Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2007, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2007, Side 20
Menning miðvikudagur 18. apríl 200720 Menning DV VoxFox í Iðnó Sumartónleikar sönghóps- ins VoxFox verða haldnir í Iðnó, sumardaginn fyrsta kl. 20. Á tónleikunum verður meðal annars flutt efni með Bítlun- um, Billy Joel, Bobby McFerrin, ABBA, Beach Boys og Magn�si Eiríkssyni, allt �tsett fyrir 6 raddir. VoxFox er sex manna sönghópur sem sérhæfir sig í flutningi verka án undirleiks og flytur t.d. popp, rokk, jazz og klassík. Sönghópinn skipa: Þórdís Sævarsdóttir, Vigdís Garðarsdóttir, Lilja Dögg Gunn- arsdóttir, Gunnar Thorarensen, Hreiðar Ingi Þorsteinsson og Sverrir Örn Hlöðversson. Vika bókarinnar Í ár verður sérstök áhersla lögð á franskar bókmenntir í viku bókarinnar, sem stendur yfir frá 18.-22. apríl. Af því tilefni munu rithöfundarnir Emmanuel Carrère, Camille Laurens, Martin Page og Marie Darrieussecq koma hingað til lands og kynna Íslend- ingum verk sín. jazzhátíð LeikList Jazzhátíð Garðabæjar verður haldin 19.-21. apríl: Jazzinn brúar kynslóðabilið í Garðabæ Á Jazzhátíð Garðabæjar, sem n� er haldin öðru sinni, eru listamenn �r Garðabæ áberandi þó að þátttak- endur komi einnig víðar að. Að þessu sinni verður kastljósinu meðal ann- ars sérstaklega beint að yngstu og elstu jazztónlistarmönnum bæjarins. Að sögn Sigurðar Flosasonar, listræns stjórn- anda há- tíðarinnar, er mikill áhugi á jazztónlist í bæn- um. „Hér er heilmikil menning af öllu tagi,“ segir Garðbæingurinn Sig- urður, sem var bæjarlistamaður árið 2006. „En það er reyndar mjög mik- ið af frambærilegum jazztónlistar- mönnum í bænum.“ Hann segir gott tónlistaruppeldi einkum hafa áhrif þar á. „Það er svo mikið af góðum for- eldrum í bænum sem senda börnin sín í tónlistarskóla. Þar fá þau góðan grunn sem nýtist þeim í frekara tón- listarnámi.“ Dagskrá hátíðarinnar er fjölbreytt. Á opnunartónleikunum á sumardaginn fyrsta leikur Stórsveit Reykjavíkur ásamt Borgardætrum í hátíðarsal Fjölbrautaskólans í Garða- bæ. Á föstudagskvöldið verða yngstu jazzlistamenn bæjarins kynntir sér- staklega í sal Tónlistarskólans í Garða- bæ. Laugardaginn 21. apríl leikur Jóel Pálsson ásamt kvintett lög af hljóm- plötu sinni Varp sem nýverið hlaut Ís- lensku tónlistarverðlaunin sem plata ársins 2006 og á lokatónleikum hátíð- arinnar á laugardaginn leiðir einn af bestu jazzpíanóleikurum þjóðarinn- ar, Agnar Már Magn�sson, tríó sitt á tónleikum með þeim Þorgrími Jóns- syni á kontrabassa og Erik Qvick á trommur. Dagskrá Agnars og félaga er tileinkuð merkisberum jazzins í Garðabæ; píanóleikurunum Árna Elfari og Ólafi Stephensen. Ókeypis verður inn á alla tónleika á hátíðinni en tónleikagestum er bent á að sækja sér miða fyrirfram í �tib�i Glitnis við Garðatorg til að tryggja sér sæti, en einnig verður hægt að fá miða á tón- leikastöðunum sjálfum. Sigurður Flosason listrænn stjórnandi hátíðarinnar. Svanasöngur í Neskirkju Vortónleikar l�ðrasveitar- innar Svans verða haldnir á laugardaginn kl. 16 í Nes- kirkju. Einleikari á tónleikun- um verður Einar Jóhannesson klari-nettuleikari og R�nar Óskarsson stjórnar. Á efni- skránni má meðal annars finna verkin Sögur af sæbj�gum eftir Össur Geirsson og lagasyrpu �r West Side Story eftir Leonard Bernstein, en Einar Jóhanes- son mun stíga á stokk og leika einleik í verkinu Clarinet on the town eftir Ralph Hermann. Opið hús Tveir hönnuðir gengu ný- lega til liðs við konurnar í Kirsu- berjatrénu við Vesturgötu, þar sem íslensk hönnun hefur verið til sýnis og sölu undanfarin 13 ár. Þær Sigríður Ásta Árnadótt- ir sem hannar ullarföt undir nafninu Kitschfríður og Sig- r�n Einarsdóttir glerlistakona í Bergvík efna af þessu tilefni til opnunarveislu í Kirsuberja- trénu, Vesturgötu 4, á föstudag- inn milli 5 og 7 þar sem þær kynna hönnun sína og taka á móti gestum. Leikritið Hjónabandsglæpir, eftir franska leikskáldið Eric-Emmanuel Schmitt, verður frumsýnt í Kassanum á föstudagskvöldið. Þar er á óvæntan hátt tekist á við ástina, hjónabandið og samskipti kynjanna. Þjóðleikh�sið frumsýnir í Kass- anum á föstudagskvöld leikritið Hjónabandsglæpi eftir Eric-Emm- anuel Schmitt, í þýðingu Kristjáns Þórðar Hrafnssonar. Sýningin er hluti af frönsku menningarhátíð- inni Pourquoi Pas – Franskt vor á Íslandi, sem Þjóðleikh�sið tekur þátt í með ýmsum hætti. Í tilefni há- tíðarinnar var þar nýlega sýnt leik- ritið Ímyndunarveikin eftir Molière og franska gestasýningin Etabl´île var sett upp í K�lunni. Auk þessa stendur leikh�sið fyrir kynningu á Sædýrasafninu, nýju leikriti eftir frönsku skáldkonuna Marie Dar- rieussecq, í Leikh�skjallaranum næstkomandi laugardagskvöld. Átök um sannleikann Í verkinu er fjallað um samband Róberts og Elísabetar, sem hafa b�ið saman í fimmtán ár. Róbert glímir við minnisleysi eftir höfuðhögg og reynir að endurheimta minnið með aðstoð eiginkonu sinnar og við það upphefjast óumflýjanleg átök um sannleikann í hjónabandi þeirra. Í tilkynningu frá Þjóðleikh�sinu seg- ir að í Hjónabandsglæpum takist höfundur á „óvæginn og óvæntan hátt við ástina, hjónabandið og samskipti kynjanna. Í verkinu blasa innviðir hjónabandsins við okkur og ýmsar skuggahliðar þess koma í ljós, en jafnframt tekst höfundur- inn á áhugaverðan hátt við löngun mannsins til að láta ástarsamband vara.“ Hjónin eru leikin af Hilmi Snæ Guðnasyni og Elvu Ósk Ólafs- dóttur en leikstjóri sýningarinn- ar er Edda Heiðr�n Backman, sem auk þess að vera ein virtasta leik- kona þjóðarinnar hefur leikstýrt verkum á borð við Sölku Völku, Mýrarljós og Átta konur. Höfundur leikmyndar og b�ninga er Jón Axel Björnsson, Óskar Guðjónsson sem- ur tónlist og Lárus Björnsson hann- ar lýsingu. Vinsælt leikskáld Eric-Emmanuel Schmitt er þekktastur fyrir leikritin Abel Snor- ko býr einn, sem sýnt var í Þjóð- leikh�sinu 1998, og Gestinn, sem Leikfélag Reykjavíkur setti upp árið 2002. Schmitt nýtur mikilla vinsælda um þessar mundir og er mest leikna franska leikskáldið um þessar mundir. Hann �tskrifaðist sem doktor í heimspeki frá l‘Ecole Normale Supérieure og náði fyrst hylli sem leikskáld með Gestinum, sem hefur verið sett upp um allan heim við góðar undirtektir. Hann hefur hlotið fjölda verðlauna, til dæmis Molière-leiklistarverðlaun- in og leiklistarverðlaun frönsku Akademíunnar. Leikskáldið Eric-Emmanuel Schmitt nýtur mikilla vinsælda um þessar mundir. ÁTÖKIN um sannleikann

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.