Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2007, Page 10
miðvikudagur 18. apríl 200710 Fréttir DV
Fátt getur stoppað „sarka“
Sífellt fleira dagvinnufólk í Jap-
an eyðir nóttunni á netkaffihúsum
og er hvergi með skráð lögheimili.
Vinnumálaráðuneyti landsins hef-
ur nú kafað ofan í málið sem er vax-
andi vandamál á meðal fátækra.
Þessir einstaklingar eru nú kallaðir
„netkaffiflóttamenn“ og verða sífellt
meira áberandi á þeim netkaffihús-
um sem opin eru allan sólarhring-
inn. Bilið milli ríkra og fátækra í ein-
um ríkasta landi heims er að aukast
þótt stjórnvöld neiti að horfast í augu
við þá staðreynd og eru netkaffi-
flóttamennirnir aðeins ein birtingar-
mynd þessa vandamáls.
Um 2.800 netkaffihús í Japan eru
opin allan sólarhringinn. Þau eru
gríðarlega vinsæl, hvort sem það er
vegna áhuga á tölvum eða af neyð.
Sum húsanna bjóða kúnnum sín-
um upp á lítil herbergi með aðgangi
að tölvum og veraldarvefnum. Þá er
sums staðar boðið upp á stóla þar
sem er auðvelt fyrir þreyttan verka-
mann að leggja sig. Sumstaðar er
jafnvel boðið upp á ódýran heitan
mat, svo að mögulegt er að fullnægja
ýmsum þörfum á þessum stöðum.
Verð fyrir eina nótt á netkaffinu er á
bilinu þúsund til tvö þúsund jen, sem
er lægra en hin margfrægu hólkahót-
el þar sem fjöldi fólk sefur í eins kona
hillu eða hólk samanþjappað á litlu
svæði.
Einnig er talið að fjöldi ungra
ómenntaðra dagverkamanna gisti á
þessum netkaffihúsum þar sem þeir
einfaldlega hafi ekki efni á að borga
leigu með sínu lágu launum. Fyr-
ir tíma netsins sváfu þessir menn á
sérstökum gistiheimilum, eins kon-
ar örhótelum, þar sem boðið var upp
á gistingu með mjög takmarkaðri
þjónustu þar sem eldhús og klósett
eru samnýtt gegn mjög lágu verði.
Ef menn geta ekki greit slíka gistingu
enda þeir oft á götunni.
Fulltrúi heilbrigðis-, vinnumála-
og velferðarráðuneytisins í Japan
lagði ríka áherslu á að stjórnvöld
yrðu að trúa veruleikanum og greina
vandamálið áður en þessum mönn-
um verður boðin aðstoð. Þar til verð-
ur þétt setinn bekkurinn á netkaffi-
húsum Japan.
Netkaffihús bjóða upp á sér margvísleg þægindi fyrir fólk sem á hvergi heima:
Japanir eyða nóttunum á netkaffi
Netkaffi. Sífellt fleiri eiga hvergi lögheimili og gista á netkaffihúsum.
„Forsetakosningarnar í Frakklandi
eru unnar eða þeim tapað á síðustu
fimmtán dögum kosningabaráttunn-
ar,“ er þekktur frasi í frönskum stjórn-
málum. Nú þegar einungis sex dag-
ar eru til kosninga er spennan farin
að magnast um allan helming og
línur farnar að skerpast milli helstu
frambjóðendanna Nicolas Sarkozy,
Ségoléne Royal, Francois Bayrou
og Jean-Marie Le Pen. Áherslumál
frambjóðendanna virðast einskorð-
ast við innanríkismál. Atvinnuleysi
hefur verið mikið og stöðugt í land-
inu, eða um tíu prósent. Vaxandi
spennu gætir meðal innflytjenda
sem finnast þeir afskiptir, auk þess
sem mörgum finnst tími til kominn
að hressa upp á þunglamalega þjóð-
ernishyggju sem er að sliga atvinnu-
vegina, og svo eru margir komn-
ir með leið á spillingu í efstu lögum
stjórnkerfisins.
