Læknablaðið - 15.10.1987, Síða 42
344
LÆKNABLAÐIÐ
Hér eru vegalengdir mun minni en ég kynntist til
dæmis á Hólmavík og það eru mjög ólíkar
aðstæður á hinum ýmsu stöðum. Hér er aðstaðan
þokkaleg og þröng húsakynni vel notuð og tel ég
stöðina betur búna tækjum en til dæmis nýja
stöðin á Hólmavík. Það er líka gott að geta verið
í samstarfi við hjúkrunarfræðing sem starfað
hefur hér í 12 ár og þekkir orðið vel sitt fólk.
Eyþór taldi ekki svo erfitt að laða lækna til starfa
úti á Iandsbyggðinni en þar kæmu þó ýmis atriði
til skoðunar. Nefna má húsakynni, aðstöðu
stöðvarinnar, hversu margt starfsfólk væri og
hvort læknir væri einn eða með öðrum. Stöðug
símavakt væri fyrst og fremst það sem menn
þreyttust á.
Þórshöfn
Á Þórshöfn situr nú Gísli Baldursson en í þorpinu
búa kringum 450 manns. Þar er hann einn að
störfum en með samkomulagi við lækninn á
Vopnafirði hafa þeir getað skipst svolítið á
vöktum um helgar. Með Gísla starfar
hjúkrunarfræðingur í heilu starfi og ljósmóðir í
hálfu starfi.
- Ég vildi helst ráða mig til starfa úti á landi til
eins árs og það var kannski ekki úr svo mörgum
stöðum að velja. - Ég hef nú aðeins starfað hér
skamma hríð, en kann þó allvel við mig.
Húsnæðið hér er ekki nógu hentugt sem
heilsugæslustöð en nú er verið að byggja nýja og
kemst hún væntanlega í gagnið eftir tvö til þrjú
ár. Það hefur náttúrlega einkennt þennan stað
eins og marga aðra úti á landi að hingað hafa
aðeins fengist menn til starfa í skamman tíma í
senn. Síðustu tvö árin hefur ástandið verið þannig
og þá drabbast allt niður ósjálfrátt. Það segir sig
því sjálft að hér er ýmislegt sem má bæta og til
dæmis er ég að gera sjúkraskrárnar aðgengilegri
með því að taka upp svo kallað
vandaliðunarkerfi. Það er hins vegar ekki áhugi á
því að ráðast í nauðsynlegar breytingar og
endurbætur á gömlu stöðinni, þar sem sú nýja
kemst bráðum í gagnið.
Gallinn við að starfa einn síns liðs á stað sem
þessum er til dæmis þessi króníska vakt og líka
sakna ég þess að hafa ekki meiri félagsskap af
kollegum eins og er á H2 stöðvum. Ég starfaði
sem heilsugæslulæknir á sumrin þegar ég var í
náminu, var meðal annars á Höfn og í
Vestmannaeyjum í námsstöðum og í Árbæ, allt
H2 stöðvum og var sú reynsla mér betri en engin.
Síðar hef ég verið á Kirkjubæjarklaustri og
Þingeyri. Ég held að það sé haldbetri reynsla fyrir
Gísli Baldursson á Þórshöfn.
óreynda lækna og læknanema í heilsugæslu að
vinna með öðrum lækni eða læknum þar sem
tilfelli og auðvitað margt annað er rætt.
Eru vandamál hér svipuð og annars staðar sem þú
hefur verið?
- Ég held nú að vandamál hér séu svipuð og
annars staðar. Hér hefur blessunarlega verið
stórslysalaust, enda er hér ekki aðstaða til að
sinna mikið slösuðu eða sjúku fólki. Þurfi að
senda sjúklinga á spítala höfum við sjúkrabíl og
köllum eftir sjúkraflugi sé þess þörf. Eitt er þó
það vandamál sem ég held að fari mjög vaxandi í
héraði sem þessu en það er gamla fólkið. Hvert á
að senda aldraða sem þurfa á stöðugri
læknishjálp að halda? Best væri að geta komið
upp einvers konar deild í sambandi við
heilsugæslustöðina og spara dýra flutninga og
sjúkrahúslegu annars staðar. Fólkið vill vera
heima í héraði og það hlýtur til Iengdar að vera
ódýrast að gera því það kleift.
Dalvík
Áður en við stöldrum við á Dalvík er Ólafur
Oddsson spurður hvernig það gangi að sinna í
senn lækningum og starfi héraðslæknis:
- Ég tel þetta að mörgu leyti hentugt að geta sinnt
hvoru tveggja í senn. Héraðslæknar eru skipaðir