Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2007, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2007, Side 17
DV Sport miðvikudagur 18. apríl 2007 17 ÍÞRÓTTAMOLAR Dómara vikið úr starfi Joey Crawford, dómara í NBa, hefur verið vikið tímabundið úr starfi fyrir óíþrótta- mannslega framkomu í garð Tim duncan, leikmanns San antonio. atvikið átti sér stað í leik dallas og San antonio á sunnudaginn. duncan fékk tvær tæknivillur í leiknum og sagði að Crawford hafi skorað á sig í slagsmál skömmu áður en hann dæmdi villurnar á hann. „meðferð Joey Crawford á atvikinu stenst ekki þær kröfur sem gerðar eru til dómara í NBa,“ sagði david Stern, forseti deildarinnar. Neitaði real maDriD rafael Benítez, knattspyrnustjóri liverpool, segist hafa hafnað tilboði frá spænska stórliðinu real madrid sem bauð honum umtalsverða launahækkun. Benítez er víst efstur á óskalista real yfir nýja knattspyrnustjóra en talað hefur verið um að Fabio Capello verði ekki mikið lengur við stjórnvölinn þar. „Ég neitaði real þrátt fyrir að mér væru boðin betri laun. madríd er kannski minn bær en mér líður vel hjá liverpool og vill vera hér áfram,“ sagði Benítez. aNgel í mls Juan pablo angel, sóknarmaður aston villa, hefur samið við New York red Bulls í bandarísku mlS deildinni. Þessi kólumbíski sóknarmaður átti ár eftir af samningi sínum á villa park en var ekki í áætlun- um knattspyrnu- stjórans martins O´Neill. kaupverðið á þessum 31 árs leikmanni var ekki gefið upp. angel hefur gengið illa að brjótast inn í byrjunarlið aston villa á leiktíðinni en hjá New York red Bulls mun hann hitta fyrir miðju- manninn Claudio reyna sem lék með manchester City. síðasti leikur fyrir West Ham Öldungurinn Teddy Sheringham telur að hann hafi leikið sinn síðasta leik fyrir West Ham. Hann hefur ekki leikið síðan Hamrarnir töpuðu fyrir Watford í lok janúar. „Ég hef spurt knattspyrnustjórann af hverju ég fæ ekkert að spila og hann segist vera að reyna aðra hluti. Eins og staðan er núna held ég að ég hafi leikið minn síðasta leik fyrir félagið. Ég er til dæmis ekki í tuttugu manna leikmanna- hópnum sem mætir Chelsea svo það þarf mikið að breytast,“ sagði Sheringham sem er á fimmtugsaldri. iNter meistari í Dag? luciano Spalletti, þjálfari roma, segir inter eiga það fyllilega skilið að verða ítalskur meistari. Hann segir að liðið sé einfaldlega það besta á ítalíu en inter og roma mætast einmitt í dag á San Siro. með sigri tryggir inter sér ítalíumeistarinn með sigri en liðið hefur sextán stiga forskot í deildinni. „inter hefur frábært lið, okkar lið er bara gott. Þeir eiga skilið allt það það hrós sem þeir fá. við höfum spilað vel en tapað leikjum og getum því enn bætt okkur,“ sagði Spalletti. Ef Lokeren fer í aukakeppni um sæti í efstu deild gæti það sett strik í reikninginn: Tímabilið gæti lengst um þrjár vikur Ein mesta eftirvæntingin fyrir sumarið í Landsbankadeild karla er hvort Rúnar Kristinsson, leikmað- ur Lokeren, muni koma heim og spila með KR. Rúnar hefur enn ekki ákveðið hvort hann leiki með KR- ingum í sumar en eitt er víst, hann kemur heim eftir tímabilið í Belgíu. Lokeren er í þriðja neðsta sæti deildarinnar þegar fimm umferð- ir eru eftir. Ef Lokeren endar í næst neðsta sæti þarf liðið að fara í auka- keppni um sæti í deildinni og það gæti lengt tímabilið um tvær til þrjár vikur. Rúnar segir að það gæti haft sitt að segja um það hvort hann spili með KR í sumar. „Það er lítið búið að breytast í mínum málum. Málin hafa ekkert skýrst neitt hér hjá mér hvað varðar stöðu okkar í deildinni. Ef við föll- um niður um eitt sæti í deildinni þá förum við í aukakeppni um sæti í deildinni og þá gæti tímabilið lengst um tvær til þrjár vikur. Það er mjög erfitt fyrir mig að ákveða eitt- hvað áður en ég veit hvað verður,“ sagði Rúnar. „Það eru ennþá fimm vikur eftir af mótinu og mín mál gætu skýrst eft- ir tvær vikur í besta falli, ef við vinnum tvo leiki í röð. En ef við töpum þeim þá skýrist þetta ekki fyrr en eftir fjórar eða fimm vikur.“ Rúnar segir að sama hvort liðið falli eða heldur sér uppi þá sé það ljóst að hann flytji til Íslands eftir tímabilið. „Ég hef alltaf gert ráð fyr- ir því að um leið og tímabilið klárast hér þá munum við flytja heim í sumar. En maður veit aldrei hvað gerist og ég er ekkert að flýta mér í að taka ákvarðanir. Ég hef sagt við KR allan tímann að þeir eiga ekkert að gera ráð fyr- ir mér í þeirra plönum fyrir sum- arið. Ef ég kæmi heim að spila fyr- ir KR þá væri það bara bónus fyrir þá. Annars eiga þeir ekkert að gera ráð fyrir mér því ég get hvorki gefið þeim né öðr- um ákveðið svar fyrr en á síðustu stundu,“ sagði Rúnar. Tímabilið í Belgíu er langt og strangt. Rúnar hef- ur komið við sögu í öllum leikjum Lokeren á þessari leik- tíð nema einum, en þá tók hann út leikbann. Leikjaálagið hefur því verið töluvert á Rúnari í vetur en hann verður 38 ára 5. september. Forráðamenn Lokeren hafa ekki gefið það í skyn að þeir muni bjóða Rúnari nýjan samning enda hefur Rúnar tilkynnt þeim að hann muni ekki spila með liðinu á næsta tíma- bili. dagur@dv.is Hefur enn ekki tekið ákvörðun rúnar kristinsson útilokar ekki að leika með kr í sumar en það veltur á gengi lokeren í síðustu leikjum liðsins í Belgíu. Miklar breytingar eru fyrirhugað- ar hjá karlaliði Hauka í handboltan- um. Aron Kristjánsson hefur komist að samkomulagi um að þjálfa liðið á næstu leiktíð og nú þegar hafa tveir nýjir leikmenn, þeir Gunnar Berg Viktorsson og Gísli Guðmundsson, skrifað undir samninga við félagið. Þorgeir Haraldsson, formaður handknattleiksdeildar Hauka, segir að slæmt gengi í vetur hafi kallað á breytingar. „Við fengum gula spjald- ið í vetur. Þess vegna verður maður að skoða sín mál.“ Gunnar Berg og Gísli skrifuðu undir samning við félagið fyrir mán- uði síðan en það eru fleiri breyting- ar væntanlegar á leikmannahópi fé- lagsins. „Samúel er að fara út. Það er ekki alveg útséð með það hvort Árni Sig- tryggsson fer út eða verður áfram hjá okkur. Það er eitthvað sem við vitum ekki alveg strax,“ sagði Þorgeir. Sam- úel Ívar Árnason er á leið til Noregs eftir þetta tímabil en ekki er enn ljóst með hvaða liði hann mun spila. „Ég ætla að skoða mín mál og ef það er eitthvað skemmtilegt í boði þá að sjálfsögðu slæ ég til. Mig langar til að fara og gefa Noregi tækifæri og prófa nýja hluti,“ sagði Samúel í sam- tali við DV í gær. Þorgeir sagði að Aron væri að vinna í leikmannamálum félags- ins. „Aðalatriðið hjá okkur er samt að nýta ungu strákana og svo skoð- um við hvar þarf að fylla inní,“ sagði Þorgeir en Aron Kristjánsson tekur við Haukaliðinu um miðjan næsta mánuð. Óskar Ármannsson verður Aroni til aðstoðar og það eru fleiri breyt- ingar væntanlegar á þjálfarateymi liðsins. „Óskar verður áfram með ungmennaliðið og svo er ekki útséð hvort Halldór Ingólfsson komi inní þjálfarateymið líka og spili jafnvel eitt tímabili í viðbót. Eða verði að minnsta kosti með. Það er ekkert úti- lokað,“ sagði Þorgeir. „Við erum bara í naflaskoðun. Það er margt sem spilar inní. Við verð- um nánast með sama mannskap en það er að koma nýr þjálfari og með ákveðinni uppstokkun í þjálfarteymi okkar erum við að færast aðeins nær alvörunni. Við ætlum að leggja mikið í þjálf- arateymið og erum komnir með fleiri Haukamenn inní starfið sem eru búnir að öðlast reynslu útí heimi. Það er mikill metnaður í okkur og ætlum okkur að fara aftur uppí efstu sætin þar sem við teljum okkur eiga heima,“ sagði Þorgeir. Haukar rétt sluppu við fall á þess- ari leiktíð. Liðið er í sjötta sæti þegar ein umferð er eftir af DHL-deildinni, sem er langt frá því að vera viðun- andi árangur hjá Haukum sem hafa sex sinnum fagnað sigri í efstu deild karla, þar af fimm sinnum á síðustu átta árum. Einar Jónsson verður áfram með kvennalið Hauka á næsta tímabili en honum til aðstoðar verður Díana Guðjónsdóttir, núverandi þjálfari HK. Díana mun einnig sjá um yngri flokka félagsins. Fjárhagsstaða handknattleiks- deildarinnar hjá Haukum hefur oft verið á milli tannanna á fólki en Þor- geir sagði að hún væri góð. „Það er búið að endurskipuleggja fjárhaginn og deildir félagsins eru skuldlaus- ar. Félagið sem slíkt á eignir langt um fram skuldir og félagið er þannig uppbyggt að það stendur saman í því sem gerist innan deilda. Niður- staðan er sú að allar deildir eru með hreint borð.“ dagur@dv.is FenguM guLA spjALdið á Þessu TÍMAbiLi í leik með Wetzlar gunnar Berg viktorsson mun leika með Haukum á næstu leiktíð eftir sex í atvinnumennsku erlendis þar sem hann hefur leikið með Team Tvis Holstebro, pSg, Wetzlar og kronau-Östringen. Karlalið Hauka er stórhuga fyrir næstu leiktíð í handboltanum og miklar breyting- ar eru væntan- legar eftir slakan árangur í vetur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.