Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1982, Síða 39

Læknablaðið - 15.10.1982, Síða 39
LÆK.NABLAÐIÐ 249 2. Samþykktar voru þrjár tillögur stjórnar Læknafé- lags íslands um breytingu á lögum félagsins og hafa lögin þegar verið gefin út með þeim breytingum í Handbók lækna. 3. Tillaga frá stjórn L.R., um að skora á heilbrigðis- yfirvöld að gangast fyrir breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu á þann veg, að læknaráðum sjúkrahúsa og heilsugæzlustöðva sé tryggður fulltrúi í stjórnum viðkomandi stofnunar, var samþykkt og send heilbrigðismálaráðherra, og gaf hann eftirfar- andi skriflegt svar: »Svo sem nú háttar til, er starfsmannaráðum viðkomandi stofnana tryggður fulltrúi eða fulltrúar í stjórn viðkomandi stofnana og ráðuneytið telur, að áhrifa lækna hafi gætt í það ríkum mæli með þeim hætti, að ástæðalaust sé að gera einnig ráð fyrir, að læknaráð eigi fulltrúa til viðbótar þeim, sem nú sitja.« 4. Tillaga frá stjórn L.Í., um að beina því til læknadeildar að hraða endurskoðun á gildandi reglugerð um veitingu almenns lækningaleyfis og sérfræðileyfa, var send deildinni. Var hún tekin til umræðu í deildarráði, en hefur ekki haft nein áhrif. 5. Tillaga frá stjórn L.R., þar sem skorað er á heilbrigðisyfirvöld að gangast fyrir breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu á þann veg, að leitað sé umsagnar læknaráðs viðkomandi heilbrigðisstofn- unar við ráðningu yfirlækna og sérfræðinga, var send til heilbrigðismálaráðherra og gaf hann eftirfar- andi skriflegt svar: »Ráðuneytið telur að reynsla sú, sem fengizt hefur af núverandi fyrirkomulagi um stöðunefnd, sé á þann veg að ekki sé skynsamlegt að breyta því fyrirkomulagi og mun því ekki hafa forgöngu um breytingu af þessu tagi.« 6. Samþykkt var tillaga, sem beint var til stjórna Félags íslenzkra heimilislækna, Sérfræðingafélags íslenzkra lækna, Félags ungra lækna og Félags yfirlækna, um að skiþuleggja kerfi tengiliða við stjórnirnar á hinum ýmsu vinnustöðum. Tengiliðir þessir eiga að vera stjórnum til ráðuneytis um öll atriði, er lúta að kjaramálum. Ályktunin var send öllum viðkomandi félögum, en ekki hafa borizt nein svör og er stjórninni ekki kunnugt um, að þau hafi orðið við þessum tilmælum ennþá. 7. Eftirfarandi ályktun var send heilbrigðismálaráð- herra: »Aðalfundur .... ályktar að beina því til heilbrigðisráðherra, að sérfræðiviðurkenning í heim- ilislækningum verði gerð skilyrði fyrir skiþun í stöðu heilsugæzlulækna. Við framkvæmd þessa verði gerð- ar ráðstafanir til, að heimilislæknar, sem komnir eru til starfa við gildistöku hins nýja ákvæðis, geti aflað sér sérfræðiviðurkenningar í greininni.« í bréfi sínu til ráðherra ítrekaði stjórnin, að stefnt verði að því, að sérfræðileyfi verði gert að skilyrði fyrir stöðu- veitingu á heilsugæzlustöðvum og fór fram á, að meðan það skilyrði lægi ekki fyrir, yrði tekið fram í auglýsingu, að sérfræðiviðurkenning í heimilis- lækningum væri talin æskileg og meðan seinni hluti ályktunarinnar væri ekki kominn til framkvæmda, verði að taka nokkurt tillit til langrar starfsreynslu við heilsugæzlu- og heimilislæknisstörf. í svarbréfi ráðuneytisins segir m.a.: »Hvað því viðvíkur, að auglýsa stöður heilsugæzlulækna þannig, að sér- fræðiviðurkenning í heimilislækningum sé talin æskileg, þá hefur ráðuneytið í vissum tilvikum gert það, en ekki hefur það orðið regla enn sem komið er.« Og síðar segir: »Ráðuneytið er hins vegar sammála Læknafélagi Islands um það, að það eigi að stefna að því, að heilsugæzlulæknar hafi sérmenntun í heimilislækningum.« Formannaráðstefna Fundur stjórnar L.í. með formönnum svæðafélag- anna var haldinn 26. febrúar 1982 í húsnæði læknafé- laganna í Domus Medica. Á fundinn mættu fulltrúar allra svæðafélaganna á landinu, svo og fulltrúar F.Í.L.Í.S. og F.Í.L.B. Stjórnin gerði grein fyrir afgreiðslu ályktana aðalfundar og enn fremur var þar rætt um göngu- deildarmál, lífeyrismál, skiptingu eigna milli L.í. og L.R. vegna yfirtöku L.í. á rekstri skrifstofunnar, um sameiginlegan vinnumarkað lækna á Norðurlönd- um, hugmyndir um framkvæmd breytinga úr núm- erakerfi í heilsugæzlukerfi í Reykjavík, byggingamál, stöðumál og kjaramál. Gunnar Ingi Gunnarsson, formaður samninga- nefndar heimilis- og heilsugæzlulækna, mætti á fundinum og gerði grein fyrir stöðu samningamála heimilislækna. í lok fundarins ræddi Sigurbjörn Sveinsson nokk- uð um tölvunotkun á heilsugæzlustöðvum og spurð- ist einnig fyrir um samþykkt, sem gerð hafði verið í stjórn Læknafélags íslands 18. marz 1980 varðandi tilmæli til landlæknisembættisins um, að það hlutað- ist til um, að hönnuð yrði ungbarnaskrá til notkunar við ungbarnaeftirlit í heilsugæzlustöðvum. Kjaramál Sérkjarasamningur fastráðinna lækna. Kjaradómur um aðalkjarasamning háskólamanna 1 þjónustu ríkis- ins fyrir tímabilið 01.03.1982 - 29.02.1984 var kveðinn upp þann 21. febrúar 1982. Helztu breytingar frá fyrri samningi urðu þær, að tveim launaflokkum var bætt við launastigann. Jafnframt voru gerðar breytingar á reglum um starfsaldur, þannig að 1 stað launaflokkshækkunar við 15 ára starfsaldur koma nú flokkahækkanir eftir 9 ára starfsaldur frá viðurkenndu lokaprófi frá háskóla og eftir 13 ára og 18 ára starfsaldur, skv. almennri skilgreiningu. Ákvæði þessi koma til fram- kvæmda eitt 1 einu, síðast 1. marz 1983. Þá var breytt reglum um persónuuppbót 1 desember þannig, að hún fæst nú eftir þriggja ára starf. Að lokum var tryggingabótafjárhæðum breytt nokkuð. Samningaviðræður vegna sérkjarasamnings L.Í., sem byggir á aðalkjarasamningi B.H.M., hófust í marzmánuði. Þegar sýnt var, að fjármálaráðuneytið fékkst ekki til að nálgast þær kröfur, sem settar höfðu verið fram, fór málið í Kjaradóm. Dóms er að vænta í byrjun júní.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.