Læknablaðið - 15.11.1985, Síða 46
310
LÆKNABLAÐIÐ
gæzlulækna, m.a. kemur hækkun Kjara-
dóms á hann frá 1. marz 1985.
b-liður er að 'A fyrir bíl og 2A fyrir ýmsa
rekstrarliði stofunnar.
Tryggingaráð samþykkti samninginn með
fyrirvara, sem felst í bókun frá fundi þess 2.
maí, þar sem sett er sem skilyrði fyrir greiðslu
þessa liðar, að sýnt sé fram á útlagðan
kostnað. Á fundi með samninganefnd T.R.
eftir samningsgerð var fallist á, að bókunin
næði aðeins til þeirra lækna, sem njóta
opinberrar aðstoðar við liðina húsaleiga, hiti,
rafmagn og ræsting. Þessi fjárhæð hækkar
skv. kostnaðarvísitölu á rekstri lækninga-
stofu eins og kostnaðarhluti einingarverðs
skv. gjaldskrá sérfræðinga.
Réttindi til námsferða náðust sambærileg
við sjúkrahús- og heilsugæzlulækna. Áður
var greitt í námssjóð, en þær greiðslur dugðu
skammt til námsferða.
Sjúkrasamlög munu greiða í lífeyrissjóð
6% af a-lið og heildargreiðslum skv. c-lið, en
slíkt hefur ekki náðst fram áður.
Samningurinn gildir frá 1. janúar til 31.
desember 1985. Hann bætir vonandi mögu-
leika á því að reka læknastofu á nútíma hátt,
sýni læknar fram á vilja til slíks. Stórir
kostnarðarliðir fást nú greiddir, sýni menn
fram á slík útgjöld.
Að lokum má geta þess, að samþykkt var að
gera sérsamning um vaktir, en bæjarvaktin i
Reykjavík er enn rekin skv. númerasamningi
lækna, sem að öðru leyti er fallinn úr gildi.
Samningaviðræður standa nú yfir um vaktir,
sem gegnt er frá Reykjavík og Hafnarfirði.
Vegna óánægju með kjör sín höfðu heimil-
islæknar sagt störfum sínum lausum eins og
heilsugæzlulæknar. í upphafi áttu uppsagnir
þeirra að koma til framkvæmda 1. júní, en var
með bréfi Félags ísl. heimilislækna til T.R. 31.
maí frestað til 11. ágúst.
Tryggingastofnun neitaði að taka frestun
uppsagna til greina, þar sem þær ættu aðeins
við gagnvart eldri samningi aðila og yrðu
nýjar uppsagnir að komatil skv. samningnum
frá 28. marz. í bréfi F.Í.H., þar sem tilkynnt
var um frestun, voru uppsagnir ítrekaðar.
Aðilar komust að samkomulagi um að leita
álits Benedikts Sigurjónssonar, fyrrv. hæsta-
réttardómara, um túlkun uppsagnarfrests og
hlíta því. Komst hann að þeirri niðurstöðu, að
endurnýja hefði þurft fyrri uppsagnir, þar
sem læknar hefðu ekki gert fyrirvara við
samningsgerðina um, að þær stæðu áfram.
Uppsagnir tækju því ekki gildi fyrr en 1. sept.
n.k.
Nú eru allir samningar heimilis- og heilsu-
gæzlulækna í höfn að öðru leyti en því, að
ósamið er um vaktir í Reykjavik og Hafnar-
firði, sbr. að ofan. Uppsagnir heimilislækna
standa enn, þegar þetta er ritað.
Samningurumsérfrœðilœknishjálp. Samn-
inganefnd L.R. hélt marga fundi á starfsár-
inu, bæði með fulltrúum T.R. og fulltrúum
tilnefndum af hinum ýmsu sérgreinafélögum,
þar sem fjallað var um einstaka gjaldskrárliði.
Skrifað var undir samning og nýja gjaldskrá,
sem gildir milli L.R. og T.R., 24. maí sl.
Gj aldskráin felur í sér umtalsverðar tilfærsl-
ur einstakra verka milli gjaldflokka og verða
þær ekki raktar hér.
Samningurinn gildir frá 1. apríl, en eininga-
fjöldi skv. hinni nýju gjaldskrá gildir þó frá 1.
janúar 1985. Ákvæði er um að endurskoða
einingafjölda fyrir viðtöl innan eins árs.
Hlutfall rekstrarkostnaðar og launahluta var
ákveðið 50:50 miðað við 1. júní 1985. Þá er
ákvæði um að skipa nefnd 2ja fulltrúa frá
hvorum aðila til að gera tillögur að framtíðar-
skipulagi sérfræðingastarfa, sérstaklega að
því er varðar stofnsetningu nýrra lækninga-
starfa.
Samningurinn var samþykktur á almenn-
um félagsfundi í L.R. þann 1. júní sl.
gildistími hans er til 1. maí 1987.
UMSAGNIR UM LAGAFRUMVÖRP
O.FL.
Stjórnin sendi frá sér umsagnir um eftirtalin
frumvörp og tillögur:
1. Frumvarp til laga um breytingu á lögum
um almannatryggingar, þar sem gert er ráð
fyrir stofnun áfrýjunarnefndar vegna
úrskurðar um örorkumat. Stjórn L.í. var
hlynnt stofnun slíkrar nefndar, en taldi
nauðsynlegt, að a.m.k. 2 af 3 nefndar-
mönnum væru læknislærðir.
2. Þingsályktunartillaga um kerfisbundna
leit að brjóstkrabbameini hjá konum.
Stjórnin var efnislega fylgjandi tillögunni.
3. Þingsályktunartillaga um lækkun á gjöld-
um fyrir lyfja- og lœknisþjónustu. Um-
sagnarbeiðnin barst 4. des., en 1. des.
tóku gildi umtalsverðar breytingar á reglu-
gerð þeirri, sem um var fjallað í tillög-