Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2007, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2007, Blaðsíða 22
miðvikudagur 18. apríl 200722 Neytendur DV Bílar Honda Civic umhverfisvænn Vefsíðan Greenercars.com hefur birt lista yfir 10 umhverf- isvænustu bíla heims fyrir árið 2007. Honda Civic GX , sjálf- skiptur með 1,8 lítra vél var valinn umhverfisvænsti bíll árs- ins. Í öðru sæti á listanum var Toyota Prius bifreið, sjálfskiptur með 1,5 lítra vél. Í þriðja sæti var Honda Civic Hybrid, sjálf- skiptur með 1,3 lítra vél. Vefsíðan birti einnig lista yfir þá bíla sem eru skaðlegastir umhverfinu og var Wolkswagen Touareg með 5 lítra vél í efsta sæti á listanum. BMW verður umhverfisvænn BMW framleiðandinn hef- ur í huga að framleiða hybrid útgáfur af BMW 5-línunni fyrir árið 2010. Samkvæmt upplýs- ingum frá fyrirtækinu munu bílarnir ganga á diselolíu og rafmagni, en flestir hybrid bílar ganga á bensíni og rafmagni. Framleiðandinn hefur þó sagt að þeir muni aðeins framleiða bílana ef fyrirtækinu tekst að gera vélar bílana betri og hag- kvæmari í rekstri en venjulegar dísel vélar. Sekta ekki strax Frá og með 15. apríl síðast- liðnum var notkun nagladekkja bönnuð á götum úti. Sam- kvæmt upplýsingum frá Um- ferðarstofu verða þó ekki gerðar athugasemdir vegna nagla- dekkja við bifreiðaskoðun fyrr en um miðjan maí, það sé gert vegna þess að tekið sé tillit til íbúa á snjóþyngri svæðum. Hjá Lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu fengust þær upplýsingar að þó svo lögreglan hafi heimild til þess að sekta ökumenn á nagladekkjum verði sektum ekki beitt fyrr en eftir næstu mánaðamót. Kvartmílúklúbburinn var stofn- aður árið 1975 í þeim tilgangi að koma hraðakstri af götunum. Að sögn Jóns Gunnars Kristinssonar varaformanns Kvartmíluklúbbsins var ástandið á götum úti ekki mjög gott á þeim tíma. „Það voru allir að spyrna úti um allt, uppi á Hólms- heiði, á Kjalarnesi og víðar. Þá var Kvartmíluklúbburinn stofnaður, til þess að koma hraðakstrinum á lok- að svæði,“ segir Jón Gunnar. Klúbburinn stendur fyrir allt að sjö keppnum hvert sumar og geta meðlimir klúbbsins komið á brautina öll föstudagskvöld þeg- ar aðstæður leyfa og fengið út- rás fyrir hraðakstursþörf. „Við erum íþróttafélag og erum aðilar að Íþróttabandalagi Hafnarfjarð- ar. Við höldum Íslandsmeistara- keppni í kvartmílu, þar sem tveir bílar spyrna 402 metra vegalengd í einu og sá sem kemur á undan yfir endamarkið vinnur.“ Mikil stemming á brautinni Jón Gunnar segir Kvartmílu- klúbbinn hafa vaxið hratt á síðustu árum. „Á æfingunum á föstudags- kvöldum myndast mikil stemm- ing og allt upp í 70 bílar mæta á brautina og fjöldinn allur af fólki. Við erum í mikilli uppsveiflu núna, því frá árinu 2000 er meðlimum í klúbbnum búið að fjölga úr fimm- tíu í tvöhundruð og sjötíu,“ segir hann og tekur fram að ekki séu all- ir meðlimir karlar. „Það er eru um það bil tuttugu konur, eða kannski tíu prósent meðlima. Þær hafa ver- ið duglegar að mæta á æfingar og spyrna, bæði á bílum og á mótor- hjólum.“ Kvartmíluklúbburinn stend- ur um þessar mundir fyrir sýning- unni Bíladella 2007, en sýningin er árlegur viðburður hjá klúbbnum. Sýningin hefst á morgun, sumar- daginn fyrsta og stendur fram yfir helgi. „Þetta er fyrst og fremst fjár- öflun fyrir okkur. Við stefnum af því að byggja upp svæðið okkar, en við erum búin að fá úthlutað 50 hekt- ara af landi í kringum kvartmílu- brautina. Við viljum byggja kapp- akstursbraut í kringum hana, ef allt gengur eftir. Þetta er allt á frumstigi hjá okkur og við þurfum að láta hanna brautina fyrir okkur, sem er kostnaðarsamt.“ Á sýningunni verða til sýnis ým- iskonar bílar og nýjustu tækin sem flutt hafa verið til landsins, auk þess verða á sýningunni bílar sem hafa ekki verið sýndir lengi. „Við erum að reyna að höfða til unga fólksins frá 8-80 ára,“ segir hann og útskýr- ir: „Við erum að höfða til þessara stráka, sem verða aldrei annað en strákar.“ Ekki ökuníðingar Jón Gunnar viðurkennir að slys hafi orðið á kvartmílubrautinni, en engin það alvarleg að ökumenn hafi ekki stigið sjálfir út úr bílunum. Hann bendir á að allt mótorsport sé skilgreint hættulegt. „Það er örygg- isbúnaðinum að þakka. Við erum með hjálma, öflug öryggisbelti og veltigrindur. Sumir bílar sem koma á brautina eru allt að tvöþúsund og fimmhundruð hestöfl og þeir eru ekki notaðir í neinum öðrum til- gangi.“ Hann segir flesta bílana sem koma á brautina þó vera venjulega bíla sem kvartmílufólk ekur dags daglega um á. „Kvartmíluklúbbs- meðlimir eru ekki endilega öku- níðingar, þó svo einhverjir geti ver- ið það. Við reynum að hvetja unga ökumenn til þess að koma til okkar í staðinn fyrir að keyra hratt á göt- um úti. Þeir sem hafa verið í þessu lengi, reyna sömuleiðis að bera út þennan boðskap til yngri kynslóð- arinnar,“ segir hann. „Við erum ekki endilega með predikanir, það er ekki okkar stíll. Við teljum að aðrir aðilar eigi að vera í því, svo sem tryggingafélögin og Umferðarstofa. Við bjóðum upp öruggari á möguleika fyrir þá sem hafa gaman af því að keyra hratt.“ Ford áreiðanlegastur Lesendur Reader´s Digest hafa kosið Ford sem áreiðanlegasta bílaframleiðanda á Bretlandseyjum, þetta er sjöunda árið í röð sem Ford hlýtur titilinn. Tuttugu og fjögur þúsund atkvæði bárust í kosning- unni, sem náði til fimmtán landa í Evrópu. 2000hestafla bílar VaLgEiR ÖRn RagnaRsson blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is Kvartmíluklúbburinn var stofnaður árið 1975 og hefur allar götur síðan reynt að koma hraðakstri af götunum og inn á lokað svæði. Jón gunnar Kristjánsson varaformaður klúbbsins segir mikla aukningu vera í klúbbnum. Meðlimum hefur á síðustu sjö árum fjölgað úr fimmtíu í tvöhundruð og sjötíu. Á morgun hefst sýningin Bíladella 2007, sem Kvartmíluklúbburinn stendur fyrir. Jón gunnaR KRisTinsson varaformaður kvartmíluklúbbsins. aLLaR gERðiR Bílar kvartmílúklúbbs- ins eru af öllum stærðum og gerðum. gíFuRLEguR KRaFTuR Sumir bílar kvartmíluklúbbsins eru allt að 2500 hestöfl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.