Læknablaðið - 15.11.1985, Side 45
LÆKNABLAÐIÐ
309
Þorvaldur Veigar Guðmunds-
son fráfarandi formaður í
ræðustól.
tókustekki milliL.Í. ogT.R. umgjaldskrána,
og fór málið til Gerðardóms skv. almanna-
tryggingalögum.
Dómurinn var þannig skipaður:
Haraldur Henrýsson, hrl., formaður, til-
nefndur af Hæstarétti íslands, Gunnar
Guðmundsson, hdl., tilnefndur af L.í. og
Gunnar J. Möller, hrl., tilnefndur af T.R.
Dómurinn kvað þann 31. júlí sl. upp úrskurð
um gjaldskrá fyrir störf heilsugæzlulækna.
Niðurstaða dómenda var samhljóða. Helztu
breytingar frá eldri gjaldskrá eru eftirfarandi:
1. Gjaldskráin er byggð upp á einingakerfi,
og er einingarverð ákveðið kr. 15.00 frá
gildistöku dómsins 1. ágúst 1985. Ein-
ingarverð breytist síðan í samræmi við
almennan launaflokk heilsugæzlulækna,
sem er nú 136.
2. Greiðslur fyrir viðtöl á stofu, vitjanir og
vottorð hækka umfram aðra liði.
Sérfræðingar í heimilislækningum og
læknar, sem eiga að baki 8 ára starf sem
heimilis- eða heilsugæzlulæknar við gild-
istöku samningsins, fá 20% hærri greiðslu
fyrir viðtöl en aðrir.
3. Endurgjald fyrir þjónustu í síma, þar með
talið símsenda Iyfseðla, fellur niður.
4. Sjúkrasamlög taka nú þátt í kostnaði við
námsferðir, þannig að taxtagreiðslur hald-
ast.
5. Sjúkrasamlög greiða 5% af taxta-
greiðslum í Lífeyrissjóð og 0.125% í
Orlofsheimilasjóð lækna.
6. Gjaldskráin gildir til 1. maí 1987.
Upp kom ágreiningur um, hvernig skilja bæri
ákvæði dómsins um niðurfellingu gjalds fyrir
þjónustu í síma. L.í. óskaði eftir áliti dómsins
á því, hvort greiðslur fyrir símsenda lyfseðla
væru heimilar skv. ákvæðinu og benti á, að
dómurinn tæki ekki til annarra Iækna en
heimilis- og heilsugæzlulækna.
í svarbréfi dómenda eru tekin af öll tvímæli
um, að niður skuli falla gjald fyrir alla
þjónustu i síma, og er þá »ekkert undanþegið
«. Bréfið var prentað aftan við gjaldskrána,
sem var send læknum. L.R. mun kanna rétt
annarra lækna til gjaldtöku fyrir símsenda
lyfseðla.
Samningar heimilislcekna utan heilsugœzlu-
stöðva. Samningaviðræður hófust í desem-
ber, og var samningur undirritaður 28. marz.
Helztu kröfur samninganefndar lækna voru
um bætta rekstrarmöguleika læknastofa og
náðust þar talsverðar úrbætur.
Greiðslur sjúkrasamlaga til lækna verða
sem hér segir:
a. Mánaðargjald frá 29.000.00 kr. til
33.000.00 kr. fyrir sérmenntaðan heimil-
islækni eða lækni með yfir 8 ára starfs-
reynslu.
b. Vegna kostnaðar við rekstur stofu
30.000.00 kr.
c. Læknisverk skv. gjaldskrá heilsugæzlu-
lækna.
d. Laun starfsmanns allt að 75% stöðu skv.
nánari reglum, sé sýnt fram á ráðningu
hans.
a-liður mun hækka tilsvarandi launum heilsu-