Læknablaðið - 15.03.1986, Síða 45
LÆKNABLAÐIÐ
75
Mynd 2. Dcemigerð röntgenmyndeftir útdrátt holœöar-
leggjar með innspýtingu Skuggaefnis gegnum legginn. a:
»spor« (farvegur) frá œð til húðar, b: veggfastur
fíbrínhólkur, c: laus fíbrínhótkur, breið ör: skuggaefn-
ispollur utan á húð (leggur burtu).
fastur, og var hólkurinn allt frá 10 og upp i 14
cm langur. í þremur tilfellanna sást einnig
greinilega sporið frá æð til húðar. Fyrir utan
veggfastan fíbrínhólk voru engin merki vegg-
breytinga og aldrei lokun á æð (MYND 3,
A + B). Viku eftir að æðaleggur var fjar-
lægður fékk einn sjúklinganna lungnarek,
sem talið var eiga upptök sín í bláæðum
ganglima, en það var þó aldrei sannað.
B) »Sérstakir sjúklingar«
SJÚKLINGUR 1:
66 ára gömul kona með mjög útbreidda æðakölkun.
Vegna kölkunar í innyflaæðum þurfti hún langvarandi
næringu í æð, Hún hafði áður fengið holæðarlegg eftir
ástungu hægri viðbeinsbláæðar, en sá hafði verið
fjarlægður vegna rennslistregðu eftir 38 daga notkun.
Ekki var þá gerð æðamyndataka. Hún fékk síðan nýjan
æðalegg eftir ástungu vinstri viðbeinsbláðar, en eftir sex
daga notkun var orðin áberandi rennslistregða. Sprautað
var inn röntgenskuggaefni gegnum legginn og kom þá
fram upphleðsla skuggaefnis við enda hans.
Bendir þetta eindregið til blóðsegamyndunar og var
leggurinn því fjarlægður. Fyrir utan rennslistregðu hafði
hún þó ekki önnur einkenni um lokun á stórum bláæðum.
Kona þessi fékk seinna holæðarleggi eftir ástungu
hálsbláæða og útskrifaðist í góðu ástandi eftir vel
heppnaða aðgerð vegna þrengslanna í innyflaæðum (16).
SJÚKLINGUR 2:
67 ára gömul kona með bráða briskirtilsbólgu. Hún hafði
áður fengið holæðarlegg eftir ástungu hægri viðbeins-
bláæðar, en sá hafði lent upp í hálsæð og því verið
fjarlægður. Konu þessari var gefin langvarandi næring í
æð, og í sambandi við aðgerð var settur inn nýr
æðaleggur, nú í vinstri viðbeinsbláæð. 14 dögum síðar
Mynd 3 A + B. Úr kvikmynd. A spegilmynd af B.
A: Mynd eftir útdrátt æðaleggjar. Merkingar sömu og á
mynd 2. B: Framhald af mynd 3 A eftir innspýtingu
skuggaefnis í holhandarbláœð. Merkingar á sama hátt.
Hluti c skýrður með blýanti. Engin merki blóðsega-
myndunar, bláœðar opnar og ekki sjáanlegar vegg-
skemmdir. Fíbrínhólkur enn til staðar.
kvartaði sjúklingur um handkulda og reyndist hafa bjúg
á vinstri handlegg. Vökvi rann vel inn gegnum æðalegg-
inn, en blóð kom ekki tilbaka, þegar sídreypisflaska var
lækkuð. Röntgenskuggaefni var sprautað gegnum legg-
inn og myndaðist þá smá pollur við enda hans! Leggurinn
var síðan dreginn út og skuggaefni sprautað inn samtímis.
Þegar Ieggurinn var allur úti, var tekin röntgenmynd.
Kom þá í ljós röntgenþétt strik svarandi til legu
æðaleggjarins.
Hér gæti verið um að ræða veggfastan eða jafnvel
lausan fíbrínhólk, en pollurinn bendir til lítils blóð-
rennslis og líklegast þótti því að um algera lokun á æðinni
væri að ræða.
Var því hafin heparínmeðferð. Að kvöldi sama dags
fékk hún hitatopp, en allar ræktanir voru neikvæðar.
Vegna áframhaldandi veikinda var seinna settur inn
holæðarleggur í hægri viðbeinsbláæð. Kona þessi dó
nokkru seinna og við krufningu var staðfest lokun á
vinstri viðbeinsbláæð (MYND 4).
SJÚKLINGUR 3:
Sextugur maður með dreyrasýki (Hemophilia A): Vegna
aðgerðar á hné og fylgikvillum hennar þurfti sjúklingur á