Læknablaðið - 15.11.1985, Qupperneq 39
LÆKNABLAÐIÐ
305
FUNDAREFNI
/. Formaður gerði grein fyrir afgreiðslu
ályktana síðasta aðalfundar.
2. Gerð grein fyrir stöðu í samninga- og
kjaramálum, sérstaklega voru rædd mál
heilsugœslu- og heimilislœkna, sem flestir
höfðu sagt upp störfum. Gunnar Ingi
Gunnarsson, formaður samninganefndar
heilsugœziulœkna, tók þátt í þessum
dagskrárlið.
3. Málefni Læknaþjónustunnar s.f.
4. Orðabókasjóður (sjá undir orðanefnd).
5. Bókasafnsmál.
6. Undir liðnum »Önnur mál« var rætt um
endurskoðun á reglugerð um veitingu
lœkningaleyfa og sérfræðileyfa, svo og
samskipti lækna og Tryggingastofnunar
ríkisins.
Að öðru leyti vísast til fundargerðar
formannaráðstefnunnar.
AFGREIÐSLA ÁLYKTANA OG
TILLAGNA FRÁ AÐALFUNDI 1984
Ályktun um samþykkt aðildar að vinnu-
deilusjóði læknafélaganna á Norðurlöndum.
Staðfesting var tilkynnt viðkomandi félögum
og jafnframt, að L. í. gengist undir hlut-
fallslega ábyrgð á við hin félögin.
Ályktun um numerus clausus í læknadeild.
Ályktunin ásamt greinargerð var send
menntamálaráðherra og afrit send forseta
Iæknadeildar, háskólarektor, landlækni og
heilbrigðisráðherra.
Ályktun um framlag íslands til þróun-
arhjálpar. Ályktunin var send utan-
ríkisráðherra ásamt hluta greinargerðar. Af-
rit fengu landlæknir, Þróunarsamvinnustofn-
un íslands og heilbrigðisráðuneyti.
Áskorun til heilbrigðisráðherra um breyt-
ingu á læknalögum. Ályktunin var send
ráðherra ásamt greinargerð. Afrit var sent
landlækni. í svarbréfi ráðherra segir, að
ráðuneytið muni taka afstöðu til áskorunar-
innar við endanlega gerð nýs frumvarps um
læknalög. Fyrirhugað var að leggja frum-
varpið fram á Alþingi á sl. vetri, en af því varð
ekki.
Ályktun um áskorun á heilbrigðisráðherra
varðandi breytingar á reglugerð 246/1982.
Ályktunin var send ráðherra ásamt greinar-
gerð. Afrit voru send landlækni og Trygg-
ingaráði.Enda þótt reglugerðinni hafi verið
breytt, síðan ályktunin var samþykkt, var
ekki tekið tillit til áskorunar L. í.
Ályktun varðandi áskorun um krans-
œðaaðgerðir á íslandi. Ályktunin var send
heilbrigðisráðherra, landlækni, Trygginga-
stofnun ríkisins, læknaráðum Landspítala,
Borgarspítala og Landakots. Einnig prófess-
orum í lyflæknisfræði og handlæknisfræði og
yfirlækni brjóstholsskurðlæknisdeild Lands-
pítalans.
Ályktun um veikindavottorð. Ályktunin
var send ríkissáttasemjara og aðilum vinnu-
markaðarins. Að frumkvæði landlæknis var
haldinn fundur um vottorð vegna
skammtímaveikinda. Auk landlæknis og
aðstoðarlandlæknis sátu fundinn formaður
L. í., tveir fulltrúar frá A.S.Í. og einn frá V.
S. í.
Á fundinum var m.a. rætt um ályktun L. í.
oglýstu fulltrúar A. S. í. og V. S. í. sigtilbúna
að leggja tillögur fyrir viðkomandi stjórnir
um, að hætt verði að óska eftir vottorðum
vegna skammtímaveikinda. Aðilar hafa ekki
enn tekið ákvörðun um þetta mál, en land-
læknir mun kalla saman annan fund þessara
aðila nú í haust.
Ályktun um framhaldskennslu í heimilis-
lækningum. Ályktunin var send heil-
brigðisráðherra, menntamálaráðherra, land-
lækni, læknadeild, formanni nefndar um
framhaldsnám og Félagi ísl. heimilislækna.
Að höfðu samráði við stjórn F. í. H. voru
Gunnar H. Guðmundsson og Ólafur F. Mixa
skipaðir til að vinna að málinu af hálfu L. í.
Ályktun um tryggingamál. Ályktunin var
send landlækni, heilbrigðismálaráðuneyti,
formönnum samninganefnda lækna og
formönnum samninganefnda viðsemjenda
lækna. Almennur fundur um lífeyris- og
tryggingamál var haldinn á vegum L. í. 1. des.
sl. (Sjá aftar um tryggingamál.)
Ályktun um samanburð á kjörum. Stjórn
L. í. skipaði 5 manna nefnd til að vinna að
málinu, þar af einn skv. tilnefningu stjórnar
F. í. H. og annan skv. tilnefningu Sérfræð-
ingafélags lækna (sjá skipan nefnda aftast í
ársskýrslu). Framkvæmdastjóri hefur unnið
með nefndinni. Nefndin hefur haldið nokkra
fundi. Fundir hafa legið niðri frá því í vor, þar
sem búist var við allmiklum breytingum á
kjarasamningum heimilis- og heilsugæzlu-
lækna, enda höfðu þeir flestir sagt störfum
sínum lausum vegna óánægju með kjör. Nú,