Læknablaðið - 15.03.1986, Side 8
58
LÆKNABLAÐIÐ
hópur legðist inn á sjúkrahúsið. Af gögnum
mátti ráða að meira en helmingur legðist inn,
aðallega eða nær eingöngu, vegna ýmis konar
geðtruflana. Hér er um að ræða töluverðan
hóp sjúklinga, sem sjaldnast höfðu vandamál
þess eðlis að ástæða hefði verið til að leggja þá
inn á geðdeild. Þetta þýðir þó ekki að
spítalavistin hafi verið ónauðsynleg eða hægt
að komast hjá henni. Oft höfðu sjúklingarnir
líkamleg einkenni eða kvartanir, sem ekki var
ljóst fyrr en eftir nokkurra daga dvöl á
spítalanum, að áttu sér fyrst og fremst geð-
rænar ástæður.
Geðlæknarnir reyndu alltaf að greina
vanda sjúklinganna og veita leiðbeiningar um
meðferð. Ráðleggingar um lyfjameðferð eða
breytingar á lyfjum voru gefnar í u.þ.b. 50%
tilfella. Það er svipað reynslu annarra. Ekki er
ljóst hve oft ráðum geðlækna hér varðandi
Iyfjagjafir var fylgt, en aðrir hafa sýnt fram á
að þeim ráðum er fylgt í u.þ.b. 70% tilfella
(15).
Fjórðungi sjúklinganna var ráðlagt að leita
geðlæknis eftir útskrift. Innan við helmingur
þessara sjúklinga fylgdi þeim ráðum. Hér
kemur ugglaust margt til. Afneitun sjúklinga
á geðrænum þáttum í einkennun sínum er
mikil, ekki síst þegar einnig er um veruleg
líkamleg einkenni að ræða eins og er hjá
þessum hópi sjúklinga. Einnig er ástand
sjúklinga í flestum tilfellum mun betra eftir
útskrift og þeir sjá ekki þörf á því að leita
geðlæknis.
Flutningur sjúklinga á geðdeild frá öðrum
deildum er hlutfallslega sjaldgæfur. í flestum
tilfellum þegar þess er þörf, þarf að bregðast
skjótt við.
Þessi athugun sýnir að þeir sjúklingar sem
geðlæknar sjá á öðrum deildum Landspítala
en geðdeildum, eru svipaðir og aðrir hafa sýnt
fram á í hliðstæðum athugunum (12). Líklega
er þó heldur færri vísað til geðlækna hér, en
víða annars staðar.
SUMMARY
Psychiatrists in a General Hospital.
All psychiatric referrals during 1983 at the National
University Hospital were studied. Two hundred and forty
consultations were completed, referral rate about 1.6%.
Women were over 60% of those referred. The diagnoses
of depressive disorder and organic brain syndrome
predominated. Other studies have shown similar fin-
dings. It appeared that over 50% of the patients
psychiatric reasons were the major factor in deciding to
admit the patient to the hospital. The suggestions of the
psychiatrists are discussed.
HEIMILDIR
1. Cassleth BR et al. Psychosocial status in chronic
illness: A comparative analysis of sex diagnostic
groups. N Engl J Med 1984; 31: 506-11.
2. Engel GL. The need for a new medical model: A
challenge for biomedicine. Science 1977; 196: 129-
36.
3. Hacket TP, Cassem NH. Massachusetts General
Hospital Handbook of general hospital psychiatry.
Saint Louis: S. V. Mosby Company, 1978.
4. Lipowski ZJ. Review of consultation psychiatry and
psychosomatic medicine. II Clinical aspects. J
Psyshosom Med 1967; 29: 201-24.
5. Lipowski ZJ. Current trends in consultation —
liaison psychiatry. Can J Psychiatry 1983; 28: 329-
38.
6. Garrick TR, Stotland NL. How to writea psychiatric
consultation. Am J Psychiatry 1982; 139: 849-55.
7. Sigfússon S. Hlutur geðsjúkra 1 heilbrigðisþjónustu,
annarri en geðlæknisþjónustu. Læknablaðið 1981;
67: 50-64.
8. Diagnostic and statistical manual of mental dis-
orders, 3rd ed. Washington DC: Am Psychiatry
Ass., 1983.
9. World Health Organization. Mental disorders: Glos-
sary and guide to their classification in accordance
with the ninth revision of the International Classifi-
cation of Diseases. Genéva: World Health Organiza-
tion.
10. Karasu TB, Plutchik R, Conte H et al. What do
physicians want from a psychiatric consultation
service? Comprehensive psychiatry 1977; 18: 73-81.
11. Steinberg H, Torem M, Saravay SM. An analysis of
physician’s resistance to psychiatric consultations.
Arch Gen Psychiatry 1980; 37: 1007-12.
12. Lipowski ZJ. Liaison psychiatry. Referral pattern
and their stability over time. Am J Psychiatry 1981;
138: 1608-11.
13. Lipowski ZJ. Physical illness and psychiatric dis-
order: A neglected relationship. Psychiatria Fen-
nica 1979: 32-57.
14. Popkin MK, Mackenzie TB, Callies AL. Psychiatric
consultation to geriatric medically ill inpatients in a
university hospital. Arch Gen Psychiatry 1984; 41:
703-7.
15. Popkin MK et al. Consultees’ concordance with
consultants’ psychotropic drug recommendations.
Arch Gen Psychiatry 1980; 37: 1017-21.