Að setjast á forsetastól í Frakklandi
veitir mestu völd sem einstaklingur
getur haft í stjórnkerfinu. Forsetinn
er kosinn lýðræðislegri kosningu og
verður að fá að minnsta kosti fimm-
tíu prósent atkvæða. Litlar líkur eru á
að nokkur frambjóðendanna tólf nái
slíkum meirihluta í fyrstu umferð,
því er líklegast að kosið verði á milli
tveggja efstu í síðari umferð. Þrír ein-
staklingar eru líklegastir til að komast
í seinni umferð kosninganna.
Sterkara Frakkland Sarkozy
Hinn íhaldsami Nicolas Sarkozy,
eða „Sarka,“ hefur verið kallaður
„lögga númer eitt,“ vegna harðrar
afstöðu gagnvart innflytjendum og
aukinnar löggæslu. Hann er stór-
yrtur og ákveðinn, hefur reynslu af
efstu stigum stjórnkerfisins og nýtur
stuðnings fráfarandi forseta lands-
ins. Þegar óeirðir breiddust út eins
og eldur í sinu, eða öllu heldur í bíl-
um, um allt Frakkland í kjölfar lög-
leiðingu umdeildrar atvinnulöggjaf-
ar, stóð Sarkozy frammi fyrir skjöldu
eins og Napoléon gerði svo oft þeg-
ar mest dundi á Frakklandi. Sarkozy
var talinn hafa átt þátt í að kasta olíu
á eldinn með því að kalla uppreisn-
arseggina „racaille,“ eða skríl, en þó
er hann talinn hafa komist vel frá
ósköpunum.
Þrátt fyrir að eiga Jacques Chir-
ac mikið að þakka fyrir flug sitt upp
metorðastigann hefur hann reynt
að skilgreina sig frá þeirri klíku sem
hann hefur safnað í kringum sig inn-
an stjórnkerfisins. Sarkozy vill sterkt
Frakkland því hann vill meina að
landið sé uppgefið og þreytt og þurfi
nauðsynlega á endurnýjun að halda.
Sarkozy hefur notað Bretland sem
dæmi um land sem hefur þorað að
taka á innflytjendavandamálum af
festu, auk þess sem atvinnuvegirn-
ir hafa gefið íhaldsemi upp á bátinn
og lagt grunninn að aðlögunarhæfu
umhverfi sem henti sérstaklega vel
fyrir Evópu 21. aldarinnar. Bara það
að benda á að Bretland standi Frakk-
landi að einhverju leyti framar fær
blóðið til að sjóða í æðum margra
Frakka, sem neyðast þó til að viður-
kenna að Sarko hefur líklega rétt fyr-
ir sér.
Aukið lýðræði Royal
Sósíalistinn Ségolene Royal er
fyrsta kona í sögu lýðveldisins Frakk-
lands sem á möguleika á að öðlast
æðstu valdastöðu landsins. Hún gæti
því orðið fyrsti kvenleiðtogi lands-
ins síðan að hin goðsagnakennda
Jóhanna af Örk tók af skarið og leiddi
örmagna heri Frakklands til sigurs
gegn Bretum á 15. öld.
Royal er kölluð „gasellan,“ sem
lýsir glæsileik hennar og krafti. Roy-
al nýtur þess að vera nýtt andlit í
frönskum stjórnmálum og því eru
kjósendur ekki komnir með leið á
henni, auk þess að hún hefur haft
takmarkaðan tíma til að safna um
sig neikvæðu slúðri, eins og gjarnt
er um æðstu ráðamenn. Royal
leggur áherslu á sterkara lýðræði í
formi aukinnar þátttöku almenn-
ings í ákvarðanatöku með stofnun
hundruða nefnda, sem geta veitt
álit sitt á því hvernig Frakklandi
skuli stjórnað. Þessi málflutningur
hefur víðtæka skírskotun til kjós-
enda á vinstri vængnum sem lengi
hefur verið mjög virkur, svo ekki sé
meira sagt, í frönskum stjórnmál-
um. Veikasta hlið Royal er sú að hún
hefur ekki gefið út heildarstefnu í
öllum helstu málefnum heldur hef-
ur hún valið sér að leggja áherslu á
sanngjarnara Frakkland með því að
ráðast gegn hægri öflunum með sí-
gildum slögurum um spillingu og
sérhagsmunavernd, auk þess sem
hún virðist vera brothætt þegar hún
ræðir um utanríkismál, og má ef till
vill kenna takmarkaðri reynslu á
hæsta stigi stjórnkerfisins.
Vill þverpólitíska uppreisn
Francois Bayrou er frambjóðandi
miðjuflokksins. Hann stillir sér upp
gegn spillingu hægri flokksins og
meintu útlendingahatri Le Pen. Hann
bendir á að Frakkland sé stjórnað
af hægri valdaklíkunni og fyrirtækj-
um, sérstaklega fjölmiðlum. Hann er
þekktur fyrir að tala tæpitungulaust
og hefur bent á að forstjóri eiganda
stærsta fjölmiðils landsins, TF1, hafi
verið svaramaður í brúðkaupi Sarkoz-
ys og lítur á það sem táknrænt brúð-
kaup stórfyrirtækja og stjórnvalda.
Bayrou sér Frakkland sem spillt
og þreytt og segir að eina leiðin til að
berjast gegn hinum flókna vef spill-
ingar sé þverpólitísk borgaraleg upp-
reisn, sem minnir um margt á þann
uppreisnaranda sem sveif yfir vötn-
um þegar hann var ungur á sjöunda
áratugnum. Bayrou sækir fyrirmyndir
sínar til Hinriks fjórða Frakklandskon-
ungs sem náði að sætta kaþólikka og
mótmælendur og enda borgarastríð
við lok 16. aldar. Einnig lítur Bayrou
til Charles de Gaulle hershöfðingja
sem náði að sameina kommúnista,
sósíalista, miðjumenn og sína fylgis-
menn eftir lok síðari heimsstyrjald-
arinnar.
Bandalög til hægri og vinstri
Nú er staðan sú að Sarkozy hef-
ur síðustu tvær vikur mælst með 29
til 32 prósent fylgi. Royal hefur verið
að fá 23 til 25 prósent, Bayrou með 18
til 19 prósent og Le Pen með 12 til 14
prósent. Ef þetta yrðu úrslit fyrri um-
ferðar býður seinni umferð kosning-
anna upp á sígilda baráttu milli hægri
og vinstri aflanna, karls og konu þar
sem stuðningsmenn Le Pen myndu
styðja Sarkozy sem fengi um 42 til 44
prósent og stuðningsmenn miðju-
mannsins Bayrou myndu styðja Roy-
al sem fengi líka um 42 til 44 prósent.
En þess konar bandalögum fylgja
alltaf vandamál. Le Pen er öfgasinn-
aður þjóðernissinni sem vill gera
hlut útlendinga sem minnstan til að
hygla „alvöru“ Frökkum og vill meðal
annar stöðva flæði þeirra inn í land-
ið. Sarkozy hefur lýst því yfir að eng-
inn af frambjóðendum flokks Le Pen
muni setjast í ráðherrastól undir hans
forsæti og því gæti orðið erfitt fyrir að
Le Pen og fylgismenn hans að sætta
sig við að vera settir í skottið hjá hægri
mönnum. Aftur á móti virðist engin
gjá vera á milli Bayrou og Royal þótt
sá fyrrnefndi hafi ekki hampað henni
sérstaklega enda slást þau um sömu
kjósendur. Ef engin kosningabanda-
lög verða stofnuð er ljóst að enginn
getur stoppað „Sarka,“.
Ségoléne Royal Sósíalisti og
hörkukvendi sem vill auka beint
lýðræði.
Francois Bayrou reiður og vill stöðva
spillingu með þáttöku almennings.
Nicolas Sarkozy
íhaldsamt hörkutól sem
vill nútímavæða
Frakkland.
blaðamaður skrifar: skorri@dv.is
SkoRRi GíSlASoN
Tokyo höfuðborg Japan. Bilið milli ríkra og fátækra eykst stöðugt.