Læknablaðið - 15.10.1987, Side 16
Ein Doxýtab með moigunmat.
Doxýtab (dœýcýklín) -gott rað við gelgjubólum.
Hver tafla inniheldur: Doxycyclinum INN, klóríð, samsvarandi Doxycyclinum INN
50 mg og 100 mg. Eiginleikar: Breiðvirkt sýklaheftandi lyf (tetracýklínafbrigði),
virkt gegn ýmsum Gram-jákvæðum og Gram-neikvæðum bakteríum, chlamydia og
mycoplasma. Lyfið útskilst um 35 - 40% í þvagi, en nær góðri þéttni í blöðruháls-
kirtli. Ábendingar: Sýkingar af völdum tetracýklínnæmra sýkla. Slæm tilvik af
gelgjubólum (acne vulgaris). Frábendingar: Forðast ber að gefa lyfið börnum
yngri en 8 ára vegna áhrifa lyfsins á tennur í myndun. Lyfið á ekki að gefa vanfærum
konum. Ofnæmi gegn tetracýklínsamböndum. Aukaverkanir: Kveisa, ógleði,
uppköst og niðurgangur koma fyrir. Ofnæmisútbrot. Aukin tíðni sólarútbrota og
ber því að varast sólböð. Milliverkanir: Járnsambönd og sýrubindandi lyf, sem
innihalda alúmíníum, minnka frásog lyfsins og ber að forðast að neyta þessara efna
3 klst. fyrir og eftir töku lyfsins. Eiturverkanir: Mjög stórir skammtar lyfsins geta
valdið lifrarskemmdum. Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegur
skammtur er 100 mg tvisvar sinnum fyrsta daginn, síðan 100 mg daglega. Ekki þarf
að gefa lægri skammta, þótt um nýrnabilun sé að ræða, en skammta ber að lækka
við lifrarbilun. Við gelgjubólum: í upphafi meðferðar 100 mg á dag, en þegar
árangur fer að sjást, má minnka skammt niður í 50 mg á dag. Skammtastærðir
handa börnum: Börn 8 - 12 ára: Venjulegur skammtur er 4 mg/kg líkamsþunga
fyrsta daginn, síðan 2 mg/kg líkamsþunga á dag. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri
en 8 ára. Hver pakkning lyfsins er merkt: „Verkun lyfsins minnkar, ef sjúklingur
tekur járn eða sýrubindandi lyf þremurldukkustundum fvrir eða eftir töku lyfsins".
Pakkningar: Doxýtab töflur 100 mg - 10 stk., 30 stk.
Doxýtab töflur 50 mg -10 stk., 30 stk., 100 stk.
GLOÖN HEIÐMÍ