Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2007, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2007, Qupperneq 12
Menn hafa eitthvað verið að hneykslast á nafninu á framboðinu hans Ómars Ragnarssonar við kosn- ingarnar í vor. Segja að Íslandshreyfingin sé óviðeig- andi heiti á stjórnmálaflokki. Svona eins og Rakara- stofa Íslands væri í viðskiptalífinu. Stórt orð Hákot. Þessu er ég alveg ósammála. Úr því að Ómar er á annað borð að gefa kost á sér er ekki hægt að hugsa sér nafn sem er meira viðeigandi en Íslandshreyf- ingin. Ómar er eiginlega Ísland holdi klætt. Hann er Fjallkona nútímans, og látum þá ekki jakkafötin og þunna hárið trufla okkur. Við sem höfum svo að segja alist upp með honum frá blautu barnsbeini, heyrt hann daglega í útvarpi og séð í sjónvarpi, og hitt hann fyrir á öllum gleðistundum sem hægt er að hugsa sér; Sumardaginn fyrsta, þjóðhátíðardag- inn (Hæ, hó jibbí jei og jibbí jei, það er kominn 17. júní!), um verslunarmannahelgar, á sveitaböllum og jólatrésskemmtunum; við getum varla hugsað okkur nokkuð sem er íslenskara en Ómar Ragnarsson. Með kostum sínum og göllum. Og nú vill hann setjast á þing. En þá bregður svo við að þjóðin virðist ekki tilbúin að greiða götu hans. Íslandshreyfingin fær nánast ekkert fylgi í skoðana- könnunum. Meiri vandræðin. Hverju sætir þetta? Getur verið að Magga spilli fyrir? Að menn eigi erf- itt með að láta þau ríma saman, stjórnmálakon- una harðsnúnu og aðsópsmiklu og svo fjölskyldu- vininn sem okkur finnst hafinn yfir pólitík og þras? Kannski. Takist Ómari að draga Möggu á þing er það auðvitað hið besta mál. Ekki veitir af fleiri kven- skörungum þar. En getur verið að fleiri ætli sér að fljóta með Óskabarninu ef það fær byr? Er kannski laumufarþegi um borð? Sumir halda það. Kunnugt er að sá frægi klækjarefur, Jón Baldvin Hannibals- son, hefur dregið Ómar okkar inn í reykfyllt bak- herbergi og hvíslað ýmsu að honum. Einhverjir héldu að hann væri að biðja um að fá að vera á lista. Það var ekki. Hann er snjallari en svo. Hann ætlar auðvitað að verða forsætisráðherraefni flokksins í staðinn fyrir hinn reynslulausa Ómar ef svo færi nú að Íslandshreyfingin næði í höfn og hefði mann- afla sem Samfylkinguna og Vinstri græna vantaði til að mynda starfhæfa ríkisstjórn. Til eru jafnvel þeir sem trúa því að um þetta sé handsalað sam- komulag. Þeir sem lásu hina löngu grein Jóns Baldvins í Lesbók Morgunblaðsins á laugardaginn tóku eftir því að í lokin nefndi hann einmitt þann möguleika á stjórnarmyndun í vor, að Íslandshreyfing Ómars Ragnarssonar yrði í oddaaðstöðu svipað og Sam- tök frjálslyndra og vinstri manna í byrjun áttunda áratugarins. Þá var framsóknarmaður valinn í stól forsætisráðherra í staðinn fyrir sigurvegara kosn- inganna, Hannibal Valdimarsson. Skiljanlega vill sonurinn ekki að slík mistök endurtaki sig. En hvað með kjósendur? Þætti þeim ekki eins og Trölli hefði stolið jólunum? miðvikudagur 18. apríl 200712 Umræða DV Svo hörð eru þau sem tilheyra ríkisforréttindastéttunum að blygðunarlaust og án þess að roðna taka þau milljónir úr almanna- sjóðum til að mala undir rassinn á sjálfum sér. Nú þegar kosninga- undirbúningur er í fullum gangi ákveður þetta fólk að milljónum skuli varið til að borga lystireisu handa fólki sem er að hætta á Al- þingi, fólki sem ýmist hefur verið hafnað eða það ákveðið sjálft að nóg sé komið. Sukkarar flestra flokka sammælast um að senda val- inn hóp þessa fólks í ferðalag til Kaliforníu, í nafni Alþingis, vinnu- staðar sem það hefur þegar hætt störfum fyrir, þó enn berist þaðan launatékkar. Ómögulegt er að ferðin dýra skili til Alþingis nokkrum ávinningi og fyrirslátturinn að verið sé að endurgjalda einhverja auma heimsókn er ekki bara vonlaus, hann er vondur og öllum til skammar. Flokkarnir eru svo óhræddir við kjósendur að þeir geta ekki einu sinni látið staðar numið í bullinu fáum dögum fyrir kosningar. Það er sama hvernig þetta fólk hagar sér, almenningi virðist sama. Það kemur bara ekkert á óvart að Hjálmar Árnason og Sólveig Pétursdótt- ir hafi þegið ferðina. Það er verra að sættast við siðferðisbresti Sig- ríðar Önnu Þórðardóttur og sérstaklega Margrétar Frímannsdóttur. Hvar er sómi þessa fólks? Hefði ekki verið nær að borga skemmti- ferðir úr eigin vasa og hætta á þingi með sóma, ekki í skömm. Merkilegt væri ef kjósendur væru ekki eins fljótir að gleyma og raun ber vitni. Þá væri erfiðara fyrir þingmenn að sækjast eftir end- urýjuðu umboði til þingsetu. En þar sem svo stutt er til kosninga og frambjóðendur sýnilegri en annars ætti ekki að vera erfitt að spyrja þá hvernig þeir leggi blessun sína yfir að hluti þeirra sem er að hætta á Alþingi skuli á ríkisins kostnað sendir í skemmtireisu, gagnslausa skemmtireisu, reisu sem hefur ekkert með framtíð lands, þings eða þjóðar að gera. Ekkert. Allir þingmennirnir eru hættir störfum fyr- ir þing og þjóð. Vegna græðgi ákvað þetta fólk að hætta frekar með skömm en neita sér um eina utanlandsferðina enn. Laugardaginn 12. maí verða aðrir þingmenn kosnir í stað Kali- forníufaranna fjögurra og sagan mun endurtaka sig, aftur og aftur. Meðan staðreyndirnar eru þær að allt er fyrirgefið í stjórnmálum verða ekki neinar breytingar. Þeir sem grófast hafa hagað sér auka jafnvel vinsældir sínar. Þess vegna verður farið í aðrar ferðir á kostn- að almennings. Ferðir sem engu skila og eiga engu að skila öðru en minningum í hugum þeirra spilltu. Til þeirra sem nú eru í spillingarferðinni í Kaliforníu er þó hægt að segja eitt með nokkurri vissu; þau passa vel inn í félagsskap þing- manna sem þau nú eru að yfirgefa. Sigurjón M. Egilsson Hafa skömm fyrir Er Íslandshreyfingin með laumufarþega? Brautarholti 26 · 105 Reykjavík · 512 7000 · dv@dv.is DV greiðir 2.500 krónur fyrir þau fréttaskot sem leiða til frétta. Fyrir besta fréttaskot hverrar viku eru greiddar 5.000 krónur og 10.000 fyrir besta fréttaskot mánaðarins. 512 7070 frettaskot@dv.is Guðmundur maGnússon sagnfræðingur skrifar „Ómar er eiginlega Ísland holdi klætt. Hann er Fjall- kona nútímans, og látum þá ekki jakkafötin og þunna hárið trufla okkur. “ Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf. Stjórnarformaður: Hreinn loftsson framkVæmDaStjóri: Hjálmar Blöndal ritStjóri og áByrgðarmaður: Sigurjón m. Egilsson fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson Varla fundafært Minna virðist ætla að verða úr fundi Varmársamtakanna á laug- ardag en upp var lagt með. Búið var að boða full- trúa samgöngu- ráðuneytis og allra stjórnmála- flokka til að ræða samgöngu- og umhverfismál í Mosfellsbæ. Nú bregður hins vegar svo við að full- trúar ráðuneytisins neita að mæta og hik er á sumum pólitíkusum. Einhverjir þykjast greina fingra- för Ragnheiðar Ríkharðsdóttur bæjarstjóra sem vilji þagga um- ræðuna niður fram yfir kosningar. Heim til sturlu Samgöngumiðstöðin sem Sturla Böðvarsson samgönguráðherra er æstur í að byggja í Vatnsmýri vek- ur furðu sumra. Lítill tilgangur virðist vera fyrir hana ef engin er flugumferðin um Vatnsmýr- ina. Þarna getur verið ágætur staður fyrir rútur en varla verður mikið um umferð farþega stræt- isvagna. Framsóknarbloggarinn Pétur Gunnarsson er kominn með nýja hugmynd, nefnilega að reisa samgöngumiðstöðina í Stykkis- hólmi, heima hjá ráðherra. Óperubolti Garðar Thor Cortes syngur fyrir stuðningsmenn West Ham og Chelsea fyrir leik liðanna í kvöld eins og kemur fram hér í DV. Hann syngur meðal annars stuðningsmannalagið „I‘m Forever Blowing Bubbles“ sem stuðningsmenn West Ham hafa löngum sungið. Reyndar hefur lagið ekki alltaf notið virðingar. Fyrir nokkrum árum var það valið það stuðningsmannalag sem áhangendur liðs hefðu mesta ástæðu til að skammast sín fyrir. Sandkorn Umbrot: dv. Prentvinnsla: prentsmiðja morgunblaðsins. Dreifing: Árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. fréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson aðStoðarritStjóri: Sigríður Dögg auðunsdóttir auglýSingaStjóri: auður Húnfjörð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.