Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2007, Qupperneq 16
Manchester United náði að auka
forystuna á Chelsea á toppi ensku
úrvalsdeildarinnar með því að vinna
þægileg-
an 2-0 sig-
ur á Shef-
field Un-
ited í gær.
United hef-
ur nú sex
stiga for-
ystu í deild-
inni en Chelsea á hinsvegar leik inni
gegn West Ham í kvöld. Cristiano
Ronaldo lagði upp fyrra mark United
í gær með laglegri sendingu á Mic-
hael Carrick sem kláraði færið vel
með nettri vippu yfir markvörðinn
Paddy Kenny. Wayne Rooney skor-
aði annað markið þegar fimm mín-
útur voru liðnar af seinni hálfleik.
„Ég viðurkenni það að við höfum
oft spilað skemmtilegri bolta en við
gerðum í þessum leik. Við kláruðum
þó leikinn á mjög faglegan hátt og
vorum bara mjög yfirvegaðir og af-
slappaðir í seinni hálfleiknum. Þeg-
ar við höfðum náð forystu fóru menn
varlega í tæklingarnar enda má ekki
mikið bætast við meiðslavandræði
okkar. Mínir menn eiga hrós skilið og
á köflum spiluðu þeir mjög vel á milli
sín. Það getur verið erfitt að hafa
miðjumenn í báðum bakvörðunum
en þeir tveir leystu það vel,“ sagði
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri
Manchester United. Þar er hann að
tala um þá Darren Fletcher og Kier-
an Richardson.
Michael Carrick skoraði tvö mörk
gegn Roma í Meistaradeildinni í síð-
ustu viku og setti hann eitt í dag. „Það
er ekki hægt að segja að maður hafi
verið á skotskónum á tímabilinu en
ánægjulegt að vera farinn að skora
meira. Vonandi heldur það áfram því
það gerir mig bara enn verðmætari
fyrir liðið,“ sagði Carrick.
Það eru stigin sem telja
Ryan Giggs, hinn klóki væng-
maður United, var mjög sáttur við
stigin þrjú. „Sheffield United ætlaði
að reyna að verjast og halda marki
sínu hreinu. Það var ánægjulegt að
skemma það fyrir þeim strax í byrj-
un leiks. Við spiluðum ekki eins vel
og við höfum verið að gera og það er
tæpt að vera 1-0 yfir svo það var ljúft
að ná öðru markinu inn. Þetta snýst
um að ná stigum, okkur tókst það í
kvöld og verðum að gera það aftur á
laugardag þegar við fáum Middles-
brough í heimsókn,“ sagði Giggs.
Rio Ferdinand gat ekki spilað með
United í gær vegna nárameiðsla en
vonast er til að hann verði tilbúinn
í næsta leik. Þá var markvörðurinn
Edwin van der Sar fjarri góðu gamni.
Það breytti þó litlu og þrátt fyrir að
Manchester liðið hafi verið talsvert
frá sínu besta vann það sanngjarn-
an sigur. Ronaldo var arkitektinn að
fyrra marki United sem kom strax á
fjórðu mínútu leiksins en tveimur
mínútum síðar var Wayne Rooney
nálægt því að skora annað mark.
Meiðslavandræði liðsins halda
áfram og vinstri bakvörðurinn Pat-
rice Evra þurfti að yfirgefa völlinn
eftir nítján mínútur eftir tæklingu
Colin Kazim-Richards. Richardson
kom þá inn í vinstri bakvörðinn á
meðan Fletcher var í þeim hægri. Í
hjarta varnarinnar léku Wes Brown
og Gabriel Heinze saman.
Ryan Giggs átti frábæra send-
ingu á Rooney í öðru markinu og það
kláraði leikinn. Þó hefðu gestirnir átt
að fá vítaspyrnu í seinni hálfleiknum
þegar sóknarmaður þeirra var tækl-
aður af Heinze innan teigs. Kenny
varði í tvígang vel í seinni hálfleikn-
um en hinumegin komst Michael
Tonge næst því að skora tveimur
mínútum fyrir leikslok en skot hans
hafnaði í slánni.
Áttum að fá víti
„Mitt lið gerði sitt besta en við
töpuðum fyrir betra liði. Það var þó
algjörlega augljóst að við áttum að
fá vítaspyrnu þegar Gabriel Heinze
braut greinilega á Luton Shelton
innan teigs. Allir sem hafa einhverja
þekkingu á fótbolta vita að þetta var
víti. Svona hluti eiga dómarar að
hafa á hreinu. Ég veit að hann hefði
ekki verið að gleðja Sir Alex Fergu-
son með því að dæma víti og fólk vill
helst ekki koma Sir Alex í vont skap
en þetta voru klárlega mistök,“ sagði
Neil Warnock, knattspyrnustjóri
Sheffield United eftir leikinn.
