Læknablaðið - 15.11.1985, Side 36
304
LÆKNABLAÐIÐ
ingar sjái sjálfir um menntun þeirra lœkna,
sem sjá eiga um frumheilsugæzlu, og komi
það á undan öðrum sérhæfðum sviðum lækn-
isfrœðinnar. Nú þegar erfyrir hendi mannafli
til þessa verkefnis og stöður innan heil-
brigðisþjónustunnar, þannig að lykillinn að
framkvœmd liggur í vilja og framsýn for-
ystumanna í heilbrigðis- og menntamálum.
XVI. Aðalfundur Læknafélags íslands hald-
inn á ísafirði dagana 24. og 25. ágúst 1984
skorar á læknadeild Háskóla íslands að vinna
að stofnun prófessorsembættis í heimilis-
lækningum við deildina.
Eftirfarandi tillögu frá Lœknafélagi
Akureyrar var vísað til stjórnar L. í:
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn á
ísafirði 24. til 25. ágúst ályktar, að nauðsyn-
legt sé, að Lœknafélag fslands verði í fram-
tíðinni aðili að samningi um sérfræðilækn-
ishjálp utan sjúkrahúsa, þannig að tryggt
verði, að samningur þessi gildi fyrir alla
sérfræðinga, hvar sem þeir eru búsettir á
landinu. Ennfremur ályktar fundurinn, að
koma þurfi nýju skipulagi á atkvæðagreiðslur
um samninga, þannig að tryggt verði, að
öllum læknum gefist kostur á að greiða
atkvæði um samninga, sem þeir eiga að starfa
eftir.
Að loknum hádegisverði voru reikningar
félagsins samþykktir einróma eftir nokkrar
fyrirspurnir. Þá var fjárhagsáætlun næsta
starfsárs samþykkt og árgjald ákveðið kr.
12.000,00. Þar af kr. 1.500,00 til svæðafélaga.
Lára M. Ragnarsdóttir, hagfræðingur,
flutti þessu næst erindi, þar sem hún fjallaði
um fjárfestingar í heilbrigðisþjónustu og
áætlanagerð. Fram kom, að erfitt væri að afla
upplýsinga um fjárfestingu hins opinbera á
þessu sviði og í mörgum tilvikum næsta
útilokað. Einnig kom fram hjá Láru, að ef
bæta ætti heilbrigðisþjónustu í landinu án
þess að auka hlut hennar í þjóðarútgjöldum,
þyrfti að bæta áætlanagerð frá því, sem nú er.
Að loknum stuttum umræðum var Láru
þakkað með góðu lófataki.
Var þessu næst gengið til kosninga:
Úr stjórn áttu að ganga Halldór Steinsen,
varaformaður, og Kristján Eyjólfsson, ritari,
en þeir voru báðir endurkjörnir til næstu 2ja
ára. Finnbogi Jakobsson, Haukur Þórðarson
og Ólafur Z. Ólafsson voru endurkjörnir
meðstjórnendur og auk þess Arnór Egilsson í
stað Kristófers Þorleifssonar, allir til eins árs.
Endurskoðandi var endurkjörinn Einar Jón-
mundsson og til vara Þorkell Bjarnason.
í Gerðardóm var kjörinn til tveggja ára
Sigursteinn Guðmundsson og til vara Pálmi
Frímannsson.
í Siðanefnd voru endurkjörnir til tveggja
ára Guðmundur Pétursson og Þorgeir
Gestsson. Varamenn voru kjörnir Hannes
Finnbogason (endurkjörinn) og Ólafur
Bjarnason.
Undir dagskrárliðnum »Ýmis mál« ræddi
Jón Bjarni Þorsteinsson um nauðsyn atvinnu-
leysistryggingasjóðs fyrir lækna, og Þorvald-
ur Veigar skýrði frá því, að Styrktarsjóður
lækna yrði lagður niður.
Fundi var lokið kl. 15.
Að kvöldi laugardags sátu fulltfúar og
gestir kvöldverðarboð bæjarstjórnar ísa-
fjarðar og stjórnar sjúkrahússins, þar sem
héraðslæknir Vestfirðinga hélt uppi röð og
reglu.
Meðan beðið var flugs á sunnudag var farið
út í Vigur og notið þar leiðsagnar Baldurs
Bjarnasonar, bónda, og síðan kaffiveitinga á
heimili þeirra hjóna. Með fylgdarlið fulltrúa
hafði áður verið farið til Bolungarvíkur og að
Núpi við Dýrafjörð. Var af öllu þessu hin
besta skemmtun.
Að öðru leyti vísast til fundargerðar aðal-
fundar, Lbl. 2/1985.
STJÓRNARFUNDIR
Stjórn Læknafélags íslands heldur fundi að
jafnaði á þriðjudögum kl. 17 til 19 eða 19.30.
Á tímabilinu, sem skýrslan nær yfir, voru
haldnir 40 fundir og að meðaltali voru 11 mál
tekin fyrir á fundi hverjum.
Þáhalda stjórnirL. í. ogL. R. sameiginlega
fundi af og til. Haldnir voru þrír slíkir fundir
á starfsárinu.
FORMANNARÁÐSTEFNA
Fundur stjórnar L. í. með formönnum
svæðafélaganna var haldinn laugardaginn 20.
apríl 1985 í Domus Medica. Fulltrúum frá
Félagi íslenzkra heimilislækna, Félagi ungra
lækna, Sérfræðingafélagi íslenzkra lækna og
Félagi yfirlækna var boðið að sitja fundinn,
og komu formenn frá tveim fyrstnefndu
félögunum.