Kraftur - 01.06.2005, Blaðsíða 13

Kraftur - 01.06.2005, Blaðsíða 13
IWJk t Nokkrir félagar úr Krafti tóku sig til og skunduðu á ættaróðal eins í hópnum, að Kollsá í Hrútafirði, í lok mai. Ferðin heppnaðist vel i alla staði enda lék veðrið við ferðalangana. Sauðburður á næsta bæ var í hámarki og féll það í Ijúfan jarðveg. Var oftar en einu sinni farið að bænum að fylgjast með nýbornum lömbunum. Ferðin var einnig nýtt í ýmsar göngur og i einni slíkri var rennt fyrir silung í nálægu vatni. Á kvöldin var ýmist sungið hraustlega við gítar eða dansað undir þéttum reyk og blikkljósum. Staðurinn var sem sagt vel búinn til slíkrar samkomu og það voru þreyttir en ánægðir Kraftsfélagar sem kvöddu þann sunnudag. Vonast er til þess að ævintýrið verði endurtekið að ári og að fleiri sjái sér fært að mæta. Kraftsfélagar þakka Hexa ehf og Toyota fyrir stuðning i þessari ferð. 1 3

x

Kraftur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kraftur
https://timarit.is/publication/982

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.