Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2007, Side 9
© GRAPHIC NEWS
Verstu öldamorð í sögu Bandaríkjanna
33 eru látnir eftir skotæðið í Virginia
Tech háskóla í Bandaríkjunum. Þar á
meðal er árásarmaðurinn.
West Ambler Johnston bygging
7.15: Tveir nemendur skotnir
til bana á heimavist. Lögregla
telur að þetta sé heimilis-
ofbeldi og að árásar-
maðurinn sé
úinn
Norris bygging
9.30: Árásar-
maðurinn festir dyr
verkfræðideildar með
keðjum og skýtur 30 manns.
SKOTÁRÁSIR Í SKÓLUM
Október 2006: Charles Roberts skýtur mm stúlkur til bana í Amish skóla í
Pennsylvaníu og sviptir sig síðan lí.
Mars 2005: Nemandi í Minnesota myrðir níu og fremur síðan sjálfsmorð.
Apríl 1999: Tveir táningar skjóta 12 nemendur og einn kennara áður en þeir svipta
sig lí í Columbine miðskólanum í Colorado.
Mars 1998: Tveir drengir 11 og13 ára, myrða órar stúlkur og kennara í Arkansas.
Ágúst 1966: Charles Whitman myrðir 15 í Háskólanum í Texas, þegar hann skýtur með
rii úr turni í 96 mínútna skotæði áuðr en lögreglumenn í Austin skjóta hann.
275m
Source: Virginia Tech
Íþróttavöllur
Cassell íþróttahúsið
Virginia Tech
26 þúsund nemendur.
Nemendur fengu viðvörun
í tölvupósti eftir fyrri árásina.
Washington
Blacksburg
Atlantshaf
VIRGINÍA
New
York
V
A
S
N
DV Fréttir miðvikudagur 18. apríl 2007 9
Amish-stúlkur syrgja Fimm ungar stúlkur voru myrtar og sex slösuðust
alvarlega í skotárás í amish-skóla í október síðastliðnum.
Ætluðu að sprengja skólann
Einn þekktasta morðárás á
skóla í Bandaríkjunum er árásin
á Columbine skólann í Littleton
í Colorado-fylki í Bandaríkjun-
um sem gerð var í Apríl 1999. Þá
myrtu tveir unglingar tólf nem-
endur og einn kennara áður en
þeir sviptu sig lífi. Auk þess særð-
ust 20 nemendur alvarlega, sum-
ir jafnvel lömuðust. Árásin er
sú þriðja mannskæðasta í sögu
Bandaríkjanna.
Árásin átti sér nánast stað í
beinni útsendingu því sjónvarps-
fréttamenn voru komnir á svæð-
ið og farnir að senda út áður en
atburðurinn var liðinn hjá.
Það sem vakti einna mestu
athyglina við árásina var að auk
þess að vera vopnaðir byssum
höfðu tvímenningarnir komið
fyrir sprengjum um allan skól-
ann sem þeir höfðu búið til eft-
ir leiðbeiningum á netinu, að
því er talið var. Tvímenningarnir
komu sprengjunum fyrir og fóru
að því loknu út í bíl fyrir utan
skólann. Talið er að þeir hafi ætl-
að að skjóta á nemendurna þeg-
ar þeir flúðu út úr skólanum eft-
ir sprenginguna. Sprengjurnar
sprungu þó ekki, utan eina sem
sprakk eftir að skotárásin var yfir-
staðin. Skotmennirnir stormuðu
þess í stað inn í skólann og skutu
nemendur af handahófi.
Kynferðisafbrotamaður í Pennsylvaníu:
Myrti fimm
Amish-stúlkur
Annan október síðastliðinn
réðst vopnaður flutningabílstjóri
inn í barnaskóla Amish-fólks í
Pennsylvaníu í Bandaríkjunum.
Hann myrti fimm stúlkur á aldrin-
um 7 til 13 ára og framdi loks sjálfs-
víg. Sex stúlkur til viðbótar særðust
alvarlega. Um þrjátíu nemendur
voru í skólanum ásamt kennurum
þegar morðinginn réðst inn í skóla-
bygginguna, sem var ein kennslu-
stofa. Hann sleppti drengjum og
fullorðnum og læsti sig inni með
stúlkunum, sem hann hélt eftir. Því
næst lét hann þær raða sér upp við
skólatöfluna, batt þær og skaut þær
í hnakkann með fyrrgreindum af-
leiðingum.
Morðinginn var um þrítugt og
þriggja barna faðir. Við rannsókn
málsins kom í ljós að morðinginn
hafði skilið eftir skilaboð til konu
sinnar og barna þar sem fram kom
að hann hefði beitt tvær stúlkur, 3
og 5 ára, kynferðislegu ofbeldi fyr-
ir tveimur áratugum og að hann
fyndi til kennda um að gera slíkt
aftur. Hann mætti með sleipiefni
í skólann en lögreglan segir eng-
ar vísbendingar um að hann hafi
misnotað stúlkurnar áður en hann
myrti þær.
Skaut úr turni
háskólans
Hinn 1. ágúst 1966 kom há-
skólaneminn Charles Whitman
sér fyrir á 28. og efstu hæð í turni
háskólabyggingar texasháskóla
og skaut 15 manns til bana á einni
og hálfri klukkustund áður en
lögreglunni tókst að aflífa hann.
Þetta var mannskæðasta fjölda-
morð í skóla í sögu Bandaríkj-
anna þangað til í fyrradag, þegar
33 létust í árásinni í Virginia Tech
háskólanum.
Daginn áður hafði hann stung-
ið móður sína til bana með byss-
usting, keyrt aftur heim til sín og
myrt eiginkonu sína með sama
byssusting. Talið er að hann hafi
ekki viljað að þær skömmuðust
sín fyrir það sem hann átti eftir að
gera, myrða 15 manns til viðbótar.
Eftir að hann myrti móður sína
og eiginkonu skrifaði hann bréf
til föður síns og bróður. Í því stóð
meðal annars: „Ég get ímyndað
mér að það virðist harðneskjulegt
að ég hafi myrt tvo ástvini mína.
Ég var bara að reyna að láta þetta
taka fljótt af ... Ef líftryggingin mín
er í gildi, vinsamlegast greiðið
skuldirnar mínar ... gefið restina
nafnlaust til geðsjúkrastofnunar.
Kannski rannsóknir geti komið í
veg fyrir frekari harmleiki af þessu
tagi.“
Turn háskólans í Texas Hér kom Charles Whitman sé fyrir og skaut fimmtán
manns af færi.
Eric Harris annar skotmannana sem
myrtu tólf nemendur og einn kennara
í Columbine skólanum árið 1999.
Morðinginn Cho Seung-hui, frá
Suður-kóreu
Syrgja látna skólafélaga Syrgjendur voru margir hverjir klæddir í háskólaboli
merktum virginia Tech
Forsetahjónin george og laura Bush mættu á minningarhátíð sem haldin var um
fórnarlömbin í gær.
Sorg aldrei hafa fleiri verið myrtir
í skotárás í bandarískum skóla.