Læknablaðið - 15.11.1985, Page 30
302
LÆKNABLAÐIÐ
Að loknu erindi ráðherra flutti formaður
skýrslu stjórnar og gjaldkeri lagði fram
endurskoðaða ársreikninga. Urðu nokkrar
umræður um skýrslu formanns og fyrir-
spurnir varðandi ársreikninga, en þeir voru til
afgreiðslu síðari fundardag.
Þessu næst voru lagðar fram tillögur til
ályktunar á fundinum, 18 að tölu, og voru
leyfðar stuttar umræður um þær.
Eftir að ályktunartillögur höfðu verið
kynntar, flutti Finnbogi Jakobsson yfirlit yfir
tryggingar lækna í starfi.
Að loknu kaffihléi flutti Friðrik Karlsson
skýrslu stjórnar Domus Medica og Páll
Þórðarson skýrslu Ekknasjóðs og Lífeyris-
sjóðs lækna.
Næst á dagskrá var framsöguerindi Viðars
Hjartarsonar um »Framhaldsmenntun ís-
lenzkra lækna og sérfræðiréttindi«. Erindið
var fróðlegt og yfirgripsmikið, og urðu líf-
legar umræður í framhaldi af því.
í lok fundardags var fulltrúum skipt í
starfshópa til að fjalla um framkomnar
ályktunartillögur, og var fundi frestað til
næsta dags.
Að morgni 25. ágúst voru tillögur teknar til
umræðu og afgreiðslu. Tillögurnar, sem
starfshóparnir höfðu fjallað um og breytt
sumum hverjum voru allar samþykktar nema
ein, sem vísað var til stjórnar félagsins. Þá
höfðu verið lagðar fram tvær tillögur varð-
andi greiðslu ferðakostnaðar á fundi L. í, og
var aðeins önnur þeirra borin undir atkvæði.
Samþykktar tillögururdu þannig 16 og fara
þær hér á eftir:
I. Aðalfundur Læknafélags fslands haldinn á
ísafirði dagana 24. og 25. ágúst 1984 heimilar
stjórn félagsins að gerast fullgildur aðili að
Vinnudeilusjóði lceknafélaga Norðurland-
anna eins oghann var undirritaður ásameigin-
legum fundi stjórna lœknafélaganna I
Reykjavík þann 20. júní sl. Lœknafélag ís-
lands ábyrgistfjárframlög íhlutfalli viðfram-
lög hinna lœknafélaganna miðað við
fjölda meðlima.
II. Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn
á ísafirði dagana 24. og 25. ágúst 1984 skorar
á heilbrigðisráðherra að gangast fyrir breyt-
ingum á lœknalögum á þann hátt, að öðrum
en lœknum verði bannað að auglýsa starfsemi
þeirra eða á annan hátt stuðla að því, að
sjúklingar leiti til ákveðins eða ákveðinna
lækna. Heilsugœzlustöðvum og öðrum heil-
brigðisstofnunum verði gert að sæta sömu
reglum og læknum um auglýsingar og kynn-
ingu.
III. A ðalfundur Læknafélags íslands haldinn
á ísafirði dagana 24. og 25. ágúst 1984 skorar
á heilbrigðisráðherra að láta endurskoða
reglugerð nr. 246/1982 um greiðslur almanna-
trygginga á lyfjakostnaði, þannig að sjúk-
lingum með langvinna sjúkdóma veitist ekki
erfitt að standa undir lyfjakostnaði.
IV. A ðalfundur Læknafélags íslands haldinn
í kaffihlé á aðalfundinum 1985. Frá
vinstri: Pétur Z. Skarphéðinsson,
Gunnsteinn Stefánsson og Hjálmar
Freysteinsson.