Læknablaðið - 15.11.1985, Side 44
Orðabókarsjóður
læknafélaganna
Fyrir skemmstu var stofnaður Oröabókarsjóður Læknafélag-
anna.
Hlutverk sjóðsins er, að standa undir kostnaði við gerð íðorða-
safns lækna og í framhaldi af þvi, frágangi læknisfræðilegrar orða-
bókar. Stofnfé sjóðsins er það fé, sem læknafélögin hafa lagt fram
síðastliðin átta ár, til þess að greiða undirbúning verksins, og fram-
lög annarra aðila, sem berast sjóðnum fyrir 15. okt. 1985.
Læknum er gefinn kostur á því, að gerast stofnfélagar sjóösins
með því að greiða 1500 krónur — eittþúsund og fimmhundruð
krónur — inn á reikning sjóösins i Búnaðarbanka íslands. Framlag
þetta er jafnframt fullt áskriftargjald fyrir íðorðasafn lækna, sem
koma mun út í 15 til 20 heftum á næstu fjórum til fimm árum.
Þeir læknar, sem vilja fá Iðorðasafnið frá byrjun, eru beðnir að
greiða áðurgreint gjald í reikning sjóðsins númer 26-8925 i Bún-
aðarbanka íslands i Austurstræti 5. Ef greitt er i öðrum bönkum eða
i sparisjóöum eru auðkenni reikningsins: 301-26-8925.
Aðgætið að setja rétt heimilisfang í innlagnarseðil.
Orðanefnd læknafélaganna