Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.1982, Page 18

Læknablaðið - 15.10.1982, Page 18
236 LAÐIÐ THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL | Læknafélag íslands og Læknafélag Reykjavíkur 68. ÁRG. - OKTÓBER 1982 Skipulag á geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og unglinga á íslandi Barnageðlækningar fást við greiningu og meðferð á börnum og unglingum með geðræn vandamál. Þótt barnageðlækningar séu ungar að árum hér á landi, hvað pjónustu snertir og sem vísindagrein, hafa barnageðlækningar ver- ið stundaðar sums staðar erlendis á 7. áratug. í fyrstu var aðallega um að ræða göngudeild- arþjónustu, þar sem vandamál voru greind og síðan meðhöndluð. Síðar kom legudeildarpjón- usta til viðbótar göngudeildarpjónustu og á síðustu áratugum eru barnageðdeildir allvíða í tengslum við háskólasjúkrahús og hafa nú þegar verið gerðar umtalsverðar vísindalegar rannsóknir innan fræðigreinarinnar. Próunin hér á landi. Á árunum 1960-1967 var rekin hér á landi geðverndardeild fyrir börn á vegum Heilsuverndarstöðvarinnar und- ir stjórn prófessors Sigurjóns Björnssonar. Starfssvið pessarar deildar var fyrst og fremst sálfræðirannsóknir, en jafnframt að gefa for- eldrum og uppalendum sálfræðilegar og upp- eldisfræðilegar leiðbeiningar. Aldurstakmark á geðverndardeild pessari miðaðist við yngri börn og unglinga en 15 ára. Á árunum 1967 fram til 1976 var áframhaldandi rekin geð- verndardeild á barnadeild Heilsuverndarstöðv- arinnar ásamt ungbarnaeftirliti undir stjórn Halldórs Hansens yfirlæknis. Á árunum 1960- 1976 voru séð rúm 2100 börn á geðverndar- deild Heilsuverndarstöðvarinnar. Fyrsta barnageðdeildin tók til starfa hér á landi 15. ágúst 1970. Hafði pá um nokkurra ára bil ýmsum verið ljóst, að á íslandi væru óleyst barnageðlæknisfræðileg vandamál. Sérstak- lega má par nefna yfirlæknana Kristbjörn Tryggvason, Tómas Helgason og Halldór LÆKNABLADID Hansen og sendu þeir álitsgerð um málið til landlæknis, 16. ágúst 1967. Lagt var til, að stofnuð yrði geðsjúkdómadeild fyrir börn og unglinga á vegum Landspítalans. Árið 1968 hóf félagsmálaráð Reykjavíkur viðræður milli borgar og ríkis um stofnun barna- og unglinga- geðdeildar, en niðurstaða úr peim viðræðum varð sú, að báðir aðilar féllust á stofnun sjúkradeildar fyrir börn með geðræn vanda- mál. Reykjavíkurborg tók að sér að fullgera hluta af húsnæði við Dalbraut 12 og leigja pað ríkinu og ríkið tók að sér rekstur deildarinnar, sem deild frá Landspítalanum. Páll Ásgeirsson var skipaður yfirlæknir og hefur verið pað frá upphafi, en er nú í 2ja ára leyfi frá störfum, en meðan á fjarveru hans stendur gegnir Sverrir Bjarnason yfirlæknis- starfi. Á undanförnum rúmum 11 árum hafa rúm 1700 börn komið á göngudeild Geðdeildar Barnaspítala Hringsins ásamt fjölskyldum peirra. Aldurstakmark Geðdeildar Barnaspít- ala Hringins hefur aldrei verið fyllilega ákveð- ið. Skv. síðustu ársskýrslu deildarinnar frá 1973- 1976 má sjá, að yngsta barn sem leitað var með á þessum árum var eins árs gamalt og pað elsta 22ja ára. Flest börnin eru á aldrinum 4ra-10 ára. í 69% tilfella var um drengi að ræða og í 31 % tilfella stúlkur. Innlagning- araðstaða á GBH hefur verið fyrir hendi fyrir börn yngri en 12-14 ára. Á hinum Norðurlöndunum er álitið, að lágmarkstíðni barnageðlæknisfræðilegra vandamála sé um 16-19%, þ.e.a.s. a.m.k. 16- 19% þeirra barna, sem eru innan við 14 ára aldur purfi á geðlæknisfræðilegri aðstoð að halda, ýmist beint eða óbeint í formi ráðgjafar t.d. frá heimilislækni, barnageðdeild eða skóla- sálfræðingi. Hér á landi er mjög litlum hluta pessara barna sinnt sem skyldi. Tíðni geð- læknisfræðilegra vandamála meðal unglinga er sú sama og tíðni hjá fullorðnum, en prátt fyrir pað hefur enn ekki tekist að koma á fót greiningar- eða meðferðardeild fyrir unglinga með geðræn vandamál og hefur peim pví verið stórlega misboðið í okkar heilbrigðis- kerfi fram að pessu. Á sálfræðideildir skóla hér á höfuðborgar- svæðinu á s.l. ári var leitað vegna tæplega 300 barna. Við lauslega athugun á fjölda grunnskóla- barna sem pjónustu nutu hér á höfuðborg- arsvæðinu á barnageðdeild og sálfræðideild- um vegna geðrænna vandkvæða á s.l. ári reyndist fjöldi þeirra aðeins vera 2,3 %.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.