Læknablaðið - 15.01.1983, Page 31
LÆKNABLADID
21
Tafla L: Fjöldi fædinga 1972-1981, eftir aldri mædra.
1972 1973 1974 1975 1976 1977 1978 1979 1980 1981 Alls
-19 ára ......... 784 740 709 694 658 622 625 599 628 550 6609
20-24 ára ......... 1741 1720 1526 1577 1548 1390 1481 1637 1539 1499 15658
25-29 ára ......... 1136 1190 1176 1198 1205 1148 1198 1290 1333 1299 12173
30-34 ára .......... 610 624 596 616 635 580 622 771 790 778 6622
35-39 ára .......... 364 278 258 272 241 251 237 274 311 307 2793
40-44 ára .......... 102 105 78 83 80 70 53 42 44 41 43
45- ára .............. 6 6 4 4 4 5 5 5 2 2 43
Óviss aldur ....... 17 4 5 1 27
Samtals 4760 4667 4347 4449 4371 4066 4222 4618 4647 4476 44623
hjá konum yfir 35 ára aldri hefur fækkað jafnt
og f>étt allt tímabilið. Einkum er þetta áber-
andi hjá konum, sem náð hafa fertugs aldri.
Tafla 1 sýnir þessa þróun vel. (Taflan sýnir
allar fæðingar á íslenzkri grund að meðtöldum
um það bil 120 fæðingum erlendra kvenna
árlega). Síðastliðin þrjú ár hafa innan við 50
konur yfir fertugt fætt á ári hverju í landinu og
allan áratuginn hafa sex konur eða færri fætt á
ári hverju, sem orðnar eru 45 ára eða eldri.
Hefur þróun á þessu sviði orðið öllu örari hér
á landi en meðal nágranna okkar. Sú fækkun
fæðinga meðal eldri kvenna, sem átt hefur sér
stað sl. áratug, kann að eiga nokkurn þátt í
lækkun burðarmálsdauðans á sama árabili,
eins og lýst var í 2. grein.
Hlutfallslegur þáttur ungra mæðra, þ.e. 19
ára og yngri, í fæðingatíðni var undir
fimm prósentum allt fram á þriðja áratug
aldarinnar. Hlutur þeirra jókst síðan örum
skrefum allt fram á síðasta hluta sjöunda
áratugs er þáttur þeirra í fæðingatíðni náði
17,5 prósentum. Þessi hækkun vakti athygli
m.a. í nágrannalöndunum, þar sem ungar
mæður áttu minni þátt í fæðingum en hér
tíðkaðist. Síðastliðinn áratug hefur þessi þróun
snúist við með verulegri lækkun, í 12,3 prósent
árið 1981.
Fróðlegt er í þessu sambandi að athuga
meðalaldur mæðra síðustu tvo áratugi. Skv.
upplýsingum Hagstofu íslands var hann:
27.2 ár 1961-1965,
26.3 ár 1966-1970,
25,7 ár 1971-1975,
en hækkaði síðan aðeins
þeta í
25,9 ár 1976-1980.
Þetta dregur saman á einfaldan hátt þá þróun,
sem fram kemur í línuriti sl. tvo áratugi.
í næstu grein verður rætt um frjósemi
mæðra.