptökusvæði
vatnsbóls Akurnesinga.
Af þessum ástæðum var gerð tilraun til þess
að rækta ofangreindar bakteríur úr vatnsbóli
Akurnesinga.
LÝSING Á VATNSBÓLI
Á mynd 1 má sjá hvar drykkjarvatn Akurnes-
inga kemur úr Akrafjalli. Einn þriðji hluti
vatnsins 30-40 l/sek. kemur úr Slögu, sem er
uppsprettulind og nokkrum djúpum brunnum,
sem grafnir hafa verið í nágrenni hennar.
Tveir þriðju hlutar koma úr Berjadalsá sem
rennur úr Berjadal í fjallinu, en þar er mikið
mávavarp og beitarland sauðfjár. Rannsóknin
var að mestu framkvæmd á þeim hluta vatns-
bólsins. Árvatninu er safnað í lítið uppistöðu-
lón og leitt þaðan í þró, þar sem það er síað í
Mynd 1. Akrafjall. Berjadalur blasir við. Slagan og brunnar þeir sem grafnir hafa verið undir hlíðinni eru
merktir með A á myndinni. Örin sem merkt er með B bendir á sandsíuna þar sem vatn úr Berjadalsánni er
hreinsað.