Sheffield United er í fjórða neðsta
sæti deildarinnar en þar fyrir neðan
er Charlton í fallsæti.
elvargeir@dv.is
miðvikudagur 18. apríl 200716 Sport DV
ÍÞRÓTTAMOLAR
Gamst Pedersen til man. Utd.?
manchester united eru að sögn The
mirror að undirbúa átta milljóna punda
tilboð, sem
samsvarar einum
milljarði króna, í
Norðmanninn
morten gamst
pedersen hjá
Blackburn.
Blackburn
tvöfölduðu laun
pedersen í fyrra til
að halda honum
hjá liðinu en hann setti klásúlu í
samninginn sinn að bjóði lið átta milljónir
punda í hann er honum frjálst að fara.
liverpool fékk Craig Bellamy fyrir þetta
tímabil með því að nýta sér samskonar
klásúlu sem var í hans samning.
ÉG mUn sPila í meistara-
deildinni með atletico
Fernando Torres fyrirliði atletico madrid
ætlar ekki að yfirgefa félagið til að leika í
meistaradeild
Evrópu. Hinn 23 ára
gamli fyrirliði
atletico ætlar að
vera hjá uppeldisfé-
lagi sínu og leika í
deild þeirra bestu
með því. Hann býst
við að það takist á
næstu fimm árum.
„Þegar ég verð 28
ára þá verð ég búinn að spila í meistara-
deild Evrópu og ég verð búinn að gera
það með atletico. Ég er ekki að hugsa um
að fara. Ég er sannfærður um að ég muni
vinna titla hér.“
ekki að hUGsa Um man. Utd.
roy keane, stjóri Sunderland, segist ekki
vera að hugsa um að verða arftaki Sir alex
Ferguson hjá man.
utd. Áhrif keane á
lið Sunderland má
sjá á stigatöflunni í
fyrstu deildinni en
þar er liðið efst og
virðist ætla koma
sér aftur á meðal
þeirra bestu. „Ég sit
ekki heima og
hugsa um að ég
muni taka við man. utd. í framtíðinni. Ég
held að þið megið ekki hugsa að
Sunderland sé einhver stökkpallur fyrir
mig. Það er einfaldlega rangt og það er
móðgun við félagið.“ sagði hinn hreinskilni
keane.
eUro 2012 Ákveðið í daG
uEFa mun tilkynna í dag hvar
Evrópukeppnin verður haldin árið 2012.
ítalía og sameigin-
legt boð frá
ungverjalandi og
króatíu annars
vegar og Úkraínu
og póllandi hins
vegar bítast um
hnossið eftirsótta.
ítalir hafa verið
taldir líklegastir til
að fá keppnina en
ofbeldi á knattspyrnuvöllum, mútu-
hneyksli og fleiri neikvæðar umræður
gætu sett strik í reikninginn. „Ofbeldi
þekkist ekki bara á ítalíu. Það hafa verið
vandræði annars staðar líka,“ sagði luca
pancalli sem er í forsvari fyrir ítalíu. Tomasz
lipiec, íþróttamálaráðherra póllands,
sagði þrátt fyrir spillingu í pólskum
fótbolta væri hann bjartsýnn. „Það er
pólitísk krísa í kiev, en það lagast brátt.
Það er ég viss um. ítalir hafa einnig þurft
að glíma við spillingu í fótbolta, þeir eru
líka með pólitíska erfiðleika og svo hafa
þeir fótboltabullur þannig ég er bjartsýnn
á gott gengi okkar boðs.“
dida meiddUr
Brasilíski markvörður aC milan meiddist á
öxl gegn messina á sunnudag og gæti
misst af leiknum við
manchester united
í undanúrslitum
meistaradeildar
Evrópu. Hann mun
pottþétt missa af
næstu tveimur
leikjum aC milan í
deildinni. „við erum
áhyggjufullir, að
sjáfsögðu,“ sagði
læknir milan liðsins, Jean pierre
meersseman, í samtali við gazzetta dello
Sport. „við vildum að við værum 100%
vissir hvað er að öxlinni en það er því
miður ekki hægt vegna bólgu. auðvitað
vonum við að meiðslin séu ekki alvarleg.
Takmarkið er að hafa hann kláran fyrir
leikinn við manchester en það er óvíst að
það takist.“
Leikur Racing Santander og Real Madrid síðastliðinn sunnudag dregur dilk á eftir sér:
Dómaranum hefur verið hótað lífláti
Baskneski dómarinn Turienzo
Alvarez kom fram í gær og lýsti því
hvernig líf hans og fjölskyldu sinn-
ar hefði nánast verið lagt í rúst. Al-
varez rak tvo leikmenn Real Madrid
af velli með þriggja mínútna milli-
bili og dæmdi tvær vítaspyrnur, allt
á síðustu 17 mínútum leiksins. Síðari
vítaspyrnan kom á 90. mínútu sem
Ezequiel Garay skoraði og tryggði
Racing 2-1 sigur. Fyrir vikið komst
Real Madrid ekki á topp spænsku
deildarinnar.
„Ég hef fengið að minnsta kosti
fimmtíu símtöl heim til mín þar sem
mér og minni fjölskyldu er hótað líf-
láti. Mér líkar vel við að vera dómari
og ég reyni að dæma af heiðarleika
og bestu getu. En ég á fjölskyldu og
þetta er erfitt ástand. Okkur finnst
við óvarin gagnvart þessum hótun-
um,“ sagði Alvarez en leikmenn Real
Madrid hafa nánast stöðugt verið
með yfirlýsingar eftir leikinn þar sem
þeir kenna dómaranum um þrjú
töpuð stig.
Stóru félögin í Evrópu virðast
mega segja hvað sem þau vilja tapi
þau leik þar sem ákvörðun dómara
kemur við sögu. Frægt er að Ars-
ene Wenger stjóri Arsenal neitar
enn þann dag í dag að viðurkenna
að lið hans hafi tapað gegn Dynamo
Moskvu. Þar skoraði Thierry Henry
mark sem var dæmt af vegna þess
að Henry lagði boltann fyrir sig með
hendinni.
Alex Ferguson sagði eftir tap-
ið gegn Roma í fyrri leik liðanna í
Meistaradeildinni að hans menn
hefðu verið 10 á móti 12 og Anders
Frisk, dómari frá Svíþjóð, hætti að
dæma vegna hótanna frá stuðnings-
mönnum Chelsea eftir leik liðsins í
Meistaradeildinni þar sem hann rak
Didier Drogba af velli. Ástandið virð-
ist vera keimlíkt og þá.
„Við erum aðeins að tala um fót-
bolta. Ég er virkilega hræddur, ekki
vegna mín, heldur fjölskyldu minn-
ar. Ég á sex ára gamla stelpu sem fór
í garðinn og kom heim grátandi eft-
ir að hafa þurft að heyra svívirðing-
ar um mig. Hún sagði að börnin þar
hefðu sagt að ég hefði eyðilagt eitt-
hvað fyrir Real Madrid. Ég vissi ekki
hvað ég átti að gera eða segja.“
Mörg blöð á Spáni eru hliðholl
Real Madrid og má þar nefna Marca
sem er gríðarlega vinsælt blað þar
ytra. Þeir skelltu á forsíðuna á sunnu-
dag „Náið honum“ og mynd af Alvar-
ez þar sem búið var að teikna skot-
skífu á andlitið á honum.
„Ég vil ekki benda á einhvern einn
sem er sekur í þessu máli. Grein-
in var ósanngjörn og hefur áreiðan-
lega kveikt í mörgum,“ sagði Alvar-
ez. og bætti við að þegar hann fór af
hótelinu daginn eftir leikinn biðu �0-
40 manns eftir honum, ögruðu hon-
um og voru með niðrandi orð í hans
garð.
Predrag Mijatovic yfirmaður
íþróttamála Real Madrid var brjál-
aður eftir leikinn og sagði að mis-
tök hefðu átt sér staði í leiknum sem
væri ekki hægt að fyrirgefa. Dómara-
Ósáttir leikmenn real madrid
alvarez dómari segir guti, Casillias og
ruud van Nistelrooy að slaka á í leiknum
við racing.
Man. Utd - Sheff. Utd
2-0
1-0 (4.) Carrick
2-0 (50.) Rooney
Manchester United steig skref í átt að
Englandsmeistaratitlinum með því að
leggja Sheffield United að velli 2-0 í gær.
Það voru michael carrick og Wayne
rooney sem skoruðu mörkin í leiknum.
ÞægiLeguR siguR
hjá uniTed
Fyrra markið
darren Fletcher
og alan Smith
fagna með
michael Carrick.
rooney skorar Wayne
rooney hafði átt frekar
dapran leik þar til hann náði
að skora með þessu skoti.
ráð Spánar er að skoða hvort það ætli
að skjóta máli hans til knattspyrnu-
sambands Spánar. benni@dv